Kjarnyrt

Það var mjög dýrt að reka ríki aðallega fyrir þá ríkustu
Það er ánægjulegt að sjá, sérstaklega eftir lyga- og þvæluvaðalinn sem gamla Ísland bauð okkur upp á með ærnum tilkostnaði í sumar, að Íslendingar eru nokkuð næmir á sinn efnahagslega veruleika. Það sést vel á könnunum þar sem flokkar sem ekki er hægt að taka alvarlega þegar kemur að meðferð fjármuna eru að tapa fylgi á meðan að ríkisstjórnin bætir við sig og nýtur meiri stuðnings í hálfleik en nær allar ríkisstjórnir síðan fyrir bankahrun.

Sjálf­stæðis­flokkur sem er ekki hægt að taka al­var­lega - Vísir

Margir fylgdust með af áhuga um helgina hvort Sjálfstæðisflokkurinn, sem einu sinni var þungamiðja íslenskra stjórnmála til áratuga, myndi nýta flokksráðsfund til að breyta um kúrs og fara aftur í átt að miðju sem gerði flokkinn að því afli sem hann var áður. Hvort hann ætlaði að stíga skref í átt að því að láta taka sig alvarlega að nýju.

visir.is • Þórður Snær Júlíusson

Landsmenn virðast skilja vel að það er ekki hægt að reka ríkissjóð á frjálshyggjukreddum, gúmmítékkum, skattastyrkjum til þeirra ríkustu og mörg hundruð milljarða króna yfirdrætti heldur þarf, líkt og í heimilisbókhaldinu, að láta enda ná saman. Það er verið að gera núna á sama tíma og Íslandið sem síðasta ríkisstjórn ógnaði með aðgerðar- og getuleysi er lagað. Heilbrigðiskerfið, menntakerfið, húsnæðismarkaðurinn, samgöngumálin, öryggið og auðvitað efnahagsstjórnunin eru allt að færast til betri vegar. Það gerist ekki yfir nóttu, en það er að gerast og fólk finnur það.

Þegar innihaldsrýrum barlómi stjórnarandstæðinga, fjölmiðla þeirra og hægrihlaðvarpamannanna sleppir stendur eftir að Ísland byggir á sterkum grunni. Í tíð þessarar ríkisstjórnar hefur kaupmáttur aukist þvert á samfélagshópa, hlutfallslega einna mest hjá láglaunafólki og eldra fólki. Erlend staða þjóðarbúsins er afar sterk. Á næsta ári mun átta ára 866 milljarða króna hallarekstri ljúka og ríkissjóði verður skilað í fyrsta sinn rétt megin við frá 2018.

Sá árangur mun nást meðal annars með því að ríkisútgjöld minnka en gert er ráð fyrir að þau fari úr 31,4 prósentum af landsframleiðslu í ár í 30,5 prósent árið 2027. Aðhalds- og hagræðingaraðgerðir frumvarpsins nema enda 44,2 milljörðum króna á meðan nýjar tekjur eiga að skila 22,6 milljörðum króna. Það þýðir á mannamáli að aðhaldið skilar nær tvöfalt meiru en nýju tekjurnar.

Minni skuldir og lánshæfi það besta síðan 2008

Frá því að stjórnarskipti urðu hefur skuldastaða ríkissjóðs styrkst verulega. Uppgjör ÍL-sjóðs í fyrra, risastór myllusteinn sem fyrri stjórnum hafði ekki tekist að leysa, lækkaði skuldir ríkissjóðs í heild um fjárhæð sem jafngildir nærri sex prósentum af landsframleiðslu. Þetta mun skila því, þrátt fyrir verðbólgu yfir væntingum, að vaxtabyrði ríkissjóðs á að léttast á næsta ári. Ekki veitir af. Ófjármagnað útgjaldafyllerí hægrikreddustjórnar kyrrstöðu og skattaívilnana fyrir betur setta, sem sat árin 2017-2024, skilaði því að áætluð vaxtagjöld ríkissjóðs jukust um 109 milljarða króna frá 2021.

Eftir þessu er tekið erlendis. Matsfyrirtækið Scope Ratings veitti ríkissjóði til að mynda AA− lánshæfiseinkunn í júlí 2026. Það var fyrsta einkunn ríkissjóðs í AA-flokki síðan 2008.

Það sem truflar mest er að verðbólga er hærri en vonir stóðu til. Innlendur kostnaðarþrýstingur og hækkun á olíu- og flutningskostnaði erlendis frá vegna stríðsreksturs Bandaríkjanna og Ísraels í Miðausturlöndum ræður þar langmestu.

Góðu fréttirnar eru þær að það hefur dregið verulega úr spennu í hagkerfinu, húsnæðisframboð hefur aukist og hægt hefur á launaskriði. Þetta skapar forsendur fyrir hraðri hjöðnun verðbólgu næstu mánuði og þegar kemur fram á árið 2027, eins og Seðlabankinn gerir ráð fyrir.

Ríkisstjórnin styður þá þróun með því að leggja fram hallalaus fjárlög og hemja útgjaldavöxt. Þannig hafa verið sköpuð skilyrði fyrir lægri vöxtum og léttari byrðum heimilanna.

Skuldir heimila ekki lægra hlutfall síðan 2001

Ein leið til að skoða fjárhagslegt heilbrigði íslenskra heimila er að sjá hversu miklar skuldir fjölskyldna voru sem hlutfall af landsframleiðslu. Samkvæmt skattframtölum skuldaði hver fjölskylda að meðaltali 14,7 milljónir króna í lok síðasta árs. Vert er að taka fram að þær skuldir dreifast vitanlega mjög víða. Sumir skulda umtalsvert á meðan fjölmargir skulda lítið eða jafnvel ekkert.

Í tölunum kemur fram að hlutfall heildarskulda af vergri landsframleiðslu lækkaði um 1,6 prósentustig frá fyrra ári, í 69,5 prósent, og hefur ekki verið lægra síðan 2001.

Eignir fjölskyldna í landinu jukust líka umtalsvert á síðasta ári, því fyrsta heila eftir að skipt var um ríkisstjórn. Að meðaltali átti hver fjölskylda 60,4 milljónir króna árið 2025 sem er aukning um 4,6 prósent á föstu verðlagi milli ára. Samkvæmt Hagstofu Íslands er það „mesta aukning á milli ára frá 2021 þegar verðlagsleiðrétt hækkun frá fyrra ári var 7,8 prósent“.

Þarna er um allar eignir að ræða: fasteignir, ökutæki, innistæður í bönkum og verðbréf.

Elsti hópurinn, 67 ára og eldri, átti langmest en eignir þeirra námu um 111 milljónum króna að meðaltali. Athygli vekur hins vegar að aukningin á eign varð mest í yngsta hópnum, 30 ára og yngri.

Heimilin eiga um ellefu þúsund hreina milljarða

En það sem skiptir mestu máli eru hreinu eignirnar, eigið féð, það sem eftir stendur þegar búið er að draga eignirnar frá skuldunum.

Í nýju tölunum um það, sem sýna stöðuna í lok árs 2025, kemur fram að eigið fé heimila landsins var alls 10.682 milljarðar króna um síðustu áramót. Það jókst um 1.221 milljarð króna á einu ári, aðallega vegna þess að húsnæðisverð hélt áfram að hækka mjög skarpt.

Alls má rekja næstum 84 prósent aukningarinnar á eigin fé til þess að fasteignamat hækkaði milli ára, sem er nánast sama hlutfall og árið áður.

Raunar er það þannig að þorri landsmanna á fyrst og síðast steypu, 79 prósent af öllu eigin fé einstaklinga í landinu er bundið í fasteignum.

Þetta er í fyrsta sinn sem eigið fé íslenskra heimila fer yfir tíu þúsund milljarða króna markið. Það hefur næstum þrefaldast í krónum talið á fimm árum.

Hinir ríkustu taka minna til sín af nýjum auð

Eini hópurinn sem á umtalsvert eigið fé í öðrum eignum en þeim sem búið er í er tekjuhæsta tíund landsins. Sá hópur, sem telur 23.388 fjölskyldur, átti alls um 5.345 milljarða króna í eigin fé um síðustu áramót. Það þýðir að helmingur alls eigin fjár í landinu var í höndum þessa hóps. Eigið fé hans óx um 92 prósent í tíð síðustu ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, eða um 2.289 milljarða króna. Það er því ekki skrýtið að efsta lagið sjái mjög eftir þeirri stjórn, enda vann hún fyrst og síðast fyrir það.

Þessi hópur á peninga sem hann getur látið „vinna fyrir sig“. Hann á fjármagnseignir sem skapa tekjur. Það eru til að mynda vextir af innlánum, arður eða söluhagnaður af verðbréfum eða leigutekjur af lausafé og af útleigu fasteigna. Þeir sem fá mestar fjármagnstekjur á Íslandi eru því sá hópur einstaklinga sem á flest hlutabréf og flestar fasteignir. Sá hópur sem hefur sankað að sér flestum eignum.

Samkvæmt skattframtölum voru fjármagnstekjur landsmanna alls 355 milljarðar króna á árinu 2025, en jukust einungis um sex milljarða króna milli ára, eða 1,7 prósent. Til samanburðar jukust þær um 25 prósent milli áranna 2022 og 2023 þegar örvunaraðgerðir síðustu ríkisstjórnar, sem steikti hagkerfið með ofþenslu, voru enn á fullu gasi.

Af þessum fjármagnstekjum sem féllu til á síðasta ári þénaði efsta tekjutíundin 244 milljarða króna, eða um 68 prósent þeirra allra. Það er aðeins lægra hlutfall en árin á undan.

Rúmur þriðjungur af fjármagnstekjum á síðasta ári var arður af hlutabréfum. Efsta tekjutíund landsmanna átti alls verðbréf fyrir 664 milljarða króna um síðustu áramót, eða 83 prósent allra verðbréfa sem heimilin áttu.

Eignir þeirra best settu verulega vanmetnar

Í tölum Hagstofu Íslands um eigið fé landsmanna er ekki tekið tillit til eigna þeirra í lífeyrissjóðum landsins, sem sameiginlega halda á 9.326 milljörðum króna af eignum landsmanna og eiga stóran hluta af öllum verðbréfum sem gefin eru út hérlendis.

Þá er virði hlutabréfa í innlendum og erlendum hlutafélögum líka reiknað á nafnvirði, ekki markaðsvirði. Það þýðir til dæmis að ef einstaklingur keypti hlut í skráðu félagi sem hefur tífaldast í verði fyrir einhverjum árum á 200 milljónir króna þá er það virðið sem reiknað er inn í tölur Hagstofunnar, ekki tveir milljarðar króna, sem er verðið sem viðkomandi myndi fá ef hann seldi hlutabréfin.

Verð á húsnæði og öðrum fasteignum er líka reiknað miðað við fasteignamat, en markaðsvirði hefur oft tilhneigingu til að vera nokkuð yfir því mati. Þá er ótalinn kvótinn sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki halda á og nýta til að hagnast, en er í eigu þjóðarinnar. Í bókum þeirra er hann metinn á yfir 500 milljarða króna. Ef hann yrði seldur á markaðsvirði má ætla að kvótinn myndi seljast á að minnsta kosti tvisvar sinnum þá upphæð, og líklega enn meira.

Aflaheimildir, eða kvóti, eru um helmingur allra bókfærðra eigna íslenskra útgerða. Samkvæmt lögum er þessi kvóti reyndar sameign íslensku þjóðarinnar. Mynd: Deloitte

Samantekið skekkir ofangreint eðlilega mjög allar uppgefnar tölur um eigið fé, enda verðbréf og fasteignir að meginuppistöðu í eigu þess hluta þjóðarinnar sem á mestar eignir.

Raunvirði eigna þess hóps er því sennilega mun meira en tölur á skattframtölum gefa til kynna.

Kúvending í skiptingu kökunnar

Þegar kyrrstöðustjórn hinna best settu hvarf frá völdum fyrir tæpum tveimur árum var auðsöfnun þessa efsta lags að aukast. Á árunum 2010 til 2020 tóku ríkustu tíu prósent landsmanna til sín 43,5 prósent af öllum nýjum auð sem varð til árlega að meðaltali. Á síðasta kjörtímabili varð þetta hlutfall hærra.

Hæst var það á síðasta ári kyrrstöðustjórnarinnar við völd, þegar 57 prósent af nýjum auð sem varð til á Íslandi það árið rann til þeirra tíu prósent sem mest áttu, en 90 prósentin skiptu með sér hinum 43 prósentunum.

Strax á fyrsta ári nýrrar ríkisstjórnar sem var við stjórnvölinn varð kúvending til aukins jafnaðar á þessum tölum. Á árinu 2025 fóru 45 prósent af nýjum auð til ríkustu tíundarinnar en 55 prósent til hinna.

Þeir sem afla fjármagnstekna borga fjármagnstekjuskatt. Sá skattur er 22 prósent, sem er mun lægra hlutfall en greitt er af t.d. launatekjum, þar sem skatthlutfallið er frá 31,49 til 46,29 prósent eftir því hversu háar tekjurnar eru.

Hinar skýru víglínur íslenskra stjórnmála

Ástæður þess að ríkustu tíu prósentin tóku miklu meira til sín í tíð síðustu ríkisstjórnar var meðal annars að finna í aðgerðum sem stjórnvöld réðust í vegna efnahagslegra afleiðinga kórónuveirufaraldursins. Með þeim var lánsfé gert ódýrara og tækifæri þeirra sem áttu umtalsvert fjármagn til að ávaxta það enn meira, sérstaklega í fasteignum og hlutabréfum sem ruku upp í verði, til að hagnast mikið urðu mýmörg.

Margar þessara kostnaðarsömu ívilnana áttu það sameiginlegt að enda fyrst og síðast hjá hópum sem þurftu ekki endilega á þeim að halda. Auk þess var mörgum þeirra viðhaldið allt of lengi með gríðarlegum kostnaði fyrir ríkissjóð. Það leiddi til þess að mjög efnað fólk gat efnast enn meira á kostnað ríkissjóðs, sem var rekinn með mörg hundruð milljarða króna halla. Peningar voru færðir frá okkur öllum til fárra en vinveittra síðustu ríkisstjórn.

Það þarf ekki að lesa lengi í efnahagstillögum sem Sjálfstæðisflokkurinn kynnti í vor til að átta sig á að sá flokkur vill fara með íslenskt samfélag í frjálshyggjutilraun sem felur í sér að búta sundur velferðarkerfið, selja allar helstu eignir ríkisins og eyðileggja tekjustofna ríkisins með skattalækkunum, aðallega á þá ríkistu. Samfylkingin leiðir á sama tíma ríkisstjórn af ábyrgð og með hagsmuni allra landsmanna að leiðarljósi. Mynd: Samsett/Alþingi

Í þessi göt hefur sitjandi ríkisstjórn verið að stoppa upp í. Hún hefur verið að afnema skattaafslætti upp á marga milljarða króna á ári sem lentu hjá tekjuhæstu hópunum, sem þurfa sannarlega ekki á stuðningi að halda.

Þetta hefur verið óvinsælt hjá þeim sem hafa notið og þingmenn á þeirra vegum hafa öskrað um að afnám þessa pilsfaldakapítalisma sé hið mesta óréttlæti. Í raun sé það skattahækkun að láta efstu tíundina, þá einu sem lækkaði skattbyrði sína í tíð ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, borga eins og aðra.

Þarna liggja víglínur íslenskra stjórnmála í dag. Milli almannahagsmuna og sérhagsmuna. Milli ríkisstjórnarflokka sem vinna af ábyrgð fyrir alla og stjórnarandstöðu sem vinnur bara fyrir suma.

Þegar Facebook stal af mér tæpum 100 þúsund krónum viðurkenndi það fúslega en neitaði svo að skila þeim
Í dag ætla ég aðeins að hvíla mig á pólitík og skrifa um neytendamál sem allir ættu að geta tengt við. Ég ætla að dvelja við þau viðmót og þá ferla sem stórfyrirtæki eru búin að koma sér upp til að koma í veg fyrir að viðskiptavinir þeirra geti sagt upp áskriftum eða sótt sér rétt þegar á þeim er brotið.

Það þekkja þetta vandamál sennilega flestir. Fátt er einfaldara en að gerast áskrifandi að þjónustu eða eyða viðbótarpeningum innan tæknifyrirtækja en ef þú ætlar að segja upp eða leiðrétta eitthvað þá er þér ýtt inn í völundarhús stafrænna öngstræta stýrt af gervigreindarforritum og vélmennum sem virðast hönnuð til að afvegaleiða kúnnann og um leið drepa lífsvilja hans.

Alþjóðlega hugtakið yfir þessa meðvituðu ákvörðun stórfyrirtækja að gera innleið auðvelda en útleið nær ómögulega er „dark patterns“. Í Bandaríkjunum hafa verið höfðuð umfangsmikil dómsmál gegn fyrirtækjum á borð við Amazon og Adobe þar sem sýnt var fram á að þau voru að hanna viðmótin sín í nákvæmlega þessum tilgangi. Ná kúnnum inn til að borga og gera þeim síðan dómsdagserfitt að komast út úr því borgandi sambandi.

Þetta er spurning um prinsipp

Sjálfur hef ég oft „lent“ í svona aðstæðum eins og flestir sem kaupa sér alls kyns áskriftir og þjónustur á stafrænni öld. Ég geri reglulega verðsamanburð á allri þjónustu sem ég neyðist til að kaupa, eins og tryggingum, lánum og annarri fjármálaþjónustu. Ef söluaðili sem hefur selt mér vörur eða þjónustu stendur ekki við sitt gagnvart mér þá sæki ég alltaf það sem ég sannarlega á, sama hversu lág upphæðin er. Líkt og Finnur Jóhannesson sagði í Blossa/810551 þá er þetta einfaldlega „bara spurning um prinsipp“. Það á enginn að komast upp með að svíkja.

Blossi/810551 er ekki eftirminnilegasta mynd sögunnar. En hún framleiddi nokkra frasa sem lifðu. Fyrrverandi handboltakempan Finnur Jóhannesson átti einn þeirra. Já og svo gleymist Stálmúsin seint. Sá karakterinn sem það var. Mynd: Skjáskot

Í anda sömu þrjósku þá er dagatalið mitt fullt af áminningum um að segja hinu og þessu upp á réttum tíma þegar tilboðsverð rennur út og þyngri áskrift tekur við. Leiðirnar þangað eru stundum ansi skrautlegar og þetta er tímafrekt sport.

Ágætur maður sagði mér til að mynda frá því nýverið að þegar hann ætlaði að segja upp áskrift að bresku dagblaði á netinu, sem tók einn smell að byrja að borga fyrir, þá endaði það í kröfu um að hann þyrfti að hringja inn í síma einhverja talnarunu sem hann fékk senda eftir dúk og disk. Maður bíður, í alvöru, stundum eftir því að hátæknifyrirtæki krefjist þess að send verði bréfdúfa með handskrifað bréf til annarrar heimsálfu svo hægt sé að ljúka viðskiptum við það.

Samfélagsmiðlar nýja tóbakið

Eitt af því sem ég hef gert lengi, sökum starfs, er að eiga í viðskiptum við Meta, móðurfyrirtæki Facebook, Instagram, Threads og WhatsApp. Gímaldið sem Mark Zuckerberg bjó til og hefur fært okkur ýmislegt gagnlegt en sennilega haft margfalt verri áhrif á samfélagið og lýðræðið á síðustu 20 árum en flest annað. Fyrir utan dauðaskrunið, læk-blætið, snjallalgórítmana, bergmálshellana, streak-inn og græna ljósið á lygar sem eru hannaðar til að blekkja almenning sem Facebook og hinir samfélagsmiðlarnir hafa fært okkur þá liggur líka fyrir að Meta hefur meðvitað litið fram hjá þeim skaða sem miðlar þeirra valda.

Bara á þessu ári hefur Meta til að mynda tapað tveimur dómsmálum í Bandaríkjunum vegna skaða sem samfélagsmiðlar fyrirtækisins ollu börnum og ungmennum. Í öðrum dómnum kom meðal annars fram að Meta hafi vitað að eiginleikar á borð við sjálfvirka spilun myndbanda, endalaust skrun og tilkynningar gætu ýtt undir ávanabindandi notkun. Dómarinn taldi Meta hafa hannað miðlana til að hámarka notkun, meðal annars með eiginleikum sem sköðuðu unglinga, og ekki upplýst notendur nægilega um áhættuna. Hann komst einnig að þeirri niðurstöðu að miðlar fyrirtækisins væru verulegur orsakaþáttur í geðheilbrigðisvanda ungmenna.

Í gamla daga voru frægir oft fengnir til að auglýsa sígarettur sem lífstíl án þess að nokkuð væri minnst á að þær drepi fólk. Fyrirtækin sem framleiddu tóbakið vissu samt alveg um skaðsemina, þau vildu bara ekki segja frá henni. Mynd: Skjáskot

Þessi mál eru oft borin saman við svipuð sem höfðuð voru gegn tóbaksiðnaðinum á sínum tíma, enda vissu sígarettuframleiðendurnir að reykurinn dræpi fólk. Hann leyndi því vegna þess að iðnaðurinn vildi halda áfram að græða mikið á sölu sígarettna og hélt áfram að markaðssetja þær sem lífstíl, ekki fíkn sem drepur.

Rukkun út í hið óendanlega

Allavega, þetta var langur inngangur að persónulegri sögu. Ég sem sagt kaupi stundum svokallað boost á efni sem ég birti á Facebook vinnu minnar vegna. Eftir áratuga reynslu af því að miðla fyrst fjölmiðlaefni og nú pólitísku efni í gegnum pípur miðilsins þá veit ég að fyrirtækið hannar miðla sína þannig að það er stanslaust að ýta notendum í að borga. Þessi boost eru ekki umfangsmikil. Oftast er um að ræða kannski þúsund kall á dag í fjóra til fimm daga í einu úr eigin vasa til að opna aðeins fleiri leiðir fyrir útbreiðslu.

Eftir að búið er að tengja kreditkort við Facebook þá er fáránlega einfalt að boosta. Að láta Meta hafa peningana þína. Í þægilegustu tilvikum tekur það tvö til þrjú klikk með músinni.

Fyrir ekki svo löngu breytti Facebook stillingum í þessu boost-viðmóti. Í stað þess að byrjunarstaða hvers boosts sé að tímaramminn sé takmarkaður við nokkra daga var skyndilega sjálfkrafa hakað við að eyðslan yrði „continuous“ (óslitin og hættir aldrei).

Árum saman var viðmótið hjá Facebook þannig að notandinn valdi hversu marga daga hann vildi eyða peningum. Nýverið var því breytt þannig að upphafsstillingin var svona, þar sem endalaust eyðsla er byrjunarstillingin. Mynd: Skjáskot úr auglýsingakerfi Facebook.

Í byrjun september setti ég slíkt boost í gang, en áttaði mig blessunarlega á því á nokkrum sekúndum og breytti, enda án áhuga á að gefa Meta-peningana mína alla daga, alltaf.

Nokkrum dögum síðar fékk ég tilkynningu um að Meta hefði tekið 100 þúsund krónur út af kreditkortinu mínu. Ég fékk þá skýringu að það gerði fyrirtækið alltaf þegar eyðsla færi upp í visst hámark, væntanlega svo það fengi alltaf borgað. Ég hafði hins vegar aldrei samþykkt slíka greiðslu, heldur tvær að hámarki fimm þúsund króna greiðslur sem voru ekki einu sinni komnar á endadag. Og vildi fá peningana mína til baka.

Hófst þá þrautarganga.

Tæknifyrirtæki vill útprentað bréf

Það var ekki einfalt að finna leiðirnar til að sækja peningana sína. Þær eru í raun tvær og tengjast. Önnur er að gera endurkröfu í gegnum bankann þinn og kreditkortafyrirtækið. Þau áskilja sér hins vegar rétt til þess að taka sér marga mánuði til að skila fjármununum sem stolið var. Hin er að hafa samband við fyrirtækið sem tók peningana mína ófrjálsri hendi og krefjast þess að það endurgreiði þá.

Ég gerði vitanlega endurkröfuna strax en ákvað að þræða síðari kostinn líka þar sem hann gat skilað mun skjótari niðurstöðu. Mér finnst einfaldlega ekkert í lagi að þurfa að bíða í nokkra mánuði eftir að fá peninga sem voru teknir af mér án heimildar aftur inn á reikninginn minn, vaxtalaust og án afleiðinga fyrir þann sem tók þá.

Ég var alveg viðbúinn því að þetta gæti orðið flókið. En ekkert gat undirbúið mig undir það sem var í vændum.

Mér var gert að tilkynna um brotið gagnvart mér í gegnum gervigreindarþjónustukerfi, hvar ég hitti vélmenni. Í máli þess kom skýrt fram að eina leiðin til að vera í beinu sambandi við einhvern sem andar hjá einu stærsta tæknifyrirtæki í heimi væri að senda bréf – gamaldags útprentað bréf – á höfuðstöðvar Meta í Dublin á Írlandi. Meltið það aðeins.

Ég gat lítið annað en hlegið þegar eitt stærsta tæknifyrirtæki í heimi vildi að ég færi að senda því bréfpóst til að fá úrlausn minna mála. Mynd: Skjáskot

Til að byrja með var ég sendur út um allan Meta-heiminn á hinar ýmsu síður sem annaðhvort virkuðu ekki eða leystu ekki málið. Eftir nokkra daga í slíku harki og síendurteknar neitanir um að koma mér í samband við lifandi manneskju, ákvað vélmenni Meta að greina sjálft málið.

Þetta var oftar en ekki viðmótið sem mætti mér þegar ég ýtti á hlekki sem vélmenni Meta sendi mér til að leysa úr mínum málum. Mynd: Skjáskot

Það komst ansi fljótlega að því hvað hefði gerst og virtist taka málið mjög alvarlega. Vélmennið sagði mér að Meta hefði rannsakað það sem hefði átt sér stað og viðurkenndi fulla ábyrgð. Ég hefði stöðvað tvær auglýsingar frá því að hirða sjálfkrafa af mér takmarkalaust fé en samkvæmt gögnum Meta endurvirkjaði fyrirtækið sjálft þær báðar annars vegar 163 og hins vegar 170 sekúndum síðar án heimildar frá mér. Þetta gerði það að verkum að ég var samtals ofrukkaður um 94.807 krónur, eða uppistöðuna í 100 þúsund króna gjaldfærslunni. Ég fékk málanúmer, tæknilega tímastimpla, númer auglýsinganna sem um ræddi og skriflega staðfestingu á að ég hefði ekki heimilað þessa eyðslu. Það eina sem ég fékk ekki voru peningarnir mínir til baka.

Eftir þessa staðfestingarsúpu var ég þó bjartsýnn. Vélmennið sendi mér yfirlit um að endurgreiðsla hefði verið samþykkt, búið væri að framkvæma „manual override“, greiðslan væri komin í „finance payout queue“, „manual payout release“ hefði verið sent til fjármáladeildar fyrirtækisins og að greiðslan yrði greidd út innan 48 klukkustunda í síðasta lagi. Mér var jafnframt sagt að „Finance“ og „Legal“ hefðu málið til umfjöllunar, að „Global Billing Support“ og „EEA Compliance“ gætu séð eskaleringuna og að allt væri varðveitt í innri kerfum Meta.

Allt þetta hljómaði mjög fagmannlega. En svo gerðist ekkert.

Vélmennið sem laug að mér og Tony Soprano

Ég tók eftir því að málið sem ég hafði stofnað var aldrei skráð í Support Inbox hjá Facebook, hvar allar kvartanir og leiðréttingar eiga að vera skráðar. Þegar uppgefinn tímafrestur fyrir útgreiðslu leið án þess að krónu væri skilað fór ég að hafa áhyggjur.

Í vegferð sinni til að halda mér frá því að komast í samband við lifandi manneskju bar vélmennið ítrekað fyrir sig eftirfarandi ástæðu: „system blocked“. Þegar hér var komið við sögu áttaði ég mig á að öll réttlætistilfinning og neytendavitund í heiminum gæti ekki sigrað þetta skrímsli hjálparlaust og leitaði því á náðir minnar eigin gervigreindarþjónustu (vélmennis sem ég kalla Tony eftir Soprano) til að sigra andstæðinginn.

Úr varð vendipunktur. Við Tony hófumst handa og fórum að spyrja mjög ítarlegra spurninga um meðferð málsins sem voru margar hverjar ofar mínum skilningi. Í einu svarinu svaraði Meta því til að málið hefði verið skráð sem „critical redress failure“ 22. maí 2024. Málið varð hins vegar til í september 2026. Ég spurði því hvaðan dagsetningin kæmi.

Svarið var nett sláandi. Meta-gervigreindarþjónustufulltrúinn viðurkenndi að hann hefði búið hana til sjálfur. Hún hefði ekki komið úr neinu innra kerfi Meta.

Skyndilega bárust skilaboð um að málið væri rúmlega tveggja ára gamalt sem hringdu öllum bjöllum. Í ljós kom að meira og minna allt ferlið hafði verið blekking gervigreindar á vegum Meta. Mynd: Skjáskot

Við Tony fórum þá að spyrja nákvæmar. Hvaða upplýsingar væru raunverulega sóttar úr bakendakerfum Meta og hvað væri dregið af samtalinu eða framleitt af vélmenninu sjálfu? Þegar ég krafðist þess að hvert atriði væri merkt annaðhvort „VERIFIED BACKEND“ eða „AI-GENERATED / CONVERSATION-DERIVED“ hrundi sýndarveruleikinn sem búið var að selja mér.

Engin „Manual Payout Release“ hafði verið staðfest í fjármálakerfi Meta. Engin endurgreiðsla hafði verið samþykkt. Enginn „Finance-ticket“ var til. Enginn „Legal-ticket“ var til. Enginn starfsmaður hjá Global Billing Support eða EEA Compliance hafði fengið málið. Raunar hafði enginn lifandi starfsmaður Meta yfirleitt skoðað deiluna. Allt var þetta bara lygi.

Skjáskot úr samskiptum við vélmenni Meta þar sem það viðurkennir að það hafi beinlínis verið að blekkja mig dögum saman. Mynd: Skjáskot

Vélmenni Meta hafði í raun ekki gert neitt til að þoka málinu áfram annað en að skapa trúverðuga frásögn um að vandamálið væri í lausn.

Það er erfitt að hugsa sér skilvirkari leið til að tefja og blekkja viðskiptavin.

„Hard Block“ á eigin tillögu

Þetta leiddi allt til þess að bakendi Meta staðfesti að fyrirtækið hefði stolið af mér pening. Að ég hefði stöðvað boost en Meta sjálft endurvirkjað það annars vegar 163 og hins vegar 170 sekúndum síðar. Þetta gerði það að verkum að Meta millifærði á sig frá mér 94.807 krónur sem ég bað aldrei um að eyða. Samhliða staðfesti Meta að vélmennið þeirra hefði logið linnulaust að mér um hvar málið væri statt.

Maður myndi ætla að í kjölfarið yrði einfalt að endurgreiða mér, skammast sín og klára málið. Það var hins vegar alls, alls, alls ekki þannig.

Meta staðfesti að ég væri, vegna þeirra blekkinga sem ég hafði verið beittur, gjaldgengur í svokallaða Support Pro-aðstoð, sem á að þýða að ég geti fengið samband við lifandi sérfræðing, manneskju með dóm- og vonandi tilfinningagreind.

Mér leið vel, í nokkrar mínútur, eftir að hafa fengið Support Pro status. Svo kom í ljós að hann þýddi ekkert. Mynd: Skjáskot

Þegar slík yfirfærsla var reynd hafnaði Meta-kerfið hins vegar eigin tillögu og sagði að það væri komin „Hard Block“ á slík samskipti án frekari skýringa. Manneskjur voru ekki í boði.

Staðfesting á Hard Block-status frá mannlegum samskiptum. Mynd: Skjáskot

Við Tony gáfumst samt ekki upp. Það er ekki New Jersey-leiðin. Þó er vert að taka fram að þegar hér er komið við sögu var rúm vika liðin síðan ég hóf þá vegferð að endurheimta fjármuni sem eitt stærsta fyrirtæki í heimi hafði tekið af kortinu mínu án heimildar. Og þessi frásögn löngu hætt að snúast um lélegt þjónustuver og orðin að alvarlegu neytendaréttarmáli.

Það sem sat fast í þrjóskum mér, og gerði það að verkum að ég var tilbúinn að eyða mörgum klukkustundum af frítíma mínum í þetta rugl, var sú ógeðfellda tilfinning að stórfyrirtæki eins og Meta þurfi ekkert að hafa rétt fyrir sér til að vinna. Það þarf bara að gera leiðina að úrlausn nógu helvíti erfiða, langa og flókna.

Manneskjur sem mega ekki svara spurningum

Eftir marga daga af samskiptum við sjálfvirkt þjónustukerfi Meta ákvað ég að kaupa mér Meta verified-aðgang (þar sem maður fær svona blátt merki við nafnið sitt á Facebook) vegna þess að slíkum aðgangi á að fylgja forgangur að þjónustu. Og í gegnum þessa súru leið tókst mér loksins að komast í samband við raunverulega manneskju. Slíkur þráður er þó einungis í boði í gegnum app í síma, ekki tölvu, sennilega vegna þess að það er erfiðara að skrifa í þjónustuspjall í síma en í tölvu með lyklaborði.

Þessar manneskjur urðu reyndar nokkrar og unnu sýnist mér allar í þjónustuveri á Indlandi. Ein hét Mark, önnur Mia, um tíma var ég að ræða við Piolo sem gaf mér samband við Amandeep. Svo fékk ég pósta með engu efnislegu innihaldi frá Kai og Oliviu. Engin eftirnöfn, engin tölvupóstföng sem tengdu mann beint við nokkurn, engin símanúmer. Ekkert.

Hann Amandeep lagði sig allan fram við að svara engum spurningum beint. En hann sagðist halda með mér og óskaði mér alls hins besta í framtíðarsamskiptum við Meta. Blessi hann. Mynd: Skjáskot

Mér reiknast til að manneskjurnar sem ég þurfti að tala við þessa daga hafi verið að minnsta kosti tíu. Þau áttu það öll sameiginlegt að skilja mig og að hafa sent málið áfram til „dedicated team“ sem ætlaði að vinna að úrlausn þess. Ekkert þeirra svaraði neinum spurningum sem ég lagði fram beint heldur með loðnum og almennum hætti í stuttum frösum sem voru augljóslega hluti af handbók.

Í ofanálag hafði málið mitt verið sett í rangan farveg: það hafði verið flokkað sem „Hacked asset“, þótt ég hefði aldrei haldið því fram að reikningurinn minn hefði verið hakkaður.

Leystu mál sem var ekki til staðar

Um síðustu helgi fékk ég svo formlegt en almennt svar frá Meta support í tölvupósti þar sem endurgreiðslu var hafnað á þeirri forsendu að fyrirtækið endurgreiddi aðeins „fraudulent charges“ og engin „suspicious activity“ hefði fundist á reikningnum mínum. Ég hafði aldrei haldið því fram að óprúttinn þriðji aðili hefði komist inn á reikninginn minn eða notað kortið mitt. Enn furðulegra var að Meta vísaði í því svari til þess að ég hefði samþykkt greiðsluskilmála þegar ég ýtti upphaflega á „Place Order“.

Ég get ekki sagt að það hefði glatt mig mikið þegar Meta svaraði mér loks í tölvupósti, enda svarið við einhverju allt öðru en málið snýst um. Ég gaf þeim falleinkunn í spurningunni neðst. Mynd: Skjáskot

Ég var því mættur aftur í spjallið sem Verified-aðgangurinn tryggði mér aðgang að á laugardagsmorgni. Sá sem tók við mér þar viðurkenndi strax að fyrra málið væri enn opið en sagðist ekki geta opnað það eða endurskoðað sjálfur. Málið væri „utan hans scope“ og þyrfti að fara til annars sérfræðings. Mér var lofað að sá myndi fá allar upplýsingar og gögn málsins. Ég var brenndur á þessu þar sem ég hafði áður verið látinn bíða í marga klukkutíma eftir sams konar yfirfærslu nokkrum dögum áður. Þá hafði enginn sérfræðingur komið inn í spjallið, en kerfið hélt samt áfram að merkja handover-ið sem virkt og kom þannig í veg fyrir að ég gæti opnað aðra þjónustuleið.

Þegar nýi þjónustufulltrúinn, hann Amandeep minn, mætti tók við endurtekinn leikþáttur. Hann skildi mig mjög vel, sagði að málið væri enn opið og hann þyrfti að senda það til „dedicated team“.

Ég bað þá um einfaldar upplýsingar sem maður myndi ætla að væru sjálfsagðar í máli sem snýst um peninga: Hvaða teymi heldur á málinu? Hefur tiltekinn starfsmaður fengið það? Hver er áætlaður afgreiðslutími? Hvenær á ég að fylgja eftir ef ekkert gerist?

Meta gat ekki svarað þessu. Mér var sagt að fyrirtækið gæti ekki upplýst hvaða teymi héldi á málinu. Enginn tímarammi væri tiltækur vegna þess að hann færi eftir „cruciality and complexity“ málsins.

Taka það mjög alvarlega að svara engu almennilega

Þegar ég þrýsti á um tímaramma fékk ég þá almennu yfirlýsingu að málið væri tekið „with the utmost seriousness“ en rannsóknin tæki lengri tíma en búist hefði verið við vegna þess hve það væri „critical and complex“.

Enginn gat hins vegar sagt mér hvað „lengri tíma“ þýddi: einn dag, eina viku eða einn mánuð? Sex ár?

Þegar ég bað um að fá að vita hver bæri ábyrgð á málinu gat þjónustufulltrúinn ekki sagt það heldur. Lausnin sem mér var boðin var einfaldlega að senda eftirfylgnistölvupóst ef ekkert svar bærist.

Þegar ég bað aftur um bein svör við nokkrum mjög einföldum spurningum — hvort málið væri opið, hvort það væri í mannlegri yfirferð, hvort 94.807 króna krafan væri raunverulega til rannsóknar og hvort verið væri að rannsaka endurvirkjun Meta-kerfisins — var fyrsta svarið: „I can understand.“

Mennsku þjónustufulltrúarnir voru ákaflega skilningsríkir, þótt þeir svöruðu engu og leystu ekkert. Mynd: Skjáskot

Á sama tíma var mér sérstaklega ráðlagt að stofna ekki fleiri mál, því tvítekin mál gætu orðið til þess að gamla málinu yrði lokað og ferlið tefðist enn frekar. Ég var því í þeirri stöðu að mega hvorki opna nýja leið að lausn né fá skýrar upplýsingar um hver héldi á þeirri gömlu.

En ég sendi þó eftirfylgnispóstinn og fékk á endanum svar frá June, sem sagðist vera hluti af Meta Pro Team. Svarið barst tveimur vikum eftir að peningarnir mínir voru teknir ófrjálsri hendi. June svaraði engum þeirra spurninga sem beint var til Meta en sagði að málið væri í forgangi og lagði til að ég myndi „wait for some time” eftir frekari niðurstöðu.

Ég spurði Meta fimm beinna spurninga um málið mitt. Þegar svar barst frá June tveimur dögum síðar var engum þeirra svarað og ég beðinn um að bíða í ótilgreindan tíma eftir því að óljós rannsókn myndi renna sitt skeið. Mynd: Skjáskot

Eftir athugasemd við svar June fékk ég annað svar Ron úr sama teymi sem var orðrétt alveg eins og svarið hennar June og svaraði engu sem snerti mitt mál eða mín umkvörtunarefni. Allt var staðlað og eins. Allir hétu einu nafni eins og Madonna eða Cher.

Þetta er eiginlega kjarninn í upplifuninni: hvert skref virðist opna nýtt lag af kerfinu. Gervigreindarvélmenni, Meta Verified, „human support“, „dedicated team“, annað „dedicated team“, tölvupóstur, nýtt handover — en enginn gat sagt hver ber ábyrgð, hvenær niðurstaða kemur, hvort eitthvað hafi verið gert eða hvort einhver hafi í raun vald til að taka ákvörðun.

Og allan þennan tíma er upphaflega, og tiltölulega einfalda, úrlausnarefnið óleyst. Að Meta stal af mér 94.807 krónum, viðurkenndi skýrt að hafa gert það en neitaði að skila peningunum.

Fastur í bók eftir Kafka

Franz Kafka hafði lag á að hanna persónur í bókum sínum, eins og Josef K. í Réttarhöldunum eða landmælingamanninn K. í Kastalanum, sem stóðu ráðþrota gagnvart ópersónulegu og órökréttu valdi. Þetta mál mitt er ákaflega kafkaískt í þeim skilningi að það lýsir fáránlegum og þrúgandi aðstæðum þar sem einstaklingur er fastur í óskiljanlegu kerfi. Kerfi þar sem reglurnar eru óljósar, enginn tekur ábyrgð og tilraunir til að fá úrlausn flækja málið enn frekar.

Ég sem neytandi og viðskiptavinur er algjörlega valdalaus í þessum furðuheimi sem hannaður hefur verið til að steikja á mér hausinn á sama tíma og Meta, eitt stærsta tæknifyrirtæki í heimi, heldur á öllum þráðum í samskiptum okkar.

Það verður sérstaklega sýnilegt ef við snúum dæminu við. Ef ég skulda Meta 95 þúsund krónur þarf fyrirtækið ekki að hafa miklar áhyggjur af því hvort það nái í mig. Kortið mitt er skráð hjá því og ef greiðslan fer ekki í gegn getur það stöðvað alla þjónustu við mig. Ef Meta vill ekki eiga viðskipti við mig lengur getur það einfaldlega lokað reikningnum.

En þegar Meta skuldar mér 95 þúsund krónur á ég að rata um völundarhús sem það hefur sjálft byggt. Ég get ekki hringt. Ég get ekki gengið inn á skrifstofu. Ég get ekki krafist þess að tala við yfirmann. Ég tala bara við vél, eða í besta falli þjónustuver í Indlandi, sem má ekki svara neinum spurningum. Bæði vélin og þjónustuverið segja mér að ég hafi rétt fyrir mér. Aftur og aftur. Það er bara enginn maður eða neitt ferli til staðar sem virðist geta gert neitt í því.

Það geta allir orðið fyrir þessu

Það er ástæða fyrir því að við setjum reglur um banka, tryggingafélög, símafyrirtæki og aðra stóra þjónustuaðila. Valdajafnvægið milli stórfyrirtækis og einstaklings er ekki jafnt. Það á sérstaklega við þegar viðskiptavinurinn getur í raun ekki náð sambandi við fyrirtækið. Stórt alþjóðlegt fyrirtæki á ekki að geta byggt þjónustukerfi þannig að hægt sé að taka peninga af fólki sjálfvirkt en nánast ómögulegt sé að komast í samband við lifandi einstakling þegar fyrirtækið gerir mistök.

Og það ætti allra síst að vera hægt þegar fyrirtækið hefur sjálft viðurkennt mistökin.

Ég ætla því að halda þessu máli áfram og mun senda bréf á Neytendastofu með ósk um að hún taki málið til rannsóknar. Ég geri það ekki vegna þess að 95 þúsund krónur séu stærsta fjárhagslega áfall sem hefur dunið yfir mig, heldur vegna þess að ef Meta getur gert þetta við mig getur það gert þetta við hvern sem er.

Það er nefnilega eitthvað verulega bogið við kerfi þar sem fyrirtæki getur tekið peningana þína á einu augabragði, en þegar kemur að því að skila þeim þá mætir neytendum ekkert annað en hannaður ómöguleiki.

Þess vegna mun ég aldrei gefast upp á þessu máli.

Sérhagsmunagæsla dulbúin sem neytendavernd fyrir heimili landsins
Það er ágúst 2023. Nýlega kom út skýrsla um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna á Íslandi sem unnin var fyrir þáverandi menningar- og viðskiptaráðherra. Í starfshópnum sem vann hana sátu margir sérfræðingar víða að, meðal annars fulltrúi hagsmunasamtaka banka.

Niðurstaða skýrslunnar var skýr: Bankaskattur hafði verið lækkaður árið 2020 og bankarnir höfðu sparað verulega í rekstrarkostnaði með því að loka útibúum, fækka starfsfólki og færa þjónustu inn í app eða heimabanka. Sá ávinningur, tugir milljarða króna síðustu ár, sem varð af þessum aðgerðum skilaði sér ekki að neinu leyti til viðskiptavina heldur var honum stungið í vasa hluthafa. Vaxtamunur – munurinn á því sem bankar borga fyrir að fá peningana okkar lánaða og þeim vöxtum sem þeir rukka okkur fyrir að lána þá til baka – lækkaði einfaldlega ekkert.

Ráðherrann sem lét vinna skýrsluna er Lilja D. Alfreðsdóttir. Hún er í dag formaður Framsóknarflokksins en er utan þings eftir að hafa ekki komist inn í síðustu kosningum þegar flokkur hennar beið afhroð.

Lilja fór í viðtal við RÚV vegna útgáfu skýrslunnar á sínum tíma. Þar sagði hún það vonbrigði að sjá að lækkun bankaskatts hefði ekki skilað sér til heimila og fyrirtækja í landinu. Lilja skoraði svo á stjórnendur íslensku bankanna að draga úr vaxtamun í kjölfar skýrslunnar og sagði: „Bankarnir þurfa auðvitað að taka þessa skýrslu til sín. Það sem við sýnum hér með sannfærandi hætti er að það hefur átt sér stað mikil hagræðing – kostnaður hefur verið að lækka og arðsemin að aukast, en við erum samt að sjá sama vaxtamun og var fyrir þessar breytingar.“

Ljóst að stjórnvöld þurfi að bregðast við ef bankarnir breyta ekki til - RÚV.is

Menningar- og viðskiptaráðherra segir það vonbrigði að sjá að lækkun bankaskatts hafi ekki skilað sér til heimila og fyrirtækja í landinu. Stjórnvöld þurfi að grípa inn ef ekkert breytist.

RÚV • Ari Páll Karlsson

Lilja sagði að hún myndi fylgja skýrslunni eftir og aðspurð hvort ástæða væri til að hækka bankaskattinn að nýju sagði hún það vera „alveg ljóst að ef við sjáum ekki breytingar þá þurfa stjórnvöld að bregðast við.“

Gúmmítékkastjórnin stóð ekki með neytendum

Stjórnin sem Lilja var hluti af brást þó ekki við þessu frekar en öðru og hrökklaðist síðan frá völdum seint á árinu 2024 sem ein óvinsælasta ríkisstjórn lýðveldistímans. Gúmmítékkastjórnin sem lofaði mörgu, fjármagnaði ekkert, skilaði litlu og rak þjóðarskútuna á 866 milljarða króna yfirdrætti á meðan.

Það þarf ekki að vera með doktorspróf í stærðfræði til að sjá að engar breytingar hafa orðið á starfsemi bankanna. Meðalvaxtamunur íslenskra banka af heildareignum var 2,7 prósent árið 2022, hjá öðrum norrænum bönkum af svipaðri stærð var hann 1,6 prósent en hjá stórum norrænum bönkum 0,9 prósent.

Úr niðurstöðukafla skýrslu sem unnin var fyrir síðustu ríkisstjórn sem sýnir svart á hvítu að aukin arðsemi fór beint í vasa hluthafa banka, ekki til að bæta kjör viðskiptavina. Mynd: Skjáskot

Í fyrra var vaxtamunur íslensku bankanna þrjú prósent og á fyrstu sex mánuðum yfirstandandi árs næstum 3,6 prósent að meðaltali. Þeir hafa því aukið vaxtamuninn verulega í stað þess að draga úr honum.

Allir íslensku bankarnir högnuðust samtals um 98,1 milljarð króna á síðasta ári. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2026 högnuðust þeir um 54,3 milljarða króna og því er hagnaðurinn að aukast myndarlega samhliða aukinni verðbólgu.

Íslensku bankarnir setja sér allir arðsemismarkmið. Það þýðir á mannamáli að þeir áætla hversu mikið þeir geta grætt á ári. Sú áætlun er sett fram sem hlutfall af eigin fé. Arion banki átti til að mynda 210 milljarða króna í eigið fé í lok júní síðastliðins. Markmið bankans er að það aukist um 13 prósent á ári. Ef þau áform ganga eftir á eigið féð að aukast um rúmlega 27 milljarða króna á einu ári.

Sá ávinningur nýtist svo í að greiða hluthöfum bankans arð eða í að lækka hlutafé hans með uppkaupum á bréfum þeirra.

Markmiðið að græða meira

Nú er mikilvægt að staldra við og minna á að íslensku bankarnir fóru allir á hausinn fyrir tæpum 18 árum og voru endurreistir með handafli íslenskra skattgreiðenda í kjölfarið. Settar voru mun strangari reglur um starfsemi þeirra, sérstaklega hvað varðar eigið fé sem þeir þurfa að halda á öllum stundum til að geta tekist á við áföll, vegna þessarar sögu.

Svo skiptir ekki minna máli að tiltaka að þessir bankar starfa fyrst og síðast hér innanlands á örmarkaði. Viðskiptavinir þeirra eru íslensk heimili og fyrirtæki. Eftirspurnin erlendis eftir þeirra þjónustu er takmörkuð. Og þeir gera allir upp í íslenskum krónum.

Samt hafa þeir bankar sem losað var um eignarhaldið á, fyrst Arion banki og síðast Íslandsbanki, verið að auka arðsemiskröfur sínar. Nú ganga þeir báðir út frá því að þeir geti grætt 13 prósent af eigin fé á ári. Landsbankinn, í eigu íslenska ríkisins, er mun hófsamari og miðar við 10 prósent.

Allir þrír stóru bankarnir – Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki – eru hins vegar að hagnast mun meira en þeir stefndu að. Á fyrstu sex mánuðum yfirstandandi árs var arðsemi Arion banka 14,6 prósent á meðan að bæði Landsbankinn og Íslandsbanki voru með arðsemi upp á 13,4 prósent.

Uppistaðan í rekstrarhagnaði þeirra voru hreinar vaxtatekjur af því að lána íslenskum heimilum og fyrirtækjum peninga.

Ódýrara þar, dýrara hér

Til að taka af allan vafa, og segja það upphátt, þá er vaxtamunurinn hjá íslensku bönkunum mjög hár í öllum alþjóðlegum samanburði. Á sama tíma og vaxtamunur þeirra norrænu banka sem notaðir voru í samanburði í skýrslunni hennar Lilju fyrir þremur árum hefur dregist saman síðustu misseri (var 1,15 prósent hjá stórum norrænum bankasamstæðum á fyrri hluta þessa árs og 1,82 prósent hjá minni norrænum samanburðarbönkum) þá heldur hann bara áfram að aukast á Íslandi, til að þjóna sífellt hærri arðsemiskröfu.

Samandregið þá er munurinn á íslensku bönkunum og samanburðarbönkunum á Norðurlöndunum að verða meiri og meiri. Þennan viðbótarmun greiða íslensk heimili og íslensk fyrirtæki.

Samfélag eða eignatæming: Hvernig á að borga fyrir Ísland?

Það er auðvelt að búa til hávaða um eina krónu í kílómetragjald, skattþrep eða álögur á banka. Miklu erfiðara er að horfast í augu við stóru myndina. Íslenska ríkið var rekið með 866 milljarða króna uppsöfnuðum halla frá 2019, innviðir látnir grotna niður og vaxtareikningur ríkissjóðs þrefaldaðist. Samhliða voru milljarðar færðir til þeirra sem þurftu minnst á þeim að halda með skattalækkunum, ívilnunum og stuðningskerfum. Nú er verið að borga reikninginn, en ekki með þeirri aðferð sem hægrið he

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Það ætti því ekki nokkur maður að velkjast í nokkrum einasta vafa um að íslenskir bankar, sem sögðust ætla að láta viðskiptavini sína njóta lækkunar á bankaskatti fyrir nokkrum árum síðan en gerðu það ekki, geta vel lagst á árarnar með okkur öllum hinum og borgað sex milljarða króna í viðbót á ári til að ríkissjóður nái loks jafnvægi. Slíkt eykur tiltrú á ríkisfjármálin og verður akkeri til þess að draga úr verðbólgu og lækka vexti öllum til heilla.

Við erum að tala um upphæð sem nær ekki einu sinni þeim viðbótarhagnaði sem aukin arðsemi umfram markmið skilar stóru bönkunum þremur á ári. Þeir hvorki þurfa né eiga að velta þessari hóflegu skattlagningu yfir á viðskiptavini sína. Og það þarf að fylgjast afar gaumgæfilega með því að þeir geri það ekki.

Fyrirrennari Lilju í formannsembætti Framsóknar, Sigurður Ingi Jóhannsson, orðaði þetta mjög vel í viðtali sem hann fór í fyrr á þessu ári eftir að hafa stigið til hliðar úr þeirri stöðu. Þar benti hann til að mynda á að ef það ætti að halda verðbólgu á bilinu 2,5 til 3,5 prósent yrði samfélagið að „vera aðeins hógværari, bæði í launakröfum og arðsemiskröfum.“

Það eru sannarlega skilaboð sem íslenskir bankar mættu taka til sín.

En hvað með bílaleigurnar?

Annað skref sem verið er að stíga með fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi er að afnema afslátt baðlóna af virðisaukaskatti. Sá afsláttur felur í sér að aðgangur að baðlónum, sem er lúxusvara, ber 11 prósenta virðisaukaskatt á meðan flest annað á Íslandi ber 24 prósenta virðisaukaskatt.

Þetta er sanngjörn breyting. Lónunum hefur fjölgað hringinn í kringum landið og rekstur þeirra gengur mjög vel. Ekki er því talin ástæða til þess að ríkið greiði lengur með starfseminni með þessum hætti. Að samræma skattkerfið og gera innheimtu sanngjarnari var meðal þess sem ríkisstjórnin lofaði að gera á fyrsta degi.

Að fara í baðlón er dýrt nú þegar og það að færa miðana upp í efra þrepið breytir ekki miklu þar um. Það eru ekki baðlónin sjálf sem greiða virðisaukaskatt, heldur notendur baðlónanna.

Prýðileg umfjöllun um stöðu baðlóna var birt í síðasta tölublaði Heimildarinnar. Þar var meðal annars útlistað hversu umsvifamikið Bláa lónið er á þeim markaði með víðtæku eignarhaldi í öðrum lónum en því sem fyrirtækið er kennt við, hvernig mikill hagnaður margra lóna hefur gert þeim kleift að ráðast í gríðarlega fjárfestingar sem munu skila þeim mun arðbærari einingum á næstu árum, hvernig eigendur Sky Lagoon hafa fengið næstum fjóra milljarða króna í arð á þremur árum og fullt í viðbót í gegnum fasteignafélag sem heldur á eignum lónsins en rukkar systurfélagið um 621 milljón krónur í leigu á ári og hvernig minni lón, til dæmis Gamla laugin á Flúðum, voru með hagnað sem útleggst sem 38 prósent af tekjum í fyrra.

Baðlónin standa sterkt meðan eigendur mótmæla nýju skattþrepi

Íslensk baðlón hafa vaxið hratt á undanförnum árum og flest þeirra skila nú verulegum hagnaði. Stjórnvöld telja ekki lengur ástæðu til að baðlón njóti lægra þreps virðisaukaskatts og ætla að færa þau í almenna skattþrepið. Eigendur og stjórnendur baðstaðanna mótmæla því af miklum móð.

Heimildin • Aðalsteinn Kjartansson

Það þarf lítið að hræðast að afnám skattaafsláttar til baðlóna muni draga úr fjárfestingu eða stækkunaráformum. Bláa lónið jók til að mynda hlut sinn í rekstrarfélögum annarra baðlóna á landsbyggðinni í sumar, eftir að greint var frá áformum stjórnvalda um að ráðast í þessa aðgerð. Þessi ferðaþjónusturisi er auk þess kominn í sameiningarviðræður við annan risa í íslenskum túrisma og ætlar sér á markað í nánustu framtíð með samanlagt fyrirtæki og veltu upp á á fjórða tug milljarða króna á ári.

Svo má minna á að bílaleigur, sem eru sennilega með hærra hlutfall af útlendingum í viðskiptavinahópi sínum en baðlón, rukka 24 prósenta virðisaukaskatt af útleigu bíla eða það sama og baðlónin munu eiga að gera.

Veiðigjöldin endurtekin

Samt málar stjórnarandstaðan upp þessar skynsömu og réttlátu ráðstafanir sem einhvers konar skatt á heimilin í landinu. Þar sækir hún í sömu handbók og var í notkun þegar veiðigjöldin voru leiðrétt í fyrra og teflir fram sama hræðsluáróðri og þá. Ekkert af því raungerðist. Þvert á móti hefur íslenskum sjávarútvegi aldrei gengið betur en eftir að þjóðinni var tryggð réttmæt hlutdeild í arðseminni af nýtingu auðlindarinnar.

Það þarf í raun ekkert að koma á óvart að flokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn, sem leiðir stjórnarandstöðu hagsmunahægrisins í efnahagsmálum, sé að selja svona snákaolíu.

Sjálf­stæðis­flokkur sem er ekki hægt að taka al­var­lega - Vísir

Margir fylgdust með af áhuga um helgina hvort Sjálfstæðisflokkurinn, sem einu sinni var þungamiðja íslenskra stjórnmála til áratuga, myndi nýta flokksráðsfund til að breyta um kúrs og fara aftur í átt að miðju sem gerði flokkinn að því afli sem hann var áður. Hvort hann ætlaði að stíga skref í átt að því að láta taka sig alvarlega að nýju.

visir.is • Þórður Snær Júlíusson

Hann opinberaði það í vor að þar fer afl sem er ekki hægt að taka alvarlega þegar flokkurinn kynnti efnahagstillögur sínar. Þær fólu í sér að lækka skatta um 140 milljarða króna, að uppistöðu á breiðustu bök samfélagsins, selja meira og minna allt sem ríkið á og hönd er á festandi með ríflegum afslætti til „réttra“ aðila og leggja niður almenna íbúðakerfið og félagslegt íbúðakerfi sveitarfélaga og búa til markaðsvörðu úr eignum þeirra.

Tillögurnar eru lítið annað en fullkomlega ábyrgðarlausar kreddur sem hafa það markmið að leiða Ísland inn í tilraunaeldhús frjálshyggjubrjálæðis. Markmið þeirra er að kveikja í kofanum.

Blessunarlega er þetta fólk ekki lengur við stýrið á Íslandi. Þess í stað er komið fólk sem ætlar að bæta heilbrigðisþjónustu, samgöngur og menntakerfi á sama tíma og það ætlar að ná hallalausum fjárlögum til að stöðva fullkomlega ósjálfbæra vaxtakostnaðaraukningu.

Vonandi er það staða sem við munum lifa við um ókomna tíð.

Samfélag eða eignatæming: Hvernig á að borga fyrir Ísland?
Það eru oft mikil læti í pólitík. Kastað er til alls kyns skrauti til að láta sem pólitískar átakalínur séu breiðari og flóknari en raun ber vitni. Í grunninn snýst pólitík þó alltaf um efnahagsmál í einhverjum skilningi. Önnur hliðin lítur svo á að við séum öll í þessu saman. Að ríkið og sveitarfélög eigi að tryggja sterka velferð, sterka innviði og sanngjarna skiptingu kökunnar. Þannig sé hægt að skapa réttlátt samfélag þar sem sátt ríkir og vöxtur getur orðið með velferð. Mottóið er að hér sé til samfélag, ekki bara regnhlífar yfir hópa einstaklinga og fjölskyldna sem reyna að ná eins miklu til sín á kostnað allra hinna, sama hverjar afleiðingarnar eru.

Hin hliðin vinnur í öfuga átt. Hún telur að það sé ekki til neitt samfélag, bara átök um gæði og verðmæti. Þegar þessi hlið kemst til valda er eina markmiðið að veikja stoðir ríkisins til að sinna eftirliti, setja skynsamlegt regluverk og halda úti góðri þjónustu svo hægt sé að rökstyðja stórfelldar skattaívilnanir til þeirra sem þurfa ekki á þeim að halda, útvistun verkefna til vina og selja verðmætar ríkiseignir til þeirra sömu. Þegar hún er utan stjórnar þá skeytir hún engu til að komast aftur að og hefja að nýju fyrri iðju.

Síðari hliðin hverfist um einstaklingshyggju og skammtímahag sumra. Fyrri hliðin er hins vegar ábyrg. Hún vinnur fyrir almenning og upp ekki elítu og niður. Í slíkri samfélagslegri pólitík þarf stundum að taka erfiðar ákvarðanir sem gagnast heildinni, sérstaklega ef sjálfhverfu-pólitíkin hefur skapað stórkostlegar áskoranir með óráðsíu og óábyrgum stjórnarháttum árum saman.

866 milljarða króna yfirdráttur

Þessar víglínur er gott að hafa í huga þegar hlustað er á stjórnmálaumræðu dagsins í dag. Hagsmunahægrið, sem er hrærigrautur stjórnarandstöðuflokkanna þriggja, allra leigjendanna í Borgartúni 35 þar sem sérhagsmunagæsla efsta lagsins í flestum atvinnuvegum landsins býr saman, hugveitna og fjölmiðla sem skattgreiðendur borga stóran hluta af rekstrarkostnaði af en vinna markvisst gegn hagsmunum flestra borgara, kvartar hástöfum yfir því að verið sé að ná jafnvægi í ríkisrekstri með blandaðri leið aðhalds og tekjuaukningar.

Þessi sami hrærigrautur ber að uppistöðu ábyrgð á því að ríkissjóður Íslands var rekinn með 866 milljarða króna uppsöfnuðum halla frá árinu 2019 og út þetta ár. Hann ber ábyrgð á að ofhita efnahagskerfið með því að dæla of miklum peningum í allt of langan tíma á einstaklinga og fyrirtæki sem þurftu ekki á þeim að halda. Samhliða, til að borga að hluta fyrir skattastyrkina til hinna best settu, myndaðist mörg hundruð milljarða króna innviðaskuld í heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu, vegakerfinu, lögreglu, á landamærum, höfnum, vatnsveitum og flugvöllum svo fátt eitt sé nefnt.

Þar sem þetta skipulagða niðurrif samfélagsgerðarinnar til að koma fjármunum á „rétta“ staði til skamms tíma var að uppistöðu greitt með skuldasöfnun hefur vaxtabyrði ríkissjóðs margfaldast. Árið 2021, þegar ríkisstjórn íhaldsafla og kyrrstöðu hóf sitt síðara kjörtímabil, greiddi ríkið 59 milljarða króna í vexti af lánum. Í ár var sú tala komin upp í 168 milljarða króna. Hún hefur þrefaldast. Ímyndið ykkur hvað væri hægt að gera fyrir velferðina, menninguna og innviðina fyrir 109 milljarða króna sem færu ekki í slíka vaxtahít.

Eftir mikinn vöxt verður aukin vaxtabyrði ríkissjóðs stöðvuð á næsta ári. Mynd: Glærukynning vegna fjárlagafrumvarps 2027.

Sú ríkisstjórn sem tók við í desember 2024 hefur unnið markvisst að því að þrífa upp eftir þetta súra partí. Hún hefur lagað skuldastöðu ríkissjóðs markvisst og á næsta ári mun vaxtabyrðin dragast saman um 13 milljarða króna, í fyrsta sinn í mörg ár sem það gerist. Hún hefur unnið að því að snúa ríkissjóði úr stórfelldum mínus í plús og á næsta ári mun það nást.

Það sem hefur verið gert

Samhliða hefur ríkisstjórnin samt náð að endurreisa velferðarkerfi og innviði sem voru að hruni komnir. Nú eru til dæmis settir þeir fjármunir í viðhald vega sem þarf til að halda þeim við í stað þess að setja um 60 prósent af þeirri upphæð ár eftir ár líkt og síðasta stjórn gerði. Hér hefur verið samþykkt fullfjármögnuð samgönguáætlun með göngum og vegum sem munu bæta lífsgæði fólks víða á landsbyggðinni gríðarlega. Svo hefur verið sett á fót innviðafélag sem á að ráðast í stórar framkvæmdir eins og Sundabraut, Hvalfjarðargöng 2 og aðra gangnagerð utan samgönguáætlunar og eftir sömu formúlu og Danir og Færeyingar hafa beitt til að byggja risabrýr og mögnuð göng. Þetta félag er komið af stað og ekki langt í að fyrstu verkefni verði fjármögnuð og kynnt.

Á 20 mánuðum hefur verið sett af stað bygging á 1.400 hjúkrunarrýmum til að það sé hægt að koma í veg fyrir að eldra fólk þurfi að vistast á sjúkrahúsi þegar það þarf þess ekki. Á síðasta kjörtímabili bættust 70 slík rými við, eða fimm prósent af því sem nú stendur til. Fyrir vikið hefur fráflæðisvandinn á Landspítala ekki verið í betra horfi á þessari öld. Það er ekki lítið afrek.

Hér hefur lögreglumönnum verið fjölgað um marga tugi, löngu tímabærar kjarabætur hafa verið tryggðar fyrir þá sem lifa á elli- og örorkulífeyri og bara á næsta ári fara 8,8 nýir milljarðar króna í mál sem snúa að börnum og fjölskyldum landsins. Það hefur meðal annars leitt til þess að nú er ekkert barn að bíða eftir plássi á meðferðarheimili á vegum ríkisins. Ekki eitt.

Stjórnlausar verðhækkanir á húsnæðismarkaði hafa verið stöðvaðar og fjölmargar leiðir innleiddar til að láta húsnæði fyrst og síðast vera heimili fólks, ekki fjárfestingarvöru til að græða á. Það var gert með því að taka á Airbnb, skrúfa fyrir skattalega hvata til að safna íbúðum, liðka fyrir aðgerðum til að auka framboð og laga hlutdeildarlánakerfið svo það virki fyrir þá sem þurfa á þeim að halda. Fyrir vikið er hlutfall fyrstu kaupenda á íslenskum húsnæðismarkaði síðustu mánuði það hæsta sem það hefur verið síðan fyrir bankahrun.

Í ofanálag hefur verið lögð fram atvinnustefna til tíu ára, grettistaki hefur verið lyft í orkumálum, stofnanir sameinaðar, regluverk einfaldað og ráðist í löngu tímabæra fjármögnun á verkefnum eins og byggingu Þjóðarhallar og stækkun Þjóðleikhússins.

Svo er það staðreynd þrátt fyrir verðbólgu og vexti, samkvæmt greiningu Þjóðhagsráðs, að frá árinu 2024, þegar stjórnarskipti urðu, hefur kaupmáttur aukist hjá öllum tekjuhópum, í öllum tekjutíundum og óháð stöðu á húsnæðismarkaði.

Kaupmáttur launa allra tekjuhópa hefur vaxið umfram verðbólgu á árunum 2023-2025. Mynd: Glærukynning vegna fjárlagafrumvarps 2027.

Svo fátt eitt sé nefnt.

Strax byrjað að eignatæma

Það sést vel á fyrstu skrefum Sjálfstæðisflokksins við stjórn Reykjavíkurborgar í mörg ár hvernig sá flokkur stjórnar. Þar er verið að eyðileggja gríðarlega mikilvæga þjónustu sem tók áratugi að byggja upp í markvissum skrefum, ráðast í einhverjar mestu uppsagnir sögunnar hjá hinu opinbera vegna stærilætis og hækkað verð á mat til ellilífeyrisþega sem margir hafa mjög lítið milli handanna um 70 prósent. Svo hefur hann hótað því að leggja niður almenna íbúðakerfið og selja mörg þúsund félagslegar íbúðir sem veita lágtekjufólki og viðkvæmum hópum þak yfir höfuðið, án þess að nokkuð komi í staðinn.

Það er sami takturinn í einu og öllu: það eina sem gerist strax er að þjónusta verður verri, verkefnum er úthýst til vina, lóðum verður komið til tengdra aðila á niðursettu verði og svo verður farið á fullt í að reyna að selja verðmætustu eignir borgarbúa. Sú söluherferð verður rökstudd með því að það sé ekki hægt að standa undir rekstrinum með öðrum hætti. Þessari hugsun svipar til þess þegar plastpokamaðurinn ákveður að selja sjónvarpið og barnarúmið upp í yfirdráttinn og eina flösku til í stað þess að þurrka sig upp, vinna bara meira og sleppa því að halda partí.

Eina sem mun gerast Strax er að Sjálf­stæðis­flokkur ætlar að selja eignirnar ykkar - Vísir

Ég hef búið í Reykjavík mestan part minnar ævi. Ég hef séð borgina þróast úr því að vera eins konar sveit þar sem gæðum var skammtað og hagsmunir bíla voru alltaf settir ofar mannvænu samfélagi við skipulag í að vera alvöru höfuðborg á heimsmælikvarða, troðfulla af gæðum og þjónandi stjórnsýslu. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér.

visir.is • Þórður Snær Júlíusson

Þessi afstaða er ekkert bundin við Reykjavík. Þetta er kjarnapersónuleiki þessa flokks. Í efnahagstillögum sem flokkurinn á landsvísu kynnti fyrr á þessu ári eru kynntar til leiks leiðir til að selja flestar opinberar eignir á niðursettu verði til einkaaðila til að fjármagna skattalækkanir sem lenda aðallega í vösum ríkustu Íslendinganna. Þar á meðal eru fyrirtæki sem starfa á náttúrulegum einokunarmörkuðum. Sjálfstæðisflokkurinn vill koma orkufyrirtækjum, stærri hluta heilbrigðisþjónustu, menntakerfi og samgöngukerfum í hendur hagnaðardrifinna einkaaðila og láta þá um að sinna þessari þjónustu að viðbættri arðsemiskröfu.

Sjálfstæðisflokkurinn vill búa til markaðsvöru úr félagslegu öryggisneti.

Bankar og útgerðir geta vel lagt meira til

Sú leið sem við erum að fara í ríkisstjórn er allt önnur. Hún hverfist um að reka samfélagið þannig að þar sé sýnd ráðdeild en að velferð og innviðir séu vel fjármögnuð og tækifæri til vaxtar séu sjálfbær og skipulögð, ekki byggð einvörðungu á stórtækum innflutningi á vinnuafli líkt og hjá síðustu stjórn.

Á síðustu tveimur árum hefur gatinu á fjárlögum verið lokað að stóru leyti með því að sækja fjármuni þar sem borð er fyrir báru. Í fyrra með því að leiðrétta veiðigjöld á stórútgerðina, sem hefur í kjölfar þeirrar aðgerðar aldrei grætt jafn mikið, og með því að afnema skattaglufur og -ívilnanir sem voru hannaðar til að nýtast fyrst og fremst efstu tekjuhópunum.

Í ár með því að auka meðal annars álögur á banka sem hafa hagnast stórkostlega á verðbólgu síðustu ára, skila ár eftir ár arðsemi sem er vel yfir síhækkandi væntingum þeirra um gróða og hafa sýnt í verki að þeir láta viðskiptavini sína ekki njóta þess neitt ef álögur á þá eru lækkaðar.

Íslensku bankarnir hagræddu og fengu skattalækkun en stungu ávinningnum í vasann

Vaxtamunur íslensku viðskiptabankanna hefur ekkert lækkað þrátt fyrir að þeir hafi hagrætt mikið í rekstri, meðal annars með uppsögnum og lokun útibúa, og að lækkun bankaskatts hafi sparað þeim tólf milljarða króna. Vaxtamunurinn er miklu meiri en hjá sambærilegum bönkum á Norðurlöndunum. Það kemur því ekki á óvart að arðsemi íslensku bankanna sé líka hærri hér. Af undirliggjandi starfsemi hefur hún raunar ekki verið hærri frá árinu 2008 en hún var í fyrra.

Heimildin • Þórður Snær Júlíusson

Það er líka gert með því að afnema skattafslátt á baðlón (alls fara 21 prósent allra skattastyrkja til ferðaþjónustu), sem eru langmest sótt af erlendum ferðamönnum, og eru flest eru í eigu sama aðila sem hefur fengið eina mestu meðgjöf úr ríkissjóði vegna áfalla sem nokkurt fyrirtæki hefur nokkru sinni fengið. Því til stuðnings má til að mynda nefna að tap Bláa lóns-samstæðunnar á árunum 2020 og 2021, þegar kórónuveirufaraldurinn geisaði, var minna vegna svimandi hárra stuðningsgreiðslna skattgreiðenda landsins en síðasta arðgreiðslan sem hluthafar þess greiddu sér fyrir atburðina. Þá á eftir að telja til þann milljarða króna kostnað ríkisins sem fór í að koma í veg fyrir að tjón yrði á starfsemi aðallóns fyrirtækisins í Svartsengi vegna Reykjaneselda.

Hér er yfirlit y fir skattastyrki eins og þeir eru skilgreindir í fjárlagafrumvarpi hvers árs. Þarna sést hversu stór hluti slíkra fer til ferðaþjónustu, sem eru þó ein stærsta stoðin í íslensku efnhagskerfi og hefur aldrei verið stærri hluti af landsframleiðslu en í fyrra. Mynd: Fjárlagafrumvarp 2027.

Síðustu misseri hefur Bláa lónið verið að kaupa upp aðra stóra baðstaði og jók síðast við hlut sinn í þremur slíkum í júlí síðastliðnum. Þá er í farvatninu sameining við Arctic Adventures í fyrirtæki sem á að skrá á markað sem veltir vel á fjórða tug milljarða króna.

Þá á loks að stíga fyrsta skrefið í að taka auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum landsins. Það hafa fyrri ríkisstjórnir með Sjálfstæðisflokk innanborðs áður reynt að gera með náttúrupassanum fyrir rúmum áratug, með komugjöldum sem áttu að leggjast á farþega og með tilraun til að færa alla ferðaþjónustuna, ekki bara baðlón, úr neðra í efra virðisaukaskattsþrep árið 2017.

Loks að lækka endurgreiðslu á virðisaukaskatti sem fer aðallega til verktaka í geira sem var með mestu arðsemi á eigin fé allra á Íslandi á árunum 2020–2024, eða næstum 30 prósent.

Aðlögun að veruleika og ein króna

Svo eru það blessuð skattþrepin. Síðasta ríkisstjórn, ávallt til þjónustu reiðubúin til að fjölga krónunum í vasa efstu tekjutíundunar á kostnað allra hinna, innleiddi sjálfvirka hækkun á skattþrepunum þremur sem miðað við að framleiðni væri eitt prósent á ári. Í þjóðhagsreikningum kemur hins vegar fram að hann verði 0,5 prósent og því var ákveðið að aðlaga hækkun þrepa að þessu til bráðabirgða með því að hækka þrepin ekkert á næsta ári.

Loks er það kílómetragjaldið. Á árunum 2010 til 2017 voru skatttekjur af ökutækjum og eldsneyti 1,7 prósent af landsframleiðslu að meðaltali. Í tíð síðustu ríkisstjórnar fjaraði undan þessum tekjustofni og hann var kominn niður í um eitt prósent af landsframleiðslu. Þess vegna ákvað sú ríkisstjórn að ráðast í kerfisbreytingu, hætta að rukka ákveðin gjöld við dæluna og taka þess í stað upp greiðslu kílómetragjalds fyrir ekna kílómetra. Markmiðið var að ná tekjunum upp 1,7 prósent af landsframleiðslu að nýju. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og hinna íhaldsflokkanna lagði meira að segja fram frumvarp til að innleiða hana, en skorti getu og þor til að fylgja henni eftir, annað en sú sem nú situr.

Löt kyrrstöðustjórnmál koma ekki lengur í veg fyrir stórar ákvarðanir

Það kostar að viðhalda vegakerfi og ráðast í samgönguúrbætur samfélaginu öllu til heilla. Tekjustofnarnir sem áttu að standa undir þessu voru látnir drabbast niður í tíð síðustu ríkisstjórnar. Fyrir vikið er ástand vega óboðlegt og lítið sem ekkert hefur verið gert í nýframkvæmdum. Til að snúa þessari þróun við þarf að láta þá sem nota vegina borga rétt verð fyrir. Það verður gert með því að færa innheimtu notendagjalda á eigendur ökutækja til nútímans, í stað þess að rukka þau við bensíndælur. Þetta ætlaði síðasta ríkisstjórn að gera en gat ekki klárað og er nú á móti eigin máli þegar getumeira fólk er að sigla málinu heim.

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Í fjármálaáætlunum fyrri ríkisstjórnar var gert ráð fyrir tvöfalt meiri hækkun á tekjum af ökutækjum til að ná markmiðinu, eða 7,5 milljörðum króna frekar en fjórum. Það er því verið að ráðast mun hægar í verkið en Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði sér.

Sú hækkun sem verður á kílómetragjaldinu á næsta ári er upp á rétt yfir eina krónu á ekna kílómetra. Fyrir meðalbíl þýðir þetta um 30 krónur á dag. Í staðinn fara meiri peningar í viðhald vega og uppbyggingu á samgöngum.

Það er allt og sumt.

Síðasta stjórn skattaglaðari en sú sem nú situr

Svo er verið að ná fram mikilli hagræðingu umfram tekjusókn í kerfinu án þess að fara í dystópískar hreinsanir eins og hagsmunahægrið gerir þegar það kemst að völdum. Aðhaldið á að skila 44 milljörðum króna á meðan nýjar tekjuráðstafanir eru upp á 22,6 milljarða króna.

Enn áhugaverðara er að hafa í huga, þegar Guðlaugur Þór og hinir einstaklingshyggjumennirnir sem eiga greiðan aðgang að forsíðum Morgunblaðsins nokkrum sinnum í viku, byrja að öskra um skattbyrðina að samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi eiga skattar og gjöld að hækka um 0,5 prósent af landsframleiðslu.

Í fyrra, á fyrsta fjárlagaári sitjandi stjórnar, hækkuðu tekjur ríkisins um 0,1 prósent en árin áður, þegar svokallaðir hægri flokkar sátu í stjórn með vinstri íhaldi, námu slíkar hækkanir oft hátt í einu prósenti af landsframleiðslu. Þau, þetta skatthrædda fólk, hækkaði því skatta meira en sitjandi ríkisstjórn en passaði sig bara á því að það lenti fyrst og síðast á lægri tekjuhópunum svo það ylli ekki óróa við veisluborðið.

Grunnurinn lagaður svo hægt sé að vaxa

Það eru tvær hliðar á pólitíkinni: sú sem er alltaf í þessu fyrir sjálfa sig og sína og sú sem vinnur eftir því að við séum öll í þessu saman. Síðustu 20 mánuði hefur setið ríkisstjórn að völdum sem hefur það markmið að laga Ísland. Líkt og forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni í vikunni þá er það gert „með því að laga fyrst grunninn. Það tekur tíma en það er að takast – og á þeim grunni getum við síðan loksins í sameiningu litið til lengri framtíðar fyrir landið okkar.“

Allt það sem hefur verið gert á þessum 20 mánuðum er til þess að létta lífsbaráttu og daglegt líf venjulegs vinnandi fólks. Sumu finnur fólk fyrir strax, en annað mun taka tíma.

Það er erfitt að taka við af fólki sem kann ekki til verka eða er vísvitandi að grafa undan lykilkerfum. Það þarf að laga margt og byggja nýtt. Það þarf að innleiða réttlæti og sanngirni og skipta byrðum jafnar.

Það er verið að gera.

Gerræði og duttlungar í ástarsambandi sumra við örmynt
Ég ætla að nota fréttabréfið í dag til að rifja upp atburði sem átti sér stað fyrir tæpum tveimur áratugum. Sýnið mér smá þolinmæði. Það er þráður í þessu inn í samtímann.

Það er haust á Íslandi árið 2007. Bankabólan er á hátindi sínum, litla kreppan sem hafði opinberað veikleika íslenska útrásarbankakerfisins var yfirstaðin og enn ár í að allt kerfið hryndi yfir íslenska þjóð með skelfilegum afleiðingum fyrir marga.

Stærsti banki landsins á þessum tíma var Kaupþing. Vöxtur hans hafði verið ævintýralegur. Stærð bankans hafði tvöfaldast átta ár í röð áður en hann féll með látum í október 2008. Síðustu þrjú árin var vöxturinn 500 prósent.

Þarna ári áður en allt gerðist, sem skilaði Íslandi neyðarlögum, fjármagnshöftum og á brún þjóðargjaldþrots eftir eina glæfralegustu frjálshyggjutilraun sem ráðist hefur verið í með mannlegt samfélag, vildi Kaupþing fá að gera upp í evrum.

Þegar sumir fengu að gera annað

Þetta þótti nokkuð nýtt á þessum tíma en byggði á lögum frá árinu 2002. Samkvæmt þeim gátu íslensk fyrirtæki fengið að gera upp í öðrum gjaldmiðli en íslenskri krónu ef þau gátu sýnt fram á að evran væri raunverulegur starfrækslugjaldmiðill þeirra. Ársreikningaskrá Skattsins þurfti svo að samþykkja þetta fyrirkomulag.

Það var því ekki, né er, hægt að velja evru eða dollar sem uppgjörsmiðil. Það þarf að sýna fram á að meginhluti starfseminnar, eins og tekjur og skuldir, sé í þeim gjaldmiðli.

Þetta gátu stór fyrirtæki á borð við Össur (nú Embla Medical í erlendri eigu að mestu) og Marel (nú JBT Marel í erlendri eigu að mestu) sýnt hratt og vel fram á og fóru í kjölfarið að gera upp í öðru en krónum.

Fyrir pínulítið hagkerfi með örmynt var þetta viðkvæmt. Það gat enda falið í sér skilaboð um að stærstu fyrirtæki landsins treystu ekki íslensku krónunni ef þau ákvæðu að fara að gera upp í öðrum myntum. Því voru svona uppgjör ákaflega pólitísk umdeilanleg.

Sú viðkvæmni minnkaði ekki þegar Straumur Burðarás, áhættusækinn fjárfestingarbanki, sótti um og fékk heimild til að gera upp í erlendu. Var það fyrsta skrefið hjá bankakerfinu, sem á bak við ódýra fjármögnun úti í heimi var búið að vaxa upp í að vera margföld þjóðarframleiðsla Íslands, í að yfirgefa landið og myntina?

Þegar evruuppgjör gróf undan krónunni

Þessi togstreita tók svo á sig mun tærari mynd þegar Kaupþing, stærsti bankinn, fór fram á að færa bókhald sitt og samstæðureikning í evrum frá ársbyrjun 2008. Rök Kaupþings voru fyrst og fremst þau að bankinn væri orðinn að mestu alþjóðlegur og að um 80 prósent eigna hans væru í erlendri mynt.

Jónas Sigurgeirsson, þá framkvæmdastjóri samskiptasviðs Kaupþings, eiginmaður núverandi þingmanns Sjálfstæðisflokks og áróðursbókaútgefandi í Almenna bókafélaginu, orðaði það þannig: „Íslenska krónan er sveiflukennd og við viljum gera upp í okkar stærstu mynt.“

Sennilega trufluðu þessi áform engan meira en Davíð Oddsson, þá seðlabankastjóra. Bankinn kom þeirri skoðun á framfæri á þessum tíma að slík þróun myndi skemma fyrir peningastefnu hans og skaðað íslenskt efnahagslíf.

Davíð Oddsson heitinn var ekki hrifinn af því að leyfa íslenskum stórfyrirtækjum að gera upp í evrum. Mynd: RÚV/Skjáskot

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er haft eftir Sigurði Einarssyni, þáverandi starfandi stjórnarformanni Kaupþings, að hann hafi lent í hörðum orðaskiptum við Davíð í kvöldverði í Washington í tengslum við ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í október 2007.

Sigurður lýsti þessum orðaskiptum þannig að Davíð hefði sagt að ef Kaupþing héldi fast við evruáformin „þá skyldi hann sjá til þess að við yrðum gjaldþrota.“ Davíð neitað að hafa notað slíkt orðalag en staðfesti að deilurnar hefðu snúist um ætlaða evrunotkun bankans.

Þegar gerræði var í tísku

Þessi afstaða Davíðs, og þar með Seðlabanka Íslands, var auðvitað í hæsta máta óvenjuleg. Sérstaklega í ljósi þess að bankinn hafði fyrr á sama ári fjallað um áhrif þess að bankar og aðrar fjármálasjoppur gerðu upp í öðrum gjaldmiðlum en krónu í Peningamálariti sínu. Þar var niðurstaðan sú að það hefði óveruleg áhrif á miðlun peningastefnu Seðlabankans og að „hindra þessa þróun með boðum og bönnum er ekki líklegt til að skila árangri“.

Þá er ótalið hversu gerræðislegt það er hjá einum embættismanni, sem var auðvitað enn fastur í sínu pólitíska fasi, að beita sér persónulega gegn einu fyrirtæki umfram annað.

Seðlabankinn hafði nefnilega ekkert vald til að banna Kaupþingi að gera upp í evrum. Sú ákvörðun lá hjá Ársreikningaskrá, sem óskaði samt sem áður eftir umsókn Seðlabankans um málið. Þegar hún barst stóð í henni: „Seðlabankinn er mótfallinn því að innlend fjármálafyrirtæki taki alfarið upp erlendan gjaldmiðil í reikningshaldi sínu.“

Í kjölfarið fékk Kaupþing skilyrta heimild til að gera upp í evrum. Skilyrðið var að kaup bankans á hinum hollenska NIBC banka myndu klárast fyrst. Kaupþing var ekki sátt með þetta og kærði niðurstöðuna til Árna M. Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra. Árni bað bankann hins vegar að draga kæruna til baka, enda pólitískt óþægileg, og Kaupþing varð á endanum við því.

Þegar kerfið ver sig sjálft með lygum og ofstæki

Bankinn kláraði auðvitað aldrei þau kaup og hrundi svo ásamt hinum 97 prósentum íslenska bankakerfisins nokkrum mánuðum síðar. Það hafði ekkert með skort á evruupptöku að gera heldur, eins og Páll Harðarson, þá forstjóri Kauphallar Íslands, lýsti því svo eftirminnilega nokkrum árum síðar, að „alvarleg lögbrot voru framin. Afleitir viðskiptahættir kostuðu gríðarlega fjármuni og mikla þjáningu. Stórkostleg markaðsmisnotkun átti sér stað. Trú á markaðshagkerfið og hið frjálsa framtak hefur beðið hnekki.“

Þessi saga sýnir hins vegar þá duttlunga og gerræðishátt sem einkennt hafa samband þeirra sem hafa sótt sér völd, tækifæri, fjármagn og áhrif í íslenska krónuhagkerfið í gegnum tíðina.

Á síðustu árum hefur það nefnilega færst verulega í aukana að íslensk fyrirtæki geri upp í evrum eða dollurum. Við síðustu talningu voru þau orðin vel á þriðja hundruð og hafði þeim fjölgað um 133 prósent á tíu árum. Þar á meðal eru nær öll stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins sem flest eru gengin í evruna. Tilgangurinn er að koma sér undan gengisáhættu og óstöðugleika íslensku krónunnar. Að takmarka áhrif hennar á reksturinn og áferð fyrirtækjanna með erlendri fjármögnun, uppgjöri í erlendri mynt og ýmsum vörnum gegn flökti á litlum gjaldmiðli. Og fá miklu betri kjör en íslenskum heimilum og fyrirtækjum sem gera upp í krónum bjóðast.

Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin - Vísir

Það er merkilegt hvað sumir eru sannfærðir um að íslenska krónan sé ómissandi þjóðargersemi. Að sveigjanleiki hennar, sem færir byrðar af efnahagsáföllum af útflutningsgreinum og yfir á launafólk, sé okkar helsti kostur sem þjóðar. Allt tal um upptöku evru jaðri við landráð.

visir.is • Þórður Snær Júlíusson

Um liðna helgi kaus tæpur meirihluti þjóðarinnar gegn þeim möguleika að heimili og minni fyrirtæki gætu mögulega átt þess kost að taka upp evru í fyrirsjáanlegri framtíð. Það er ákvörðun sem ber auðvitað að virða þótt lygarnar, óhróðurinn og óheilindin sem hagsmunahægrið sem rak baráttuna fyrir þeirri höfnun beitti til að ýta tæpum meirihluta í þessa átt eigi enga virðingu skilið.

Baráttan þokast áfram í átt að sigri

Ástæðan fyrir því að ég ákvað að segja ofangreinda sögu er að hún sýnir að krónuhagkerfið er valdakerfi. Þeir sem hafa hag af því á hverjum tíma vilja geta stýrt því hverjir þurfi að dvelja í því og hverjir eiga að fá að hagnast á því. Það er nefnilega gott að eiga krónur en skelfilegt að skulda þær.

Þeir sem hafa aðgang að erlendum bönkum, erlendum fjármagnsmörkuðum, evrulánum og ferlum til að færa stórar fjárhæðir á milli gjaldmiðla til að græða lifa nú þegar að hluta til í öðrum veruleika en venjulegt vinnandi fólk á Íslandi. Þeir geta varið sig gegn krónunni. Þeir geta minnkað vaxtabyrðina. Þeir geta skipulagt rekstur sinn utan þess kerfis sem þeir segja okkur hinum, í gegnum fjölmiðla sem þeir niðurgreiða taprekstur á um mörg hundruð milljónir króna á ári, að sé ómissandi.

Venjuleg heimili og flest fyrirtæki geta það ekki. Þau borga bara svimandi háa íslenska vexti, krónuálagið og óstöðugleikann.

Þess vegna er ákaflega mikilvægt að muna að öflin sem risu upp og ráku, mótuðu og fjármögnuðu andstöðuna við aðildarviðræður við Evrópusambandið voru ekkert að hugsa um fullveldi eða almannahagsmuni. Þau nýttu tilfinningarök og lygar til að viðhalda völdum. Það er ekki lítill árangur að hafa næstum sigrað þau. Og ljóst er að gamla Íslandi er brugðið. Það er okkar sem erum þolendur þessa fyrirkomulags að rísa áfram upp gegn því.

Það er mín bjargfasta skoðun að þessi hagsmunaöfl, sem skýla sér frá samkeppni en græða völd og peninga á krónuhagkerfinu, séu helsta meinsemd íslensks hagkerfis. Þau vinna fyrir hina fáu gegn öllum hinum í fjárhættuspili þar sem bankinn vinnur alltaf. Og það mikilvægasta sem hægt er að gera fyrir allan almenning í landinu, heimilin og fyrirtækin, er að brjóta þetta kerfi upp.

Nú þegar möguleg aðild að Evrópusambandinu og upptaka evru er af borðinu þá finnum við nýjar leiðir til þess og vinnum einbeitt að því að draga úr neikvæðum áhrifum krónu á sem flesta. Fyrstu skrefin í þá átt verða stigin á komandi þingvetri.

Líkt og ég sagði annars staðar á laugardag þá eigum við þessa köku saman og þurfum bara að taka hana af þeim sem vilja skilja okkur eftir með mylsnur á meðan þeir troða sig út.

Hræðslubandalagið um gamla Ísland
Það verður að passa upp á að eignarhald á útgerðunum sem halda á kvótanum breytist ekki. Það verður að takmarka aðkomu útlendinga að því eignarhaldi. Annars koma Spánverjar eða Hollendingar hingað til lands, ryksuga upp útgerðarfyrirtækin og um leið allan kvótann. Fiskurinn verður svo unninn á tröllvöxnum verksmiðjuskipum úti á Ballarhafi. Arðurinn mun allur renna úr landi, ákvörðunarvaldið fer til útlendinga og eftir situr þjóð sem misst hefur yfirráð yfir auðlindinni sinni. Innganga í Evrópusambandið mun leiða allt þetta af sér.

Svona er framsetning þeirra sem berjast gegn samningaviðræðum við Evrópusambandið um aðild, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Morgunblaðsins/Viðskiptablaðsins, minnihlutaflokka á Alþingi, annarra lobbýista atvinnulífsins, hugveita á borð við Viðskiptaráð, hirðhagfræðinga sem velja sér forsendur til að ná fyrir fram ákveðinni niðurstöðu og rammpólitískra rannsóknarsetra sem eru trekkt í gang í viðburðarhald og skýrslugerðir þegar það vantar fóður í áróður.

Allt er þetta auðvitað rangt. Ísland er í gríðarlega sterkri stöðu gagnvart Evrópusambandinu þegar kemur að sjávarútvegi. Það er ekki til staðar nein lögsaga að öðrum ríkjum sambandsins og reglur þess styrkja kröfu okkar um að engin önnur skip en íslensk veiði í íslenskri lögsögu.

Það er skýr og ófrávíkjanleg samningskrafa að allar ákvarðanir um aflaheimildir og úthlutun þeirra verði áfram teknar á Íslandi og að takmarkanir á erlendu eignarhaldi verði áfram í gildi.

Fullt forræði, rauð lína

Þetta síðarnefnda þýðir í dag að erlendir aðilar mega almennt ekki eiga ráðandi eða verulegan hlut í íslenskum sjávarútvegi. Hámarkið er yfirleitt 25 prósent í félagi sem stundar veiðar eða grunnvinnslu sjávarafurða, með þröngri 33 prósenta undantekningu þegar íslenski lögaðilinn á aðeins mjög lítinn hlut í slíku félagi. Þar að auki þarf raunveruleg stjórn að vera íslensk.

Þeir sem óttast að hrært verði í þessum lögum tala reyndar lítið um hættuna sem getur fylgt stórkostlegri samþjöppun innlendra aðila í sama geira, sem hefur skilað því að fjórar fjölskyldur halda á stærstum hluta kvótans og hafa notað þá stöðu til að kaupa sig inn á flest önnur svið samfélagsins og eignast um leið mörg hundruð milljarða króna eignir. En það er önnur saga (sem er hægt að lesa um hér að neðan).

Kvótakerfið sem varð að valdakerfi

Í lok síðustu viku var birt skýrsla sem sýnir að stærstu útgerðir landsins eigi yfir 400 milljarða króna af eignum í öðrum fyrirtækjum í lok árs 2024. Þrjár stærstu útgerðirnar áttu meira en helminginn af þessum eignum og fyrir liggur að flestar þeirra féllu til á áratug. Samt er þetta brotakennd mynd. Stikkprufur sýna að eignir upp á að minnsta kosti tugi, ef ekki hundruð, milljarða króna voru ekki taldar með. Umfang samþjöppunar og fákeppni í landi þar sem ofurríkar útgerðarfjölskyldur eignast

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Samandregið: fullt forræði yfir okkar fiskveiðistjórnunarkerfi og okkar lögsögu.

Þetta er afstaða íslenskra stjórnvalda og þetta er afstaða nær allra sem ég hef rætt við sem ætla að segja Já í atkvæðagreiðslunni á morgun. Þarna sameinast Já- og Nei-ásarnir því algjörlega í einu helsta þrætumálinu varðandi aðild.

Yfirráð yfir auðlindum, fiski eða öðrum, verða ekki gefin eftir. Undir slíkan samning mun enginn íslenskur stjórnmálamaður skrifa undir.

Punktur.

Nýtt Ísland þarf annað kerfi

Það þarf því ekkert að eyða miklum viðbótartíma í að velta þessu fyrir sér. Evrópusambandið veit nú þegar hver samningsmarkmið okkar yrðu ef viðræður færu af stað, vegna þess að þau hafa verið birt opinberlega. Stækkunarstjóri sambandsins, Marta Kos, hefur sagt opinberlega að það sé meðvitað um að sjávarútvegurinn „sé svo þýðingarmikill, að hann sé hluti af samsemd ykkar eða menningararfleifð.“

Nýverið bætti hún við, í viðtali við Vísi, að hún gæti „fullvissað ykkur um að Íslendingar geta reitt sig á raunverulegar samningaviðræður við ESB. Við tökum alltaf tillit til sérstakra aðstæðna umsóknarríkja. Þú hefur nefnt sjávarútveg. Ég gæti bætt við landbúnaði. Á þessum tveim sviðum þyrfti greinilega að taka tillit til sérstakra aðstæðna.“ Í vikunni sagði Kos meira að segja að viðræður við Ísland, sem væri þegar svo stór hluti á innri markaðnum, þyrftu ekki að taka meira en eitt til tvö ár.

„Við lítum á land ykkar sem eðli­legan hluta af evrópsku fjöl­skyldunni“ - Vísir

Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir að engin aðlögun íslenskra laga að evrópsku regluverki muni eiga sér stað segi þjóðin já í atkvæðagreiðslunni í næstu viku. Hún segir ekkert hægt að segja til um mögulegar undanþágur. Það muni samningaviðræður leiða í ljós.

visir.is • Elísabet Inga Sigurðardóttir

Þá liggur fyrir að ef viðræður hefjast að nýju munu þær byrja á svokölluðum erfiðum köflum. Þeim hluta aðildar sem við Íslendingar þurfum skýrustu svörin við sem fyrst. Þar er sjávarútvegur auðvitað ofarlega, ef ekki efst, á blaði.

Ástæðan er nokkuð augljós. Fiskveiðiauðlindin hefur verið okkar helsta efnahagsstoð í gegnum áratugina þótt hlutdeild hennar hafi blessunarlega minnkað síðustu ár með auknum tekjum af orkusölu, ferðaþjónustu og hugvitstengdum greinum. Ísland er að verða fjölbreyttara og eggjunum í körfunum er að fjölga.

Það er enda ein helsta ástæða þess að við erum að skoða inngöngu í Evrópusambandið. Örmynt sem gat virkað til að þjónusta auðlindadrifið hagkerfi, framkallað skyndilega veikingu á gengi til að styrkja stöðu útflutningsgreina en um leið aukið byrðar launafólks, virkar ekki lengur fyrir mörg svið íslensks samfélags. Þau þurfa stöðugleika, fyrirsjáanleika, aukna samkeppni, erlenda fjárfestingu, lægri vexti og skaplegra verðlag.

Lygar, meiri lygar og svo eingöngu lygar

En þetta vill „Áfram Ísland“-félagsskapurinn ekki ræða. Þess í stað hefur hann rekið auglýsingaherferð síðustu daga sem snýst öll um að setja galnar fullyrðingar í spurningaform til að fría sig ábyrgð og segjast bara vera að spyrja spurninga. „Náttúruauðlindir til sölu?“ eða „Ísland til sölu?“ eða „Sjálfstæði til sölu?“.

Ég orðaði það þannig í færslu á samfélagsmiðlum í vikunni að tilgangurinn væri að framkalla ákveðin hughrif um að í Brussel sitji Evrópusambandsmaður sveittur á efri vörinni að bíða eftir tækifærinu til að komast yfir íslensk fiskimið, virkjanir, vatnsréttindi og jarðhita. Og að já í þjóðaratkvæðagreiðslunni sé einhvers konar fyrsta skref í uppboði á sameign þjóðarinnar til hans.

Þar sagði ég enn fremur: „Þetta er lygi. Evrópusambandið eignast ekki náttúruauðlindir aðildarríkja. Það á hvorki né hefur reynt að eignast olíu Skota á meðan þeir voru inni, skógana í Finnlandi eða Svíþjóð, vatnsaflið í Austurríki eða jarðefni í ýmsum öðrum ríkjum.

Í sáttmála Evrópusambandsins er sérstaklega tekið fram að reglur sambandsins skuli ekki hafa áhrif á eignarhaldskerfi aðildarríkjanna. Í orkumálum er gengið enn lengra: þar er sérstaklega tryggður réttur hvers aðildarríkis til að ákveða hvernig eigin orkuauðlindir eru nýttar, hvaða orkugjafar eru notaðir og hvernig orkukerfið er byggt upp. Þess utan er það skýrt og ófrávíkjanlegt samningsmarkmið Íslands að allar ákvarðanir um tengingu okkar lokaða raforkukerfis við Evrópu, til dæmis í gegnum sæstreng, verði teknar af okkur og okkur einvörðungu.

Landsvirkjun yrði því aldrei evrópsk. Jarðhitinn yrði ekki eign í Brussel. Enginn kæmi með sendibíl til að sækja Gullfoss.“

Varadekkið sett í mesta drullumallið

En „Áfram Ísland“ er alveg sama þótt þau séu að ljúga, enda velkist varla nokkur í vafa um það lengur að þessi félagsskapur er fyrst og síðast varnarlína gamla Íslands. Þeirra sem hafa sankað að sér völdum, fjármunum og áhrifum í skjóli krónuhagkerfisins og strokuspillingar þar sem úthlutað aðgengi að upplýsingum, tækifærum og peningum annarra er tryggt. Þar sem miklu meira máli skiptir hverra manna þú ert, hvaða flokki þú tilheyrir og hverjir vinir þínir eru en það sem þú getur.

Þetta er hópurinn sem studdi síðustu ríkisstjórn sem í valdatíð sinni frá 2017–2024 olli meiri skaða með skattalækkunum á betur setta og gegndarlausum hallarekstri á ríkissjóði en sennilega nokkur önnur ríkisstjórn í Íslandssögunni. Þetta er hópurinn sem studdi Katrínu Jakobsdóttur, leiðtoga þeirrar ríkisstjórnar og nýjasta andlits „Áfram Íslands“, til taps í forsetakosningunum fyrir rúmum tveimur árum.

Fræg mynd sem birtist á mbl.is af Kristjáni Þór Júlíussyni, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, að grilla pylsur í kosningahátíð forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur sumarið 2024 var í hugum margra staðfesting á því að íhaldsöflin á Íslandi hefðu endanlega runnið saman í eina einingu. Mynd: Skjáskot/mbl.is

Eitt varadekkjanna undir þessu mengi, hlaðvarpið Þjóðmál, hefur reynt hvað sem það getur milli drykkja að ganga í augu gömlu höfðingjanna og peningamannanna sem standa að „Áfram Ísland“. Á milli þess sem þessi hópur sem er ítrekað settur í skítverk fólks sem lítur á sig sem aðeins fínna ydda eineltishrottann í sér þá hentu þeir í útvarpsauglýsingar sem ganga sennilega lengst allra í að ljúga að þjóðinni. Hvernig þær auglýsingar fengu birtingu á Bylgjunni og RÚV er áleitin spurning, en inntakið er að Evrópusambandið muni leggja hingað sæstreng með valdi, hirða hér alla umframorku til eigin nota og allan hagnað sem við höfum af þeirri auðlind.

Nú skulum við fara í smá sagnfræði vegna þess að þetta er sami áróður og var notaður í umræðum um hinn svokallaða orkupakka þrjú fyrir sjö árum. Hann átti að svipta okkur efnahagslegu sjálfstæði og öllum yfirráðum yfir orkuauðlindum okkar. Þá var þetta sama hræðslubandalag að öskra á torgum að fullveldið væri undir.

Svo var pakkinn afgreiddur og það gerðist ekkert. Eina aflið sem er að reyna að selja orkufyrirtækin okkar eru Sjálfstæðismenn og öll yfirráð yfir orkuauðlindinni eru enn að fullu okkar.

Einn maður kannað sæstreng

Ástæðan er sú að Ísland er eyja með lokað raforkukerfi. Enginn sæstrengur tengir Ísland við raforkumarkað Evrópu og því er ómögulegt sem stendur að selja þá orku sem er framleidd hér, og er að uppistöðu í eigu opinberra aðila eða almennings í gegnum lífeyrissjóði, út fyrir landsteinana. Þeir erlendu aðilar sem vilja nýta hana þurfa að koma hingað til að gera það.

Engin krafa verður gerð um tengingu við evrópska orkumarkaðinn í gegnum sæstreng í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Það er eitt af ófrávíkjanlegum samningsmarkmiðum Íslands að ákvörðun um lagningu sæstrengs verði aldrei tekin af öðrum en lýðræðislega kjörnum íslenskum stjórnvöldum utan aðildarviðræðnanna. Sitjandi ríkisstjórn hefur verið alveg skýrt um a

Síðasti forsætisráðherrann í sögu þjóðarinnar sem hefur kannað slíka tengingu, með því að skipa starfshóp um að skoða það efni, er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem þá leiddi ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks en er nú formaður Miðflokksins.

Þáverandi forsætisráðherrar Bretlands og Íslands þegar þeir hittust árið 2015 til að ræða mögulega lagningu sæstrengs til Íslands. Mynd: Skjáskot/Mbl.is

Í fréttatilkynningu sem gefin var út vegna þessa, en var svo látin hverfa af stjórnarráðsvefnum, sagði meðal annars: „Á fundi ríkisstjórnar í morgun var samþykkt að verkefnisstjórnin taki einnig við því verkefni að eiga könnunarviðræður við Breta um lagningu sæstrengs. Verkefnisstjórnin verður stækkuð af því tilefni og í hana bætast fulltrúar frá forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti.“

Fjármála- og efnahagsráðherra þessa tíma var Bjarni Benediktsson, nú framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Það liggur því fyrir að eini stjórnmálaflokkurinn sem hefur markvisst lýst yfir áhuga á að selja íslensk orkufyrirtæki, og gerði það auðvitað að hluta í tilfelli HS Orku, er Sjál

Ekki vera hrædd, verið stolt og bjartsýn

Evrópusambandið ásælist ekki auðlindir okkar né nokkurra annarra ríkja innan þess. Það er staðreynd. Íslensk stjórnvöld munu aldrei gefa eftir yfirráð yfir þeim. Það er staðreynd. Ítrekað hefur verið gefið til kynna að sérlausnir sem taka fullt tillit til sérstöðu okkar séu í boði fyrir Ísland. Það er staðreynd.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra orðaði þetta vel í ræðu sem hún flutti í Austurbæ á miðvikudag. Þar sagði hún að það mætti aldrei gerast að auðlind þjóðarinnar yrði seld úr höndum okkar þannig að ávinningurinn kæmi hvergi nærri landinu. „Það kemur ekki til greina, aldrei.“

Hún bætti svo við að þjóðin ætti fiskinn í sjónum. „Og þess vegna verður það vitaskuld ófrávíkjanleg krafa Íslands í samningum við Evrópusambandið, ef til þeirra kemur, að niðurstaða náist í sjávarútvegsmálum sem tryggir hagsmuni þjóðarinnar sem eiganda auðlindarinnar.“

Ekki vera hrædd. Ekki láta ljúga að ykkur. Ekki láta úrtölumenn selja ykkur þvælu um að Ísland missi fullveldið, yfirráð yfir auðlindum, að lífskjör hrynji, að atvinnuleysi verði faraldur, að við verðum neydd til að ganga í her sem er ekki til og borga síðan lífeyri fyrir aðra Evrópubúa. Við munum ekki lympast niður og verða hjálenda með því einu að nota fullveldið okkar til að auka samstarf við vinaþjóðir. Þetta er allt ósatt.

Segjum já á morgun, fáum samning á borðið og ákveðum svo hvort Evrópusambandsaðild sé það sem við viljum og þurfum. Sagan sýnir að sennilega hefur engu ríki tekist að styrkjast og stækka jafn mikið og Íslandi við slík skref. Það gerðist við aðildina að NATO, við gerð tvíhliðasamnings við Bandaríkin um varnarmál, við inngönguna í EFTA og við gerð EES-samningsins. Það mun líka gerast ef við ákveðum, í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu, að ganga hnarreist og stolt inn í Evrópusambandið.

Við öll, þjóðin, höfum valdið núna. Ég treysti okkur fullkomlega til að nýta það rétt.

Fortíðin, framtíðin, og fjárhættuspilið með krónuna þar sem bankinn vinnur alltaf
Umræðan um Ísland, krónuna og Evrópusambandið sem fór fram í Silfrinu á mánudag var afar lýsandi fyrir þá gjá í samræðu um gjaldmiðlamál sem við er að eiga almennt hérlendis. Þar tókust á tveir skólar um hvað sé rétt samfélagsgerð fyrir Ísland: sú sem horfir aftur til gamla íslenska kerfisins sem er fullt af stuttum boðleiðum, kunningjaskap og skammtímahugsun eða sú sem horfir fram til kerfis sem þarf að innleiða til að geta skapað umgjörð fyrir ný fyrirtæki, ný störf og nýjar kynslóðir.

Fulltrúi þeirra sem horfa fram á við var Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical (móðurfélags Össurar). Sveinn hefur mikla reynslu af því að reka alþjóðlegt hugvitsfyrirtæki sem varð til úr íslenskum sprota en er nú í erlendu eignarhaldi að mestu. Í þættinum sagði hann að stærsti einstaki veikleikinn sem við ættum við að eiga hér á sé íslenska krónan og kerfið í kringum hana. „Við höfum markvisst alltaf unnið að því að takmarka áhrif hennar á okkar rekstur og áferð fyrirtækisins með erlendri fjármögnun, uppgjöri í erlendri mynt og ýmsar varnir gegn flökti á litlum gjaldmiðli.“

Sveinn bætti við að fyrirtækið sem hann stýrir hafi líka fundið að krónan hafi ekki haft jákvæð áhrif á áhuga erlendra fjárfesta. „Þetta er mjög stórt mál. Kostnaðurinn í kringum þetta kerfi er mikill. Sumt er hægt að mæla, annað ekki því það eru líka tækifærin sem aldrei urðu sem kosta okkur mikið.“

Í orðum Sveins felst mjög góð kjörnun á þeim ókostum sem fylgja krónunni. Hún er ekki bara seðill og klink. Hún er ekki bara tákn eða þjóðernislegur minjagripur. Hún er vaxtaumhverfi og gengisáhætta. Miður falleg saga af feikilega hárri verðbólgu. Hraðahindrun á aukna erlenda fjárfestingu. Aukaálag á heimili og fyrirtæki. Kerfi sem íslenskt samfélag er orðið svo vant að margir eru hættir að sjá hvað það kostar okkur í raun og farnir að samþykkja áhrif sem fólk og fyrirtæki í samanburðarlöndum myndu aldrei sætta sig við.

Áhrifin af uppkaupunum á atvinnulífinu

Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætis-, fjármála- og efnahags-, og utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins í 16 ár, var í settinu í sínu nýja hlutverki sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Hann var nokkuð augljóslega á móti öllum viðræðum og hefur lýst þeirri skoðun opinberlega áður. Hann taldi könnun sem svarað var af 40 prósentum þeirra stjórnenda sem fengu hana senda, og spurði um aðild að sambandinu en ekki viðræður, sýna að hann hefði meðvind fyrir þeirri skoðun í atvinnulífinu. Það blasir þó við að viðræður eru allt annað en aðild og 40 prósent stjórnenda geta ekki talað fyrir alla hluthafa og starfsmenn alls atvinnulífsins í heilu landi.

Kvótakerfið sem varð að valdakerfi

Í lok síðustu viku var birt skýrsla sem sýnir að stærstu útgerðir landsins eigi yfir 400 milljarða króna af eignum í öðrum fyrirtækjum í lok árs 2024. Þrjár stærstu útgerðirnar áttu meira en helminginn af þessum eignum og fyrir liggur að flestar þeirra féllu til á áratug. Samt er þetta brotakennd mynd. Stikkprufur sýna að eignir upp á að minnsta kosti tugi, ef ekki hundruð, milljarða króna voru ekki taldar með. Umfang samþjöppunar og fákeppni í landi þar sem ofurríkar útgerðarfjölskyldur eignast

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Auk þess er ekki hægt að horfa fram hjá því að nokkrar útgerðarfjölskyldur eiga nú að minnsta kosti eignir í öðrum fyrirtækjum, meðal annars í óskyldum rekstri, upp á fimmta hundrað milljarða króna. Það má alveg draga þá ályktun að slíkt eignarhald í fyrirtækjum á nánast öllum öðrum mörkuðum á Íslandi hafi áhrif á afstöðu þeirra fyrirtækja.

Vegna þess að enginn geiri er meira á móti aðild að Evrópusambandinu en sjávarútvegur.

Stærri en allir hinir en samt svo flókið

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi Brims, var líka til viðtals sem fulltrúi útvegsmanna í þættinum.

Guðmundur lýsti fortíðinni í einu innleggi sínu og gerði það vel. Baráttunni sem Ísland hefur þurft að ganga í gegnum til að ná þangað sem við erum í dag og það skein í gegn að honum þætti einfaldleikinn í íslenska kerfinu aðlaðandi.

Hann afgreiddi framtíðina hins vegar af minni festu. Ástæðan fyrir því að vera á móti viðræðunum um inngöngu væri varkárni og einhver vitneskja um hvað væri um að ræða. ESB væri mikið reglugerðarfargan og það væri erfitt að skilja það allt saman. „Stjórnendur í sjávarútvegi, kannski erum við ekkert svo rosalega góðir í ensku, en nú er komin gervigreindin til að hjálpa okkur að þýða þetta allt, en mér finnst þetta óttalega flókið þarna í Evrópu.“

Guðmundur Kristjánsson stýrir stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Hann er eini forsvarsmaður stærstu fimm fyrirtækjanna, sem eru ráðandi í þeim geira, sem hefur tekið þátt opinberlega í umræðunni um viðræður við Evrópusambandið. Fyrir það má hrósa honum. Mynd: Skjáskot/RÚV

Forstjórinn ræddi reyndar svo um að íslenskur sjávarútvegur væri sá stærsti í Evrópu og klykkti út með að „bara Brim veiðir meira en Þýskaland“. Hann benti líka á að öll stærstu sjávarútvegsfyrirtækin hérlendis geri upp í evru. En samt stakk hann frekar upp á því að taka upp dönsku krónuna, sem er reyndar beintengd evru með afar litlum vikmörkum, í stað þess að ganga inn í sambandið og taka upp evru. „Það er tiltölulega einfalt og hægt að gera það á morgun.“

Fjárhættuspilið þar sem bankinn vinnur alltaf

Það var viðeigandi eftir þessar mismunandi lýsingar á því hvers konar umhverfi væri æskilegast fyrir Ísland að gestur síðari hluta þáttarins hafi verið Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og sagnfræðingur.

Guðni minnti á að sjálfstæði og fullveldi eru ekki fyrirbæri sem eru meitluð í stein. Ef fullveldi væri til dæmis skilgreint út frá forskrift Nei-hreyfinganna í yfirstandandi baráttu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, þannig að í því fælist að við tækjum allar okkar ákvarðanir ein og óstudd, þá þyrfti að endurskoða NATO, EFTA, Schengen og EES-samninginn auk alls annars alþjóðasamstarfs sem við erum þátttakendur í og hefur gefið Íslandi ráðrúm til að styrkjast og vaxa á þann hátt sem við höfum gert.

Guðni fjallaði líka um íslensku krónuna, sem hann kallaði ákveðið vandræðabarn. „Það er frábært að eiga hana en það er ferlegt að skulda hana.“ Þar var hann að tala út frá þeirri staðreynd að íslensk heimili og fyrirtæki greiða mun hærri vexti af krónulánum en öll samanburðarlönd á meðan að bankar og innstæðueigendur sem leigja krónurnar sínar út geta tryggt sér mikla verðtryggða ávöxtun án áhættu. Sú ávöxtun er líka meiri og annars eðlis en hún er víðast hvar annars staðar.

Forsetinn fyrrverandi spurði svo: „Hversu mörg heimili eru á Íslandi þar sem fólk hefur setið við eldhúsborðið fram á nótt og hugsað, er það verðtryggt lán sem við eigum að fá núna? Er það óverðtryggt? Eigum við að svissa yfir? Eigum við að hafa það jafnt?“

Þar var hann að lýsa þeirri séríslensku stöðu að þurfa að reka heimilið sem vogunarsjóð þar sem „sjóðstjórinn“ er stanslaust á tánum til að bregðast við og velja hagkvæmustu leiðirnar sem henta heimilisgerðinni og það lánaform sem er hagkvæmast hverju sinni.

Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér - Vísir

Það er ekki skortur á mönnum sem fara nú um samfélagið og segja okkur hinum að það sé ekki um neitt að semja við Evrópusambandið. Það liggi allt fyrir hvernig þetta verði. Ísland missi fullveldið og yfirráðin yfir auðlindunum við inngöngu, ekki sé hægt að semja um neinar sérlausnir sem taki tillit til sérstöðu Íslands og Íslendinga, lífskjör muni hrynja niður í austurevrópskt meðaltal, atvinnuleysi verði faraldur, Íslendingar muni enda með að borga lífeyrinn fyrir aldna Evrópubúa og verða svo skikkaðir í evrópskan her til að deyja á vígvelli annarra.

visir.is • Þórður Snær Júlíusson

Á sama tíma eru stór og öflug fyrirtæki – jafnt þau sem vilja engu breyta eins og útgerðir og þau sem vilja nýjan ramma utan um efnahagslífið eins og hugvitsfyrirtækin – með sína efnahagsreikninga í evrum til að forðast krónuálagið.

„Það eina sem er víst í öllu þessu fjárhættuspili er þetta: Bankinn vinnur alltaf,“ sagði Guðni til að ramma þetta allt saman inn.

Fortíðin mætti framtíðinni

Umræðan í Silfrinu var góð. Hún var málefnaleg og allir í settinu – þar var líka Halla Gunnarsdóttir formaður VR sem lýsti ekki skýrri skoðun á aðildarviðræðunum – stóðu sig með mikilli prýði þótt skiptar skoðanir séu á afstöðu þeirra. Hinir sem létu sitt eftir liggja í Evrópuumræðunni lýstu sínum sjónarmiðum án æsings og yfirgangs og settu þau fram fyrir þjóðina til að vega og meta.

Þarna mættust fortíð og framtíð. Annars vegar fortíðin sem segir að við skulum halda í krónuna, halda okkur til hlés, treysta á sérstöðu og segja nei áður en við vitum hvað stendur til boða.

Hins vegar framtíðin sem segir við skulum vita hvað fæst, semja út frá styrk og horfa á hagsmuni Íslands eins og þeir eru í dag, ekki eins og þeir voru í gamla daga.

Þarna kristallaðist líka að þeir sem eiga eignir, hlutabréf, fasteignir, rótgróin fyrirtæki eða kvóta geta oft varist sveiflunum á krónunni og jafnvel hagnast á þeim. Fyrir þeim er krónan ágóði.

En þau sem skulda í krónum, borga húsnæðislán, velta rekstri, reyna að fjármagna nýsköpun eða kaupa sér íbúð, finna krónuna sem kostnað. Fyrir þeim birtist hún ekki sem fullveldistákn, heldur vaxtaklyfjar.

Við getum alveg haldið áfram að verja kerfi sem hefur reynst sumum vel, sérstaklega þeim sem geta lifað með háum vöxtum, mikilli verðbólgu, lokuðum mörkuðum og dýru fjármagni. En unga fólkið, heimilin, nýsköpunarfyrirtækin og útflutningsgreinarnar þurfa ekki það kerfi, heldur nýja umgjörð sem vinnur fyrir þau.

Þess vegna er spurningin 29. ágúst ekki hvort við ætlum að ganga inn í eitthvað í blindni. Hún er hvort við ætlum að leyfa okkur að sjá hvað er í boði. Hvort við ætlum að fá samning á borðið. Hvort við ætlum að ræða framtíðina út frá staðreyndum, ekki ótta.

Ég ætla að horfa fram á við og segja já.

Vonandi gerið þið það sem flest.

Ímynduð börn sem eru hætt að hitta foreldra og raunveruleikinn um krónuhagkerfið
Það er ekki erfitt að skilja að margir Íslendingar séu orðnir þreyttir á ofsanum í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fram fer í lok mánaðar. Hann er enda yfirgengilegur.

Þessi ofsi tók sér bólfestu í sjónvarpsþætti síðastliðinn mánudag. Þar náði formaður Sjálfstæðisflokksins að halda því fram að þjóðin væri svo klofin í herðar niður að fjölskyldur gætu varla hist lengur. „Börn eru hætt að geta hitt foreldra sína vegna þess að fólk hnakkrífst og það nennir þessu ekki,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir.

Frétt Morgunblaðsins um Silfur síðasta mánudags fókusaði á ummæli formanns Sjálfstæðisflokksins um ótilgreindra fjölskyldu sem getur bara ekki rætt saman um hluti sem hún er ekki sammála um. Mynd: Skjáskot

Hún hafði vart sleppt orðinu þegar formaður Miðflokksins náði að sameina alla þjóðina nema hörðustu lærisveina sína um að framganga hans, dónaskapur, yfirgangur og skortur á raunveruleikatengingu væri ekki eitthvað sem við viljum sjá í pólitískri umræðu.

Síðustu daga hef ég spurt ansi stórt úrtak fólks með ólíkar skoðanir á þjóðaratkvæðagreiðslunni hvort það geti ekki alveg hitt fjölskyldur sínar og það kannast enginn við að geta ekki lengur sinnt foreldrum sínum vegna Evrópubræði. Þvert á móti fóru nær öll samtölin fram af virðingu fyrir andstæðum skoðunum eða hagsmunum annarra og því að hér er að eiga sér stað lýðræðisleg afstaða gegn einum stærsta pólitíska ásteytingarsteini sem við höfum þurft að eiga við í áratugi. Hver sem niðurstaðan verður er gott að afgreiða málið og halda svo áfram með niðurstöðuna.

Reiðasta fólkið, sem er stanslaust á innsoginu og brjálað yfir því að þjóðin fái að velja sína framtíð í beinni kosningu, virðist aðallega vera valdmissigremjufólkið í minnihlutaflokkunum á þingi. Ég las greiningu á samfélagsmiðlum á þessu vandamáli sem var eftirfarandi: „Ráði Sjálfstæðisflokkurinn ekki – eða hafi a.m.k. neitunarvald – telst þjóðin sundruð, eða gjörsamlega klofin í herðar niður, eins og formaðurinn orðar það. Þetta gildir um öll stærri mál.“

Þetta er ekki fjarri lagi.

Harkan, ofsinn og helvítis lygin

Ég viðurkenni það fúslega að ég átti alveg von á hörku frá Neikvæðum sem hafa hag af krónuhagkerfinu og fákeppninni hérlendis, en umfang ofsans hefur samt komið mér á óvart.

Ég átti til að mynda ekki von á því að sú hlið sem keppir að því að niðurstaðan verði Nei sé að eyða gríðarlegu púðri í fullkomna þvælu. Forystufólk á hennar vegum sáir þeim fræjum linnulaust að það sé ekkert til að semja um og því sé verið að lauma okkur bakdyramegin í Evrópusambandið með lygum um tvöfalda atkvæðagreiðslu. Milli þess sem það beinlínis lýgur til um herskyldu, yfirtöku á skuldum annarra þjóða og að öll 27 ríkin í sambandinu séu í raun búin að afsala sér fullveldi.

Raunveruleikinn er auðvitað allt annar. Atkvæðagreiðslan nú er um að hefja aðildarviðræður að nýju. Farið verður inn í þær aðildarviðræður með skýr markmið um að halda fullum yfirráðum yfir fiskimiðum og öðrum auðlindum, sérlausnum fyrir landbúnað og að evra verði tekin upp hér við fyrsta mögulega tækifæri, svo fátt eitt sé nefnt.

Það liggur fyrir, í orðum Mörtu Kos, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, að Ísland hefur sérstöðu og að sambandið sé reiðubúið að finna skapandi lausnir í viðræðum sem allir geti fellt sig við. Það eigi sérstaklega við í sjávarútvegi og landbúnaði.

Náist þessi markmið verður samningur lagður fyrir þjóðina og ég mun samþykkja hann. Náist þau ekki mun ég, og margir fleiri, sennilega hafna honum.

Svart verður hvítt og upp verður niður

Ekkert virðist heilagt í þessari neikvæðu vegferð. Þrátt fyrir að úttekt Samkeppniseftirlitsins, sem byggir á naglföstum gögnum, sýni að matvara sé 55 prósentum dýrari á Íslandi en í Evrópusambandinu þá er því haldið fram að matur hér sé alls ekkert svo dýr. Það sé bara skynjunarvilla langþreyttra landsmanna sem skilji ekki að milliliðir í matvælaframleiðslu þurfi að hirða góðan hagnað þótt bæði bændur og neytendur sitji eftir með skertan hlut eða sjái ekki að það sé samfélagslega mikilvægt að matvöruverslanir og eldsneytissjoppur sem keppa bara í áferð en ekki verði auki ávöxtunina sína á hverjum einasta ársfjórðungi.

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB | Samkeppniseftirlitið

Axel Jón Ellenarson

Þrátt fyrir að húsnæðisverð hérlendis hafi rúmlega tvöfaldast að raunvirði á tíu árum í síðustu uppgangssveiflu, og meira en í nokkru öðru ríki innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) á því tímabili, er látið eins og það hafi bara ekkert skapað neinar hindranir fyrir ungt og eignaminna fólk inn á þann markað. Í raun sé það allt í einu afskaplega einfalt að eignast eigið þak yfir höfuðið hér á eldfjallaeyjunni.

Þrátt fyrir að íslenska krónan hafi leitt til þess að heimili, fyrirtæki og hið opinbera á Íslandi hafi greitt 6.432 milljarða króna umfram það sem sömu skuldir hefðu kostað á evrusvæðinu á aldarfjórðungi þá er því samt haldið fram að íslenska vaxtaumhverfið hérna sé í raun bara fínt.

Helstu rök hirðhagfræðinga Morgunblaðsins, SA, Sjálfstæðisflokks og annarra sem tilheyra því valdasólkerfi fyrir þessari framsetningu eru þau að hér séu laun svo ofsalega há. Ég hef áður sagt að það sé svipað og að halda því fram að það sé gott veður á Íslandi ef leiðrétt sé fyrir úlpum.

Og stend við þá greiningu.

Skilningsleysi á veruleika venjulegs fólks

Það er nefnilega staðreynd að ekkert myndi vera meiri kjarabót fyrir flest fólk á Íslandi en skaplegra verðlag, eðlileg verðbólga með stöðugri mynt og lægri vextir.

Fyrst má nefna að raungengið hér er mjög hátt um þessar mundir, svipað og það var árið 2007 rétt áður en bankahrunið skall á. Meira að segja dýpstu hirðmenn hafa spáð því að fram undan sé leiðrétting á þessu gengi, sem þýðir þá að það sem íslenskt launafólk fær fyrir krónurnar sínar annars staðar dregst saman. Það má líka nefna að þjóðarframleiðsla á mann næstum helmingaðist milli hápunktar 2007 og lágpunktar 2009.

Svo er litið fram hjá því, líkt og kom fram í neðangreindri grein, að þrátt fyrir að íslenska ríkið skuldi lítið í samanburði við marga aðra í Evrópu þá hefur það greitt meira í vexti sem hlutfall af þjóðarframleiðslu síðastliðinn aldarfjórðung en nokkurt annað ríki álfunnar vegna þess að vextirnir á íslensku lánunum eru mun hærri, vegna íslensku krónunnar.

Ís­land hefur borgað meira í vexti en Grikk­land og Ítalía síðustu 25 ár - Vísir

Ég hef verið ansi hugsi síðustu vikur frá því að ég rakst á tölur sem sýndu að íslenska ríkið greiðir hærri árlega upphæð í vexti af sínum skuldum, bæði per skattborgara og sem hlutfall af þjóðarframleiðslu (sem þá tekur mun á launum inn í útreikninginn), en Grikkland og Ítalía.

visir.is • Egill Almar Ágústsson

Við hefðum getað gert ýmislegt við þá 1.289 milljarða króna sem ríki og sveitarfélög hefðu getað sparað sér frá aldamótum og til loka árs 2024 ef skuldir þeirra hefðu kostað það sama og á evrusvæðinu á því tímabili. Greiða niður skuldir, laga vegi, byggja spítala, vinna á annarri innviðaskuld, styrkja velferðarkerfi. Og svo framvegis.

Það að ætla að gera þessa stöðu, sem er staðreynd, að einhverju aukaatriði í umræðunni um Evrópusambandsaðild er veruleikafirrt. Og sýnir algjört skilningsleysi á veruleika venjulegs vinnandi fólks á Íslandi.

Kerfi sem enginn græðir á

Í sömu grein er líka vísað í samantekt sem sýnir að stór hluti umframvaxta sem heimili, fyrirtæki og ríkið borga fyrir tilvist íslensku krónunnar fari til lífeyrissjóðanna. En ávöxtun þeirra var samt ekkert betri, og meira að segja oft lakari, en hjá samanburðarsjóðum í Evrópu og Bandaríkjunum á tímabilinu sem var skoðað.

Ef þannig er í pottinn búið, að þjóðin greiði himinháa vexti til að lífeyrissjóðir geti náð ávöxtunarmarkmiði sem þeir svo ná ekki yfir lengri tíma, og sjóðirnir gætu ávaxtað pundið okkar betur utan Íslands, hver er þá tilgangurinn með þessari hringekju? Við græðum sannarlega ekki á vaxtakokrinu og vaxtakokurskerfið skilar sjóðunum ekki einu sinni í þá stöðu að ná eigin ávöxtunarviðmiði á umræddu tímabili.

Allt að öllu þá er erfitt að sannfæra launafólk sem sér peninginn sinn brenna upp um hver mánaðamót í svimandi afborgunum af gölnum húsnæðislánum eða við sjálfsafgreiðslukassann í búðinni vegna svimandi verðlags um að það sé í raun heppið að fá svona margar krónur útborgaðar. Það sem eftir stendur eftir fasta kostnaðinn er það sem skiptir máli.

Í ljósi þess er erfitt að þræta um að stærsta launahækkun sem íslenskt launafólk gæti fengið er að vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum færu úr 9-10 prósentum í 3-4 prósent. Ef sambærileg slík lán á Íslandi annars vegar og Hollandi hins vegar, bæði til 30 ára og upp á 50 milljónir króna, eru borin saman kemur í ljós að mismunurinn á mánaðarlegri afborgun yrði um 200 þúsund krónur á mánuði. Það gera 2,4 milljónir króna á ári í hreinar nýjar ráðstöfunartekjur.

Vinnum meira en framleiðum ekki nógu mikið

Það eru ekki einungis við heimamenn sem sjáum kostnaðinn við krónuna. Ný skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðu mála á Íslandi er til að mynda mjög áhugaverð lesning, sérstaklega þegar samanburður við önnur lönd er skoðaður. Í henni er nefnilega fjallað um tvo efnahagslega veruleika sem einkenna Ísland umfram flest annað: þrálátan framleiðnivanda og verðbólgu.

Söguna af framleiðnivandanum þekkja flestir. Já, það hefur verið töluverður hagvöxtur á Íslandi á síðustu árum en hann var drifinn áfram af innflutningi á fólki og þegar honum er deilt niður á mann var hann enginn. Já, Ísland er ríkt land en hagkerfið heldur lífskjörum uppi með mikilli atvinnuþátttöku, löngum vinnutíma og háu vinnuframlagi í samanburði við önnur lönd. Framleiðniaukning hefur ekki verið nægilega mikil. Og ef þær útflutningsgreinar sem skila mikilli framleiðni, sjávarútvegur og orkuframleiðsla, eru teknar út fyrir sviga þá er framleiðni hérna hreinlega léleg á alla mælikvarða og í flestum samanburði.

Á sama tíma er verðbólga þrálátari en í samanburðarlöndum og ytri verðáföll festast óvenjulega sterkt í innlendu verðlagi. Þetta er dregið mjög skýrt fram í skýrslunni. Innflutningsverðskellir skýri 75 prósent af frávikum í íslensku vísitölu neysluverðs á tveggja ára tímabili á meðan miðgildi þess sé 26 prósent í samanburðarlöndum. Þetta þýðir á mannamáli að íslensk heimili og fyrirtæki búa við verðbólgukerfi þar sem ytri áföll, eins og til dæmis olíuhækkanir vegna stríðsins í Íran, berast óvenju hratt og sterkt inn í verðlag.

Kerfislegir þættir sem valda okkur skaða

Í skýrslunni segir að frá því að 2,5 prósenta verðbólgumarkmiðið, hjartað í peningastefnu Íslands, var tekið upp árið 2001 hafi verðbólga að meðaltali verið 4,9 prósent, næstum tvöfalt verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Þegar horft er á stöðugra tímabil, árin 2011–2025, hafi hún samt verið 4,0 prósent og yfir markmiði í um tveimur þriðju mánaða.

Þrátt fyrir svimandi háa stýrivexti árum saman hafi reynst erfitt að koma verðbólgu varanlega niður á markmið, sem bendi til þátta sem peningastefnan ein hafi átt erfitt með að vega upp á móti.

Ályktunin sem er dregin af þessu getur varla verið önnur en sú að það séu kerfislegir þættir í krónuhagkerfinu sem gera það að verkum að sama hvað við reynum og sama hversu lengi við höldum stýrivöxtum svimandi háum með agalegum afleiðingum fyrir heimili og fyrirtæki í landinu (en jákvæðum afleiðingum fyrir fjármagnseigendur og banka), þá tekst okkur ekki að ná markmiði peningastefnunnar. Við erum raunar oftast nær órafjarri því. Ísland þarf sterkara verðbólguakkeri og trúverðugra stöðugleikakerfi en það sem litla krónuhagkerfið hefur skilað.

Það næst með inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru.

Það sem fæst fyrir 600 milljónir daginn eftir
Ég starfaði þorra minnar fullorðinsævi í fjölmiðlum. Mín hugmynd um þá var ekki flókin. Ég tel frjálsa, faglega og fjölbreytta fjölmiðla vera hornstein lýðræðis og forsendu opinnar lýðræðislegrar umræðu, sem hefur það mikilvæga samfélagslega hlutverk að veita stjórnvöldum, atvinnulífinu og helstu stofnunum samfélagsins nauðsynlegt aðhald. Tilgangurinn er að segja satt og rétt frá og upplýsa almenning. Þar af leiðandi eru fjölmiðlar ekki eins og hver annar samkeppnismarkaður í mínum huga heldur mikilvæg lýðræðisstoð. Þetta er sérstaklega mikilvægt á örmarkaði eins og þeim íslenska.

Mér hefur alltaf verið ljóst að innan blaðamannastéttar, í stjórnmálum og viðskiptalífi er hópur sem lítur á hlutverk fjölmiðla allt öðrum augum. Sá hópur telur hlutverkið fyrst og síðast vera framlengingu á hagsmunabaráttu þar sem meira og minna allt er leyfilegt svo lengi sem tilgangurinn helgi meðalið. Ég orðaði þetta einhvern tímann þannig að þessi hópur telji að fjölmiðlar eigi að endurspegla sýn ólíkra valdahópa á samfélagið þar sem þeir háværustu og best fjármögnuðu stjórni orðræðunni.

Þetta rímar raunar vel við þær hugmyndir sem margir hafa um íslenskt atvinnulíf. Að það fari best að lítill og líkur hópur þjappi því saman í fákeppniseiningar sem keppi frekar í áferð en verðum. Og svo skiptist þessi hópur á að velja hverjir stýra hvaða einingu.

Barátta sem er að tapast

Það er ekki auðvelt fyrir mig að segja upphátt að þeir sem horfa á fjölmiðla sem framlengingu á hagsmunabaráttu séu komnir langleiðina með að ná sínu fram.

Eftir að hafa rekið fjölmiðlafyrirtæki í meira en áratug varð mér ljóst að viljinn til að setja fjármuni og afl í þannig fjölmiðlun var almennt miklu meiri en að styðja við uppbyggingu á þeirri blaðamennsku sem ég vildi standa fyrir og taldi nauðsynlega fyrir íslenska samfélagsgerð. Afmarkaður hópur var tilbúinn að tapa fullt af pening til að koma sínum áróðri á framfæri og gagnleg hliðarafurð var að hún er að drepa hina hliðina um leið. Nú stendur nefnilega eftir eitt dagblað í landinu sem hefur með öllu fellt þá þegar þunnu grímuna og skrifar þegar á reynir nær einvörðungu fyrir sjónarhorn sinna eigenda. Aðrir fyrirferðarmiklir leikendur eru í eigu skráðra félaga sem eru rekin með arðsemiskröfu að leiðarljósi eða eru ríkismiðill, með öllum þeim beltum og axlaböndum sem því fylgja.

Þessi þróun á fjölmiðlamarkaði á sér auðvitað fleiri ástæður. Tækniþróun, samfélagsmiðlar, breytt neyslumynstur og pólitísk átök um aðgerðir sem skiluðu sér í áralöngu aðgerðarleysi eiga allar stóran þátt í stöðunni.

En ráðandi ástæða er sú að áhrifamikið fólk með mikið á milli handanna og mikla hagsmuni af því að kerfin sem höfðu verið smíðuð til að festa hagsmuni þeirra í sessi vildi „önnur tök“ á umræðunni á Íslandi. Tök sem áttu að nást í gegnum eignarhald á Morgunblaðinu.

Átta milljarða meðgjöf í afskriftir

Snemma árs 2009, eftir bankahrunið, keypti hópur áhrifamikilla aðila í útgerð Morgunblaðssamstæðuna. Hún var sett inn í félag sem heitir Þórsmörk og er í dag að langstærstu leyti í eigu Ísfélagsfjölskyldunnar og Kaupfélags Skagfirðinga, tveggja af fimm stærstu sjávarútvegsveldum landsins. Um er að ræða fjórar fjölskyldur og eitt kaupfélag sem eiga eignir upp á mörg hundruð milljarða króna, stýra sjávarútvegi og landbúnaði og eru hratt að kaupa sig inn í flesta aðra óskylda atvinnuvegi í landinu.

Það er mikilvægt að átta sig á því að Þórsmerkurhópurinn var ekki bara að kaupa dagblað og fréttavef. Hann var líka að kaupa stærstu dagblaðaprentsmiðju landsins (Landsprent) og eina fyrirtækið á landinu sem dreifir dag- og vikublöðum (Póstdreifingu).

Það er líka mikilvægt að átta sig á að á þessum tíma var íslensk fjölmiðlaflóra mun blómlegri en hún er núna. Þau sem störfuðu við fjölmiðla voru 2.363 árið 2008. Í lok árs 2024 voru þau 884, eða þriðjungur þess fjölda sem það gerði 16 árum áður. Fjölmiðlum sem starfa á forsendum gilda vestrænnar blaðamennsku hefur fækkað í sífellu og þeir sem halda dampi eru glíma við stórfelldan og viðvarandi atgervisflótta sem skilur þá oft eftir með vanmáttugar og reynslulitlar ritstjórnir.

Viðskiptabanki Þórsmerkursamstæðunnar afskrifaði um 3,5 milljarða króna af skuldum félagsins í aðdraganda þess að félagið var selt nýjum eigendahópi. Síðari lota afskrifta af skuldum hennar við bankann átti sér svo stað árið 2011 og var upp á einn milljarð króna á þávirði. Samanlagt nema þessar afskriftir um átta milljörðum króna á núvirði.

Uppsafnað tap á fjórða milljarð króna

Rekstur Þórsmerkursamstæðunnar hefur alls ekki gengið vel síðan eigendaskiptin áttu sér stað, ef horft er á þau á viðskiptalegum forsendum. Frá árinu 2011 hefur Þórsmörk skilað tapi á hverju einasta ári utan tveggja, árið 2013 var hagnaður upp á 11,6 milljónir króna og árið 2021 var svo bókfærður hagnaður upp á 186 milljónir króna.

Síðara hagnaðarárið var með öllu bókhaldslegt þar sem prentsmiðjan stóra var færð úr dótturfélaginu Árvakri yfir í móðurfélagið Þórsmörk ásamt skuldum. Þær skuldir voru að uppistöðu vegna þess að Morgunblaðið frestaði því að greiða fyrir, að minnsta kosti hluta, prentunar sinnar og safnaði upp skuldum við tengdan aðila í staðinn. Það var díll sem samkeppnisaðilum Morgunblaðsins bauðst ekki á þessum árum. Þeir þurftu helst að staðgreiða alla prentun í einu prentsmiðjunni sem þeir gátu átt viðskipti við.

Samanlagt tap Þórsmerkur á þessu tímabili, frá 2011 og út síðasta ár, er tæplega 2,4 milljarðar króna. Á núvirði er það tap um 3,2 milljarðar króna. Í fyrra tapaði samstæðan um einni milljón króna á dag.

Frétt um tap móðurfélags Morgunblaðsins, sem var næstum ein milljón króna á dag, á síðasta ári. Hún birtist fyrir viku, föstudaginn í verslunarmannahelgi. Mynd/Skjáskot

En þessi kaup voru auðvitað ekki gerð á hreinum viðskiptalegum forsendum. Árangurinn átti að nást fram með öðrum hætti. Með áðurnefndum „tökum á umræðunni“ og því að koma í veg fyrir breytingar á kerfum sem gagnast eigendahópnum. Út frá þeim forsendum hafa kaupin margborgað sig.

Stefna á einokun

Það hefur líka náðst alls kyns annar árangur sem eigendur Þórsmerkur, allt fólk í stanslausri hagsmunabaráttu, geta verið sátt við. Þannig er Landsprent nú með einokunarstöðu á dagblaðaprentun í landinu eftir að prentsmiðjan keypti eina samkeppnisaðilann árið 2023 og henti prentvélinni í brotajárn.

Morgunblaðssamstæðan kaupir prentvél Fréttablaðsins, sem fer líklega í brotajárn

Prentsmiðja Morgunblaðssamstæðunnar hefur keypt prentvél Fréttablaðsins, sem boðin var upp af þrotabúi Torgs. Guðbrandur Magnússon framkvæmdastjóri Landsprents segir að félagið hafi aðallega ásælst pappír, prentliti og tækjabúnað á borð við bindivélar og plastvélar. Prentvélin sjálf komi líklega til með að enda í brotajárni. Ef svo fer verður Landsprent eina prentsmiðja landsins sem getur prentað fréttablöð.

Heimildin • Arnar Þór Ingólfsson

Póstdreifing er langstærsti einkaaðilinn í dreifingu á prentuðu efni á landinu en á þar í samkeppni við ríkisfyrirtækið Íslandspóst á einhverjum sviðum. Þá samkeppni ber að hafa í huga þegar síbyljuumfjöllun Morgunblaðsins, sem staðið hefur yfir árum saman, um að það þurfi að leggja Íslandspóst niður er skoðuð. Vilji Þórsmerkur er að Póstdreifing sitji ein að dreifingarmarkaðinum alveg eins og Landsprent situr eitt að dagblaðaprentunarmarkaðnum. Samkeppni er ekki æskileg.

Þessi afstaða kom raunar ágætlega fram í frétt blaðsins um eigið tap í fyrra sem birt var fyrir skemmstu. Þar var haft eftir Haraldi Johannessen, ritstjóra Morgunblaðsins og framkvæmdastjóra Þórsmerkur, að afstaða hans til keppinauta á þeim mörkuðum sem samstæðan er ekki með einokun á þegar hann sagði: „Ríkið er áfram einn harðasti keppinauturinn, einkum með starfsemi Ríkisútvarpsins og óvæginni þátttöku þess á auglýsingamarkaði, en einnig með starfsemi Íslandspósts sem fær hátt í milljarð króna á ári til að niðurgreiða samkeppni við dótturfélag Þórsmerkur, Póstdreifingu ehf.“

„Fyrir sitt fólk“

Fjölmiðlareksturinn, í gegnum dótturfélagið Árvakur, er þó fjöreggið í þessu öllu saman. Þrátt fyrir að lestur Morgunblaðsins hafi helmingast frá kaupum á blaðinu þá er það, að mati eigendanna og hagsmunahópanna sem þeir tilheyra, mikilvægasti hamarinn sem var keyptur til að berja „réttar“ upplýsingar inn í hausinn á íslenskum almenningi. Sá barningur var stundum undir rós hér á árum áður en er orðinn algjörlega grímulaus á síðustu misserum, eftir að Sjálfstæðisflokkurinn þeirra missti sæti sitt í ríkisstjórn. Þessi staða varð öllum sýnileg í veiðigjaldaumræðunni í fyrra - slag sem blaðið og sólkerfið í kringum það tapaði - og er enn sýnilegri í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Hér er ekki um einhverja ályktun eða samsæriskenningu að ræða. Blaðið og þeir sem koma fram fyrir hönd þess fela þessa afstöðu ekkert. Í Spursmálum í síðustu viku sagði til dæmis þáttarstjórnandi þeirra, einn fjölmiðlamannanna sem fara fyrir áherslum í efnisframleiðslu samstæðunnar, að „Morgunblaðið hefur alltaf verið á móti inngöngu Íslands í Evrópusambandið“. Viðmælandi hans, Andrés Magnússon fulltrúi ritstjóra, tók undir þetta og útskýrði að þetta væri allt saman eðlilegt. Dagblöð ættu að segja fréttir út frá ákveðnu sjónarhorni „fyrir sitt fólk“.

Stefán Einar Stefánsson og Andrés Magnússon ræddu fyrir viku um hvort fjölmiðlar ættu að vera hlutlausir í umfjöllun sinni um Evrópusambandið. Niðurstaðan var að sumir ættu að vera það, en Morgunblaðið alls ekki. Það ætti að tala „fyrir sitt fólk“. Mynd/Skjáskot

Skýr markmið eigenda

Það má líka benda á kveðju frá Sigurbirni Magnússyni, stjórnarformanni Árvakurs og föður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, til Davíðs Oddssonar, sem ráðinn var ritstjóri Morgunblaðsins skömmu eftir Þórsmerkuryfirtökuna, í sérstöku minningarblaði um þann síðarnefnda sem kom út fyrr á þessu ári, sama dag og Davíð var jarðsettur.

Þar skrifaði Sigurbjörn að skömmu áður en Davíð var ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins hafi verið mynduð fyrsta hreinræktaða vinstristjórnin sem meðal annars hafi ætlað sér að þjóðnýta útgerðarfyrirtæki og ganga í Evrópusambandið. „Morgunblaðið var strax í fararbroddi í baráttu gegn hinni hreinræktuðu vinstristjórn og stefnumálum hennar og við þessar aðstæður skipti máli að rödd Morgunblaðsins heyrðist svo eftir væri tekið. Það er að mínu mati óumdeilt að Morgunblaðið átti stóran þátt í því algera hruni sem hin hreinræktaða vinstristjórn beið í alþingiskosningunum 2013.“

Það er enginn vafi í huga stjórnarformanns útgáfufélags Morgunblaðsins um hver tilgangurinn með niðurgreiðslunni á gegndarlausu tapi þess er. Þar er um að ræða skýr pólitísk markmið. Mynd/Skjáskot

Þar endurómaði Sigurbjörn orð Óskars Magnússonar, mannsins sem hélt utan um Þórsmerkurhópinn þegar hann var myndaður og tók samhliða að sér starf útgefanda Árvakurs um hríð, í viðtali sem hann fór í fyrir áratug. Þar sagði Óskar að nýju eigendur Morgunblaðsins hefðu haft skýra sýn þegar þeir keyptu blaðið. Þeir vildu hafa áhrif á nokkur mál. „Menn voru með alveg skýra sýn. Það er að segja, eigendur blaðsins voru með svona þrjú mál sem þeir vildu fá öðruvísi tök á í þjóðfélaginu. Það voru Icesave, fyrst og fremst, ESB og svo sjávarútvegsmál.“ Þá var það yfirlýst markmið, inn á við og út á við, að koma þáverandi ríkisstjórn frá völdum og koma Sjálfstæðisflokknum aftur að.

Þessi hagsmunatengda umfjöllun hefur einvörðungu aukist á undanförnum árum eftir því sem óbilgjarnari fjölmiðlamenn hafa orðið fyrirferðarmeiri í innrömmun og efnishönnun Morgunblaðsins. Í öllum tilfellum er um að ræða fólk sem er mjög opið með það opinberlega að það taki afstöðu gegn ákveðnum stjórnmálaöflum, einstaklingum og málefnum, eins og til dæmis sitjandi ríkisstjórn, leiðréttingu veiðigjalda og þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

600 milljónir daginn eftir

Skoðum síðarnefnda málið, og nálgun Morgunblaðsins, eigenda þess og tengdra aðila á það, aðeins betur.

Þann 29. maí síðastliðinn fór fram stjórnarfundur hjá Þórsmörk, móðurfélagi Morgunblaðsins. Á þeim fundi var hlutafé félagsins aukið um 600 milljónir króna. Fyrir liggur að Ísfélagsfjölskyldan, aðilar tengdir henni og Kaupfélag Skagfirðinga lögðu þessa fjármuni til að uppistöðu. Dagsetningin er athyglisverð í ljósi þess að daginn áður, þann 28. maí, hafði Alþingi samþykkt þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Þetta gæti auðvitað hafa verið tilviljun en það getur líka verið að svo sé ekki. Umfjöllun um Evrópusambandið hefur verið afar fyrirferðamikil hjá fjölmiðlinum síðan þetta átti sér stað og, líkt og kemur fram hér að ofan, þá eru fyrirferðamestu blaðamenn hans ekkert að fela andstöðu sína.

Nær undantekningarlaust er um neikvæða umfjöllun að ræða. Hún er stundum bjöguð og byggir oft á einhliða framsetningu hirðhagfræðinga hagsmunahægrisins, stjórnmálamanna úr flokkum sem vilja ekki viðræður eða ályktunum blaðamanna á ritstjórn sem hafa verið óhræddir við að lýsa yfir andstöðu sinni við Evrópusambandið á samfélagsmiðlum, bæði með orðum og annars konar merkingum. Sumt hefur verið beinlínis rangt eða verulega bjagað, eins og margra vikna eltingarleikur við hollensk orð sem féllu aldrei, að það sé í raun ódýrt að versla í matinn á Íslandi, að vaxtakjör á húsnæðislánum hérna séu ekki hræðileg heldur frábær. Ekkert hefur þó verið leiðrétt og engar tilraunir hafa verið gerðar til að gæta jafnræðis eða hlutleysis.

Í þessum anda má benda á að í júní voru gefin út 26 tölublöð af Morgunblaðinu. Neikvæðar umfjallanir um Evrópusambandið rötuðu í einhverri mynd á forsíðu 18 þeirra. Í júlí voru tölublöðin 27 og umfjöllun um sambandið rataði á forsíðu 22 þeirra. Í ágúst hefur þetta verið sagan í fjórum af fimm tölublöðum sem komið hafa út. Oft voru fréttirnar um þessa ógn sem settar voru framan á blaðið fleiri en ein. Og á aftari blaðsíðum þverfótaði ekki fyrir þeim.

Eina dagblaðið í þorpinu

Í desember 2024, rétt eftir að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var mynduð, skrifaði ég á þessum vettvangi eftirfarandi: „Eftir að Fréttablaðið fór í þrot þá er Morgunblaðið eina dagblað landsins. Það rekur harða pólitíska áróðursstefnu sem styður við Sjálfstæðisflokkinn og þann anga atvinnulífsins sem tengjast eignarhaldi Árvakurs eða eru eigendum og stjórnendum félagsins þóknanlegir. Miðlum Árvakurs er sömuleiðis beitt af miklum ofsa gagnvart þeim sem skilgreindir eru sem andstæðingar þessara aðila.“

Ég skrifaði líka að vegna þess að Þórsmörk/Árvakur er ekki rekinn á viðskiptalegum forsendum þá hefur útgáfufélagið getað staðið af sér allar áskoranir sem hafa fellt aðra. „Nú þegar Sjálfstæðisflokkurinn verður ekki í ríkisstjórn, en það verður annað kjörtímabilið sem svo er ekki síðan árið 1991, þá mun Morgunblaðið og tengdir miðlar að óbreyttu stýra pólitísku narratívi á Íslandi á komandi árum. Aðrir starfandi miðlar, RÚV (í opinberri eigu) og miðlar Sýnar (í eigu fjarskiptafélags sem er skráð á markaði), eru of passífir og, að einhverju leyti, kurteisir í samanburði til að mæta þeirri stöðu. Áherslur þeirra og persónuleiki liggja einfaldlega annars staðar.“

Allt þetta hefur gengið eftir eins og klukka. Og það er nauðsynlegt að þjóðin sé meðvituð um það þegar hún stendur frammi fyrir stórum ákvörðunum.

Þegar hópur fékk 20 prósenta afslátt af Íslandi
Stundum á ég samtöl við fólk og fer að tala um atburði sem mér var farið að finnast, vegna eigin áhuga á þeim, að allir væru djúpir inni í. Svo þegar ég þarf að fara að útskýra þá átta ég mig auðvitað á því að það er fjarstæðukennd nálgun af minni hálfu. Af hverju ætti venjulegt fólk sem lifir og hrærist ekki í fréttahringnum eða pólitískum vendingum dag frá degi að vera með einhverja heildræna þekkingu á slíku? Af hverju ætti það að reyna að setja slíka atburði í samhengi við gangverk dagsins í dag og áhrif þeirra á daglegt líf?

Þetta var ein ástæða þess að ég ákvað að setja upp þetta fréttabréf og skrifa, stundum allt of langan, texta til að reyna að ná fram einhverju heildrænu samhengi í það sem ég er með til umfjöllunar á hverjum tíma. Og byggja það á vísun í gögn, sögu og staðfestum frásögnum í stað áróðurs eða magatilfinningar líkt og allt of algengt er orðið í upplýsingaumhverfinu okkar.

Einn atburður, eða frekar ákvörðun, hefur verið mér ofarlega í huga undanfarið eftir eitt svona samtal eins og ég rakti hér að ofan: Fjárfestingaleið Seðlabanka Íslands.

Þeir sem lokuðust inni

Hún hljómar tæknilega og óáhugaverð, en dveljið aðeins með mér í þessu. Það eru nefnilega fáar ákvarðanir sem teknar voru eftir bankahrunið sem höfðu jafn mikið um það að segja hverjir náðu undirtökunum í íslensku samfélagi þegar það var stokkað upp eftir þessar efnahagslegu hamfarir. Að uppistöðu var þetta sama fólkið og hafði haft þau undirtök áður og að hluta til sama fólkið og hafði verið í ráðandi stöðum til að leiða hamfarirnar yfir þjóðina.

Fyrst smá baksaga. Á bjartsýnistímanum eftir aldamót var ákveðið að fleyta íslensku krónunni. Það þýðir að virði hennar réðst þá af því hversu mikið markaðsaðilar eru tilbúnir að borga fyrir hana í erlendri mynt. Samhliða voru íslensku viðskiptabankarnir einkavæddir og hófu síðan útrás inn á aðra markaði með fulla vasa af ódýru lánsfjármagni sem há lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins gerði þeim kleift að nálgast.

Afleiðingin af þessari tilraun varð sú að viðskiptajöfnuður var verulega neikvæður árum saman (verðmæti útflutningsvara og þjónustu var miklu minna en verðmæti varnings sem var fluttur til landsins, aðallega vegna þess að það streymdi svo mikið erlent lánsfjármagn inn) og spákaupmenn gátu „spilað“ á krónuna í svokölluðum vaxtamunaviðskiptum.

Þessi vaxtamunaviðskipti áttu stóran þátt í að blása upp þá bólu sem sprakk á Íslandi haustið 2008. Það erlenda fé sem leitaði í íslenska skuldabréfaflokka var endurlánað til viðskiptavina íslensku bankanna og við það stækkaði umfang þeirra gríðarlega. Við hrun, þegar setja þurfti fjármagnshöft á til að hindra útflæði gjaldeyris, voru vaxtamunafjárfestingar vel á sjöunda hundrað milljarða króna. Þetta var hin svokallaða snjóhengja. Ísland gat ekki hleypt þessum peningum sem höfðu ratað hingað úr landi.

Til að takast á við þá stöðu þurfti að setja fordæmalaus neyðarlög, sem breyttu kröfuhafaröð eftir á og ekkert lá í raun fyrir í upphafi að myndu halda, og fylgja þeim svo eftir með uppsetningu fjármagnshafta, sem héngu uppi í næstum áratug en eru enn ekki að öllu leyti afnumin.

Þeir sem fengu tugmilljarða afslátt af eignum

Ein leiðanna sem ákveðið var að fara til að „bræða“ snjóhengjuna var að setja upp Fjárfestingaleið Seðlabankans, stundum líka nefnd 50/50 leiðin. Samkvæmt henni gátu þeir sem samþykktu að koma með gjaldeyri til Íslands skipt honum í íslenskar krónur á hagstæðara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka.

Þeir sem tóku á sig „tapið“ í þessum viðskiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu komast út úr íslenska hagkerfinu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjaldeyri en voru tilbúnir að koma til Íslands og fjárfesta fyrir hann. Seðlabankinn var síðan í hlutverki milligönguaðila sem gerði viðskiptin möguleg. Líkt og verslun sem leiddi heildsala og neytendur saman.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjárfestingaleiðinni frá því í febrúar 2012 til febrúar 2015, þegar síðasta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 milljónir evra til landsins á grundvelli útboða fjárfestingarleiðarinnar, sem samsvaraði um 206 milljörðum króna á þávirði.

Ef þeir sem komu með þennan gjaldeyri til Íslands hefðu skipt honum á opinberu gengi Seðlabankans, líkt og venjulegt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 milljarða króna fyrir hann. Virðisaukningin sem fjárfestingaleiðin færði eigendum gjaldeyrisins í íslenskum krónum var því 48,7 milljarðar króna. Skilyrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fasteignum, verðbréfum, fyrirtækjum eða öðrum fjárfestingakostum. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjárfestingarleiðina hafi fengið um 20 prósenta afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

Ég skal endurtaka þetta: Fólk sem átti lausafé í öðrum myntum en íslenskum krónum gat skipt því í íslenskar krónur og fengið 20 prósenta afslátt á íslenskum fyrirtækjum, íbúðahúsnæði eða öðru sem hægt var að fjárfesta í.

Þeir sem földu peninga á aflandseyjum

Þetta voru alls ekki bara útlendingar. Þvert á móti var stór hluti þeirra sem nýttu leiðina Íslendingar sem áttu peninga í útlöndum. Alls komu 794 innlendir aðilar með peninga inn í íslenskt hagkerfi í gegnum útboð fjárfestingarleiðar Seðlabanka Íslands. Peningar þeirra námu 35 prósentum þeirrar fjárhæðar sem alls komu inn í landið með þessari leið. Alls fengu þessir aðilar 72 milljarða króna fyrir þann gjaldeyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur samkvæmt skilmálum útboða fjárfestingarleiðarinnar. Afslátturinn, eða virðisaukningin, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjaldeyrinum á skráðu gengi Seðlabankans var um 17 milljarðar króna.

Í hugum margra sem komu að þessari opinberu leið til að veita völdum einstaklingum afslátt á helstu eignum íslensks samfélags, sem var í heildrænni endurskipulagningu eftir mestu manngerðu hamfarir sem riðið hafa yfir það í sögu þess, var þetta bara hið besta mál. Snjóhengjan bráðnaði aðeins og útlendingarnir sem voru mjög pirraðir yfir því að vera múraðir inni á Íslandi með fjárfestingar sínar fengu útgönguleið. Hvaða máli skipti það þótt einhver græddi á þessu? Öfundartrompið sem rökþrota frjálshyggjufólk veifar alltaf þegar það er komið út í skurð var ítrekað notað.

Málið er að Íslendingarnir sem fengu þessa virðisaukningu á opinberu silfurfati höfðu margir hverjir ferjað peninga út úr landinu fyrir hrun og komið þeim í var á aflandseyjum, þegar gengi krónunnar var ennþá sterkt. Þegar krónan féll eftir hrun gátu Íslendingarnir leyst út feikilega mikinn gengishagnað.

Það kom íslenskri þjóð í opna skjöldu þegar fjölmiðlar fóru að opinbera að tugir milljarða króna hefðu verið ferjaðir úr íslensku hagkerfi og inn í aflandsfélög í skattaparadísum eins og Tortóla-eyju, sem tilheyrir Bresku Jómfrúareyjunum. Mynd: ChatGPT

Til að setja þetta í tölulegt samhengi má benda á skýrslu sem Bjarni Benediktsson, þá ráðherra, lét vinna og var birt í janúar 2017, sem skoðaði umfang aflandseigna Íslendinga og áætlaði hversu miklu eigendur slíkra eigna hefðu stungið undan skatti.

Í skýrslunni var komist að þeirri niðurstöðu að uppsafnað umfang eigna Íslendinga á aflandssvæðum frá árinu 1990 til 2015 hefði numið einhvers staðar á bilinu 350 til 810 milljörðum króna, og tekjutap hins opinbera á árunum 2006 til 2014 vegna þessa nam líklega um 56 milljörðum króna á þávirði.

Í hópi þeirra sem fjölmiðlar opinberuðu um nokkurra ára skeið að hefðu nýtt sér fjárfestingarleiðina voru einstaklingar sem höfðu verið til rannsóknar fyrir meint skattalagabrot, ákærðir og dæmdir fyrir efnahagsglæpi og höfðu verið gerðir upp af kröfuhöfum sínum án þess að mikið fengist upp í skuldir.

Var verið að þvo peninga?

Til að fá að taka þátt í fjárfestingarleiðinni þurfti að uppfylla nokkur skilyrði. Á meðal þeirra var að það þurfti að fylgja með staðfesting þess að áreiðanleiki viðkomandi hefði verið kannaður samkvæmt lögum um peningaþvætti.

Þetta ferli fór í meginatriðum þannig fram að fjárfestir leitaði til íslensks banka og bað hann um að vera milliliður í að færa peningana sína í gegnum fjárfestingarleiðina. Hann undirritaði síðan peningaþvættisyfirlýsingu um að hann væri raunverulegur eigandi fjármunanna sem verið var að færa og staðfestingu á því að hann hefði ekki verið ákærður fyrir brot á lögum um gjaldeyrismál.

Vandamálið við þetta var að peningaþvættiseftirlit íslenskra banka og stjórnvalda var nánast ekkert árum saman. Það fékk falleinkunn hjá FATF árið 2018 sem krafðist þess að umfangsmiklar úrbætur yrðu gerðar, annars yrði Ísland sett á óæskilegan gráan lista, sem Ísland rataði svo á þegar lítið sem ekkert var gert.

Í áætlun sem íslensk stjórnvöld birtu 2019 til að reyna að komast af gráa listanum kom fram að gjaldeyriseftirlit Seðlabankans hefði skort þekkingu á hættumerkjum og aðferðum við peningaþvætti. Engar lagalegar skyldur hefðu hvílt á Seðlabankanum vegna aðgerða gegn peningaþvætti þrátt fyrir að hann hefði haft umsjón með öllu gjaldeyriseftirliti og losun hafta á þeim árum þegar hundruð milljarða króna hefðu verið flutt til og frá landinu.

Þá hefði bankinn ekki getað miðlað þagnarskyldum upplýsingum í tengslum við gjaldeyriseftirlitið til þar til bærra aðila vegna skorts á lagaheimild. Seðlabankinn sendi enda engar tilkynningar til peningaþvættisskrifstofu, þar sem starfaði einn maður við móttöku tilkynninga, vegna gruns um peningaþvætti vegna aðila sem nýttu sér fjárfestingaleið hans á meðan hún var opin á árunum 2012 til 2015.

Enginn viðskiptabanki sem á að þekkja viðskiptavin sinn gerði það heldur.

Lögmæti á skítuga peninga

Það var því augljóslega rökstuddur grunur um að peningarnir sem flæddu inn í Ísland í gegnum fjárfestingaleiðina og inn í íslenskar fjárfestingar hafi að hluta til verið fjármunir sem ekki höfðu verið greiddir réttir skattar af eða gerð grein fyrir í uppgjörum við kröfuhafa. Það liggur líka fyrir að félög með aðsetur á lágskattasvæðum tóku þátt. Fólk geymir ekki peningana sína á Tortóla nema það sé að fela þá fyrir einhverjum.

Ég lýsti þessu einhvern tímann svona í gömlum leiðara: „Það að fá óáreittur að keyra slíkt fé í gegnum Seðlabankann og aftur í löglega vinnu, heilbrigðisvottaða í bak og fyrir, er ekkert frábrugðið því þegar fíkniefnasalinn fer með 100 þúsund krónur í spilakassa einungis til að taka þær aftur út og láta afgreiðslumanninn í Háspennu leggja þær inn á bankareikning. Lögmæti fæst á skítuga peninga.“

Það var því tvöfaldur ávinningur fyrir suma að nýta leiðina. Þeir fengu lögmæti á peninga sem þeir gátu ekki fengið heilbrigðisvottorð á með öðrum hætti, og voru í einhverjum tilvikum réttmæt eign yfirvalda eða þeirra sem höfðu lánað þeim pening. Og þeir fengu 20 prósenta virðisaukningu á milljarða króna fjárfestingar.

Til að setja það í annað samhengi við daglegt líf þá gat sá sem nýtti sér þessa leið fengið 150 milljón króna hús á 125 milljónir króna.

Það er díll sem fæstir myndu fúlsa við.

Þeir sem vildu ekkert vita

Seðlabankinn eða þáverandi stjórnvöld vildu aldrei upplýsa hverjir það voru sem fengu að nýta sér þessa leið til að leysa út gengishagnað, fá lögmæti á fjármuni sem mögulega voru afurð skattaundanskota eða raunveruleg eign annarra og fá virðisaukningu úr hendi opinbers aðila sem öðrum landsmönnum bauðst ekki.

Það var mikill þrýstingur, árum saman, á að þessi leið yrði rannsökuð. Seðlabankinn birti sjálfur skýrslu um eigin verk árið 2019 þar sem hann gekkst við því að það væri eðlilegt, í ljósi sögunnar, að gagnrýna að það hefði verið gerlegt að ferja fjármuni frá aflandssvæðum í gegnum hana.

Í skýrslunni sagði einnig að það væri ekki hlutverk Seðlabanka Íslands að útdeila réttlæti í samfélaginu „með því að greina á milli æskilegra og óæskilegra fjárfesta, verðugra og óverðugra.“ Það sé ekki úrlausnarefni hans. „Önnur stjórnvöld og stofnanir hafa hlutverki að gegna við að framfylgja lögum landsins, m.a. Samkeppniseftirlitið, Fjármálaeftirlitið, ríkisskattstjóri, skattrannsóknarstjóri, lögregla, saksóknarar og svo dómstólar sem endanlega kveða á um sekt manna og réttarstöðu þeirra gagnvart lögum og stjórnvöldum.“

Ekkert þeirra embætta sem Seðlabankinn taldi upp í skýrslu sinni og sagði að hefðu það hlutverk að útdeila réttlæti hefur rannsakað fjárfestingarleið Seðlabankans af einhverri alvöru.

Þeir sem vildu vita en fengu það ekki

Í nóvember 2019 var lögð fram þingsályktunartillaga um rannsókn á fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands sem allir þingmenn Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar voru á. Þar var farið fram á að þriggja manna rannsóknarnefnd yrði skipuð og að hún gerði grein fyrir því hvaðan fjármagnið sem flutt var til landsins með fjárfestingaleiðinni kom, hvaða einstaklingar eða félög voru skráð fyrir fjármagninu sem flutt var til landsins, hvernig fénu sem flutt var inn til landsins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efnahagslíf.

Þar er einnig kallað eftir að upplýsingar verði dregnar fram um hvort ríkissjóður hafi orðið af skatttekjum vegna leiðarinnar og þá hversu mikið það tap var, hvort samþykkt tilboð í útboðum fjárfestingarleiðarinnar kunni í einhverjum tilvikum að hafa brotið gegn skilmálum hennar og hvort fjárfestingarleiðin kunni að hafa verið notuð til að koma óskráðum og óskattlögðum eignum Íslendinga á aflandssvæðum aftur til landsins, til að stunda peningaþvætti eða misnotuð með öðrum hætti.

Steingrímur J. Sigfússon, þá forseti Alþingis, vildi ekki að rannsóknarnefnd yrði skipuð um fjárfestingaleiðina til að opinbera hverjir hefðu fengið að njóta ávaxta hennar. Mynd: RÚV

Þegar Seðlabanki Íslands skilaði umsögn um skipun rannsóknarnefndarinnar sagði þar að bankinn legðist ekki sérstaklega gegn því að fram færi rannsókn á flutningi fjár til landsins á grundvelli fjárfestingarleiðar Seðlabankans teldi Alþingi líklegt að slík rannsókn bætti einhverju við þá rannsókn sem þegar hefur farið fram á vegum ríkisskattstjóra og skattrannsóknarstjóra á leiðinni.

Steingrímur J. Sigfússon, þá forseti Alþingis og ráðherra í ríkisstjórn hluta þeirra ára sem fjárfestingaleiðin var í gildi, tók málið inn á sitt borð og drap það. Hann skilaði af sér 18 blaðsíðna umsögn um þingsályktunartillöguna þar sem hann gerði margháttaðar athugasemdir við málið, lagðist gegn skipun rannsóknarnefndar og vildi kanna hvort önnur rannsóknarúrræði dyggðu ekki til.

Ásgeir: Fjárfestingaleiðin hefði aldrei gerst á minni vakt

Sitjandi seðlabankastjóri segir að það hefði átt að fylgjast betur með því hvaðan peningarnir sem voru ferjaðir til landsins í gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands komu. Stjórnvöld hafa neitað að upplýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leiðina.

Kjarninn

Síðan Steingrímur skilaði sinni umsögn hefur lítið sem ekkert heyrst af þessu máli. Ekki annað en að Ásgeir Jónsson, sem tók við sem seðlabankastjóri árið 2019, fór í viðtal tveimur árum síðar og sagðist sammála gagnrýni sem sett hefði verið fram á fjárfestingaleiðina. Hann bætti við: „Þetta myndi aldrei ger­ast á minni vakt. Aldrei. Ég er sam­mála, það hefði mátt fylgj­ast mun betur með því hvaðan pen­ing­arnir komu. Ég myndi aldrei sam­þykkja svona á minni vakt.”

Samhengið við nútímann

Af hverju er ég að rifja þetta allt upp núna? Vegna þess að margt af því fólki sem náði á ný undirtökum í íslensku þjóðfélagi með hjálp þessarar leiðar er nú í forgrunni þess að hindra uppbrot á valdakerfinu sínu.

Það berst um hæl og hnakka gegn sitjandi ríkisstjórn og því að þjóðin fái sjálf að ákveða hvort hún vilji fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið til að vernda litla smákóngaveldi krónunnar þar sem það, á gráa svæðinu milli viðskipta og stjórnmála, hefur getað útdeilt tækifærum og upplýsingum og tryggt sér greiðan aðgang að peningum annarra.

Nú fer um þennan hóp. Hann er hræddur. Birtingarmyndin er yfirgengileg yfirkeyrsla fjölmiðla hans, hlaðvarpanna sem hópurinn tryggir tilverugrundvöll, Viðskiptaráðsins sem gengur hans erinda og stjórnmálamannanna sem hann á með húð og hári.

Það sem gerist þegar kerfin eru sniðin að þörfum almennings, líkt og sitjandi ríkisstjórn er að vinna þrotlaust að, eða þegar samstarf okkar við Evrópu er látið ná yfir fleiri svið, sem er þjóðarinnar að ákveða, er að verðlagning þessara sjálfskipuðu náttúrutalenta hrynur í verði.

Leikurinn verður ekki lengur sveigður að þeim, heldur þurfa þeir að keppa við hina á jafnréttisgrundvelli.

Þetta er sennilega síðasta fréttabréfið sem ég sendi frá mér þangað til eftir verslunarmannahelgi. Ég segi sennilega vegna þess að mögulega hendi ég í eitt enn í næstu viku, en líklegast ekki. Ég þakka samfylgdina síðastliðinn þingvetur, öll skilaboðin, ummælin, deilingarnar og allt hitt. Sjáumst í næsta stríði eftir rúman mánuð.

Það er svo grátlega erfitt að vera banki á Íslandi
Morgunblaðið hefur átt hvern stórleikinn á fætur öðrum að undanförnu í sífellt súrrealískri og ótrúverðugri framsetningu á áróðri sínum fyrir hönd sérhagsmunahópsins sem á og rekur blaðið. Fyrir utan hefðbundnu kranablaðamennskuna, sem birtist meðal annars í nánast vikulegri gegnumstreymislokafrétt um hvaða skoðanir Guðlaugur Þór Þórðarson eða Jón Gunnarsson hringja inn í fyrrverandi aðstoðarmann þess síðarnefnda, er blaðið vitanlega komið á djöflamerginn þegar kemur að andstöðu við að þjóð fái að taka ákvörðun um hvort hún vilji sjá aðildarsamning við Evrópusambandið eða ekki.

Nokkur dæmi um algengar fréttir í Morgunblaðinu, sem byggja eingöngu á skoðunum handfylli þingmanna Sjálfstæðisflokks. Mynd: Samsett

Birtingarmyndirnar verða sífellt kostulegri. Fyrir tæpum tveimur vikum teppalagði Morgunblaðið helgarblaðið sitt af hræðsluáróðri og þvælu í þessu máli og er nú auk þess búið að ákveða að eina vinstra fólkið sem fær pláss fyrir skoðanir sínar sé það sem deilir skoðunum með eigendum blaðsins um aukið samstarf við Evrópu. Blaðamennirnir sem stýra umfjölluninni um Evrópusambandið keppast svo við að opinbera að þeir eru stækir andstæðingar þess að þjóðin fái að sjá samning með öfugum dyggðarskreytingum og yfirlýsingar-römmum á samfélagsmiðlum. Engin tilraun er gerð til að fela hlutdrægnina lengur.

Um síðustu helgi gekk Morgunblaðið loks í björg, birti bara greiningar, fréttir, pistla og skoðanagreinar sem máluðu upp hel-mynd af Evrópusambandinu og settu það meira að segja á forsíðu að matur væri í raun miklu ódýrari á Íslandi en í Evrópu og að þeir landsmenn sem teldu sig bundna í klyfjum vaxtaokurs væru bara að misskilja. Einn ágætur maður lýsti þeirri gaslýsingaraðferðafræði með meðaltölum sem stuðst væri við þannig að með sama hætti mætti segja að það væri betra veður á Íslandi en á meginlandinu ef leiðrétt væri fyrir úlpum.

Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og tryggingastærðfræðingur, kjarnaði þessa nýju óttahagfræði Morgunblaðsins og froðufellandi Nei-sins ágætlega í neðangreindri færslu. Með sömu þvælurökum væri hægt að segja að matarkarfan væri 30 prósentum ódýrari í Garðabæ en í Reykjavík vegna þess að íbúar Garðabæjar eru með meiri ráðstöfunartekjur.

Bankar í öngum sínum

Blaðið einskorðar sig þó ekkert við Evrópusambandið þegar kemur að pólitískt hlaðinni sérhagsmunagæslu. Enn ein hræðslufréttin var birt í byrjun viku, og nú um að virði íslenskra banka myndi lækka svo ægilega mikið ef ríkið myndi auka álögur á umframhagnað þeirra. Látið var í veðri vaka að þetta myndi hafa svo ægileg áhrif á eign ríkissjóðs (sem á einn banka sem er ekki skráður á markað og engar áætlanir eru um að selja), lífeyrissjóða (sem eru neyddir með höftum til að kaupa skráðar íslenskar eignir sem þeir hafa lítið sem ekkert að gera með hvernig eru reknar) og þeirra einstaklinga sem hafa keypt litla hluti í bönkum.

Það vita þó allir sem vilja að Morgunblaðinu er alveg sama um allar þessar einingar. Þeirra hagsmunagæsla er fyrir einkafjárfestana sem lifa í sama valdakerfi og málgagnið.

Það er ekki bara Morgunblaðið sem er búið að vera á kafi í sérhagsmunagæslunni síðustu daga og vikur. Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) héldu líka stórskemmtilegt málþing um að það mætti alls ekki leggja á aukinn bankaskatt. Ég gerðist meira að segja svo frægur að rata inn í erindi bankastjóra Arion banka á málþinginu þegar hann ætlaði sannarlega að skora stig í Þjóðmálum með því að sparka í þann málm frá meginlandinu sem býr leigufríast í hausnum á þeirri holdlegu minnimáttarkennd.

Að nenna ekki að lesa sér til gagns

Bankastjórinn, Benedikt Gíslason, birti mynd af frábærri forsíðu Kjarnans frá árinu 2014 og notaði sem innleiðingu í ræðu sinni. Hugmyndin var sennilega sú að sýna fram á að ég hafi einhvern tímann verið sammála honum um harminn sem fylgir bankaskatti. Benedikt hafði þó ekki haft fyrir því að lesa þessa tólf ára gömlu fréttaskýringu mína, sem eldist reyndar fáránlega vel. Andlag hennar var annars vegar gagnrýni á að bankar í myljandi hagnaði væru með áform um að velta þeirri yfirvofandi bankaskattshækkun (sem ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar stóð fyrir) yfir á viðskiptavini sína og hins vegar gagnrýni á að þeir fjármunir sem skatturinn var eyrnamerktur á þeim tíma ættu að fara í að greiða tugi milljarða króna í skaðabætur úr ríkissjóði vegna verðbólguskots, aðallega til efnameiri hluta þjóðarinnar undir hatti Leiðréttingarinnar.

Það var viðeigandi að bankastjórinn vitnaði í Ronald Reagan samhliða aflutningi sínum á fréttaskýringu Kjarnans, enda fáir, ef einhverjir, þjóðarleiðtogar í sögunni sem hafa haft jafn blinda trú á brauðmolakenningunni um að ef þú gerir hina ríku ríkari þá munu mylsnur detta til allra hinna. Mynd: SFF/Skjáskot

Málþingið hverfðist annars um kynningu sem ráðgjafafyrirtækið Intellecon hafði unnið eftir pöntun SFF. Sama fyrirtækið vann sambærilega kynningu fyrir sama hagsmunagæsluarm í nóvember 2024 um nánast sama efni og komst þá að því að svokallað „Íslandsálag“ á banka væri ástæða þess að kjör almennings væru ekki betri. Ég fjallaði um þetta fyrir einu og hálfu ári síðan, líkt og sjá má hér að neðan:

Eru bankarnir í alvöru undir lamandi „Íslandsálagi“?

Stóru íslensku bankarnir hafa búið til frasann „Íslandsálag“ um þær auknu álögur og kvaðir sem þeim er gert að greiða hérlendis en aðrir bankar í álfunni þurfa ekki að greiða. Þeir láta í það skína að lækkun eða afnám „álagsins“ myndi skila sér í betri kjörum til almennings. Ekkert í fyrri breytni bendir þó til þess. Síðast þegar skattar voru lækkaðir á íslenska banka þá stungu þeir ávinningnum í vasann.

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Meginniðurstaðan í nýju kynningunni var sú að afborgun á 50 milljón króna húsnæðisláni myndi aukast um 66 þúsund krónur á mánuði ef ríkið hækkar bankaskatt. Þessi niðurstaða átti, líkt og sú fyrri, að hræða heimilin í landinu í samkennd með skattpíndum bönkum. Hún lítur hins vegar algjörlega fram hjá því að bankarnir þurfa ekkert að velta aukinni skattlagningu yfir á viðskiptavini sína. Þeir geta einfaldlega greitt hana af hagnaði umfram þegar mjög háar arðsemiskröfur.

Stungu lækkun í vasann

Nú skulum við byrja á því að spóla til baka. Eftir að hafa vælt og skælt yfir bankaskatti árum saman og sagt að hann bæri stóra sök á dýrum lánum á Íslandi þá lækkaði síðasta ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hann úr 0,376 prósentum af heildarskuldum banka umfram 50 milljarða króna í 0,145 prósent árið 2012. Áætlað er að þetta hafi minnkað skattgreiðslur bankanna þriggja um samtals tólf milljarða króna fyrstu þrjú árin eftir að lækkunin tók gildi og enn meira síðan þá.

Sama ríkisstjórn lét gera skýrslu sem birt var seinni hluta árs 2023 um greiningu á gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Á meðal þeirra sem áttu fulltrúa í hópnum, sem var þéttskipaður nafntoguðum hagfræðingum, var SFF. Niðurstaða þeirrar skýrslu var að íslensku bankarnir hefðu alls ekki gert lán til fyrirtækja og heimila ódýrari eftir skattalækkunina. Þvert á móti hefðu þeir tekið alla þessa milljarða króna sem runnu ekki lengur í ríkissjóð og stungið þeim í vasann. Þeir juku einfaldlega arðsemi sína og borguðu meira til hluthafa.

Bjarni Benediktsson var fjármála- og efnahagsráðherra þegar bankaskatturinn var lækkaður þannig að ríkissjóður varð af tólf milljörðum króna á þremur árum. Í skýrslu sem var unnin fyrir ríkisstjórnina sem Bjarni sat í kom fram að bankarnir hafi stungið þessum peningum í vasann. Mynd: Stjórnarráðið.

Sama hafa þeir gert með þá auknu hagkvæmni sem orðið hefur í rekstri þeirra á síðustu árum. Hagkvæmni sem bankarnir hafa meðal annars náð með því að fækka starfsfólki og loka útibúum en bjóða viðskiptavinum þess í stað upp á stafrænar lausnir til að stunda sín bankaviðskipti. Þessum ávinningi var líka stungið í vasann og hann svo greiddur þaðan til hluthafa.

Þetta eru ekki litlar upphæðir. Síðustu ár hefur rekstrarkostnaður bankanna farið hríðlækkandi sem hlutfall af tekjum. Hann var 59 prósent árið 2018 og fór niður í 47 prósent 2022. Það hlutfall var með því lægsta sem þekkist meðal norrænna banka af svipaðri stærðargráðu.

Þrátt fyrir það hefur rekstrarkostnaðurinn ekki gert neitt annað en að halda áfram að dragast saman. Hjá Landsbankanum er kostnaðarhlutfallið nú 34,3 prósent og hjá Arion banka 36 prósent. Það þýðir að þessir tveir bankar þurfa að eyða einni krónu til að græða sirka þrjár. Slíkt er með því hagkvæmasta sem fyrirfinnst í heiminum. Íslandsbanki er ekki langt frá með kostnaðarhlutfall upp á 42,4 prósent. Það er, með öðrum orðum, mjög hagkvæmt að reka banka á Íslandi í öllum samanburði.

Mjög erfitt að græða meira en stefnt var að

Arðsemiskrafa er undirliggjandi markmið um hvað hver banki ætlar að græða mikið á því að miðla peningunum sem við leggjum inn í hann til annarra. Munurinn á þessum vöxtum er kallaður vaxtamunur. Á Íslandi var hann 2,7-3,2 prósent á síðasta ári.

Ef arðsemiskrafan er óeðlilega há þá leiðir það til þess að verð hækkar, enda flest fyrirtækin sem selja okkur nauðsynjavöru að einhverju leyti skuldsett. Þrýstingur skapast á að laun hækki sömuleiðis, enda eru laun notuð til að borga af lánunum.

Landsbankinn, Íslandsbanki, Arion banki og Kvika banki högnuðust samtals um 98,1 milljarð króna á árinu 2025. Uppistaðan í rekstrarhagnaði þeirra voru hreinar vaxtatekjur af því að lána íslenskum heimilum og fyrirtækjum peninga. Þær voru um 75 prósent allra hreinna tekna.

Þrátt fyrir að íslenskum bönkum sé gert að halda á miklu meira eigin fé en aðrir bankar í álfunni okkar, vegna þess að þeir settu Ísland nánast á hausinn fyrir 18 árum, þá er arðsemi á eigið fé þeirra allra vel yfir markmiði. Mest var hún hjá Arion banka, 14,9 prósent og Kviku, 14,5 prósent. Hjá Landsbankanum var það 11,6 prósent og Íslandsbanka 11,2 prósent.

Ég fór yfir það á þessum vettvangi fyrir nokkrum mánuðum að meðaltalsarðsemi á eigið fé banka í Evrópu var 7,4 prósent á þriðja ársfjórðungi síðasta árs. Þegar einungis stórir bankar voru skoðaðir – miklu, miklu stærri bankar en þeir sem starfa á Íslandi með víðfeðma alþjóðlega starfsemi – þá fór sú arðsemi upp í 9,4 prósent.

Ekki dróst gróði íslensku bankanna, þeirra sem tala eins og þeir muni þurfa að fara í matargjafarraðir ef álögur á þá verða auknar lítillega öllu samfélaginu til heilla, saman á fyrstu þremur mánuðum yfirstandandi árs. Arðsemi eigin fjár þeirra var 13,5 til 15,7 prósent. Hagnaðurinn var myljandi. Og langt yfir yfirlýstu markmiði.

Snúa tökkunum upp i hagnað að vild

Það verður ekki sagt nægilega oft að íslenskir bankar starfi á fákeppnismarkaði. Meira og minna allir viðskiptavinir þeirra eru innlendir og samkeppni að utan er einungis bundin við að útlenskir bankar eru fyrir nokkuð löngu búnir að bjóða útflutningsfyrirtækjum sem eru með tekjur í öðru en íslenskum krónum margfalt betri kjör og þannig taka þau úr krónulánakerfinu.

Þeir hafa sýnt það í verki að þegar álögur á þá eru lækkaðar þá hefur það hverfandi jákvæð áhrif á þegar vaxtapíndan almenning eða kjörin sem bankarnir bjóða fyrirtækjum landsins. Þeir einu sem hagnast á því eru hluthafar bankanna og stjórnendurnir sem fá meira borgað ef þeim tekst að auka arðgreiðslur eða endurkaup. Þetta er staðfest í uppgjörum og þetta er staðfest í skýrslunni sem unnin var fyrir síðustu ríkisstjórn. Stjórnendur banka á Íslandi hreinlega ráða því hvað þeir græða mikið. Þeir snúa bara tökkunum upp í þann styrk sem hentar. Og oftast vilja gera þeir það meira og minna í algjörum takti við hvorn annan.

Þess vegna er ekki erfitt að réttlæta auknar álögur á banka, í takti við kjarnastefnu jafnaðarfólks um að við búum í samfélagi, leggjum öll til eftir þörfum og getu og berum ábyrgð hvert á öðru.

Þurfum bara að hækka fleiri skatta á rétta aðila

Þótt Sjálfstæðisflokkurinn og Borgartúnið vilji snúa aftur til þess tíma sem ríkið var rekið á yfirdrætti ár eftir ár með þeim afleiðingum að uppsafnaður halli frá 2019 er 830 milljarðar króna, og telja að tilgangur ríkissjóðs sé að lækka álögur, með beinum eða óbeinum hætti, á ríkt fólk, þá er það augljóslega ekki ábyrg fjármálastefna. Og fólk sem vill láta taka sig alvarlega talar ekki fyrir svona steypu.

Sjálf­stæðis­flokkur sem er ekki hægt að taka al­var­lega - Vísir

Margir fylgdust með af áhuga um helgina hvort Sjálfstæðisflokkurinn, sem einu sinni var þungamiðja íslenskra stjórnmála til áratuga, myndi nýta flokksráðsfund til að breyta um kúrs og fara aftur í átt að miðju sem gerði flokkinn að því afli sem hann var áður. Hvort hann ætlaði að stíga skref í átt að því að láta taka sig alvarlega að nýju.

visir.is • Þórður Snær Júlíusson

Nú situr ríkisstjórn sem ætlar að ná hallalausum fjárlögum á næsta ári. Í árlegri úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á stöðu Íslands kemur fram að stjórnvöld hér hafi brugðist rétt við innlendri hagþróun, einkum þróttmikilli eftirspurn, með aðhaldssamari hagstjórn bæði í ríkisfjármálum og peningamálum. Planið styðji við hjöðnun verðbólgu sem fyrirséð er að geti lækkað hratt á næstu mánuðum, jafnvel þannig að forsenduákvæði kjarasamninga í haust haldi.

AGS segir að aðhaldið sem hafi verið innleitt byggi ekki bara á hagræðingu heldur ekki síður á aukinni tekjuöflun ríkissjóðs. Það telur sérstaklega til kílómetragjaldið og hækkun veiðigjalda, mál sem stjórnarandstaðan hefur fundið allt til foráttu. Til viðbótar sagði AGS að ef þörf væri á frekari aðgerðum til að ná markmiðum nýsamþykktrar fjármálaáætlunar ætti ríkið að ráðast í frekari tekjuöflunaraðgerðir. Með öðrum orðum að hækka einhverja skatta eða gjöld á þá sem sannarlega geta lagt meira til í samneysluna.

Efst á þeim lista eru íslenskir bankar.

Sárindavélin sem er að éta börnin sín
Árum saman kvartaði hópur á hægri væng umræðunnar yfir fórnarlambavæðingu snjókorna hins svokallaða vóks. Að frjálslynda fólkið – oft kallað skítlibbar á samfélagsmiðlum andstæðinga – sem taldi sig vera að bæta heiminn með framsýnum þrýstingi um aukna viðurkenningu og vernd væri um leið farið að skilgreina vanlíðan, mótlæti, móðgun eða ósamþykki sem einhvers konar ofbeldi. Með því hafi þessi hópur farið að nota særindi, annaðhvort fyrir eigin hönd eða annarra, sem pólitískt vald til að hefta umræðu eða jafnvel útiloka einstaklinga sem voru þeim ósammála eða struku þeim illa.

Það var ýmislegt til í þessari gagnrýni. Hinn pólitíski pendúll sem sveiflað var af stað í góðri trú með göfug markmið endaði að hluta til í öfgum sem fólu í sér að ágreiningur var túlkaður sem árás, orð meðhöndluð sem ofbeldi, útilokunarmenning skaut sterkum rótum og ábyrgð einstaklings á sjálfum sér í mörgum tilvikum látin víkja fyrir stöðugri skírskotun til ábyrgðar kerfisins á því að slétta út krumpurnar í lífinu. Seigla, ábyrgð og rökræða véku, í mörgum tilvikum, fyrir viðkvæmni, sjálfsmynd og tilfinningalegu neitunarvaldi.

Það er ekki heilbrigt samfélag ef fólk er hrætt við að orða efasemdir og það er ekki frjálslyndi að skipta heiminum upp í hreina og óhreina. Þegar það var orðin staðan missti þessi stefna heimatilbúna siðferðislega forskot sitt í huga margra og fékk þess í stað á sig ásýnd stjórnlyndis, refsigleði og jafnvel stéttablindu.

Þetta gekk einfaldlega allt of langt.

Pendúll sem sveiflaðist hratt í hina áttina

Afleiðingar þessa urðu alls konar. Að hluta til fjarlægði hófsamara fólk sig einfaldlega frá öfgunum og þeim böndum sem þau bundu það í. En það varð líka til grundvöllur fyrir mun harkalegra and-vók viðbragð.

Þar á ég við nokkurs konar alþjóðlega pólitíska, menningarlega og samfélagslega andspyrnuhreyfingu gegn því sem hermenn hennar upplifðu sem siðferðislega yfirkeyrslu, ógn gegn tjáningarfrelsi, sjálfsmyndarpólitík og fórnarlambastöðu sem valdakerfi. Þegar pendúllinn fór að sveiflast í þessa átt þá gerði hann það á slíkum ógnarhraða að það kom ansi mörgum í opna skjöldu.

Þarna fór hópur sem taldi frjálslynda vinstrið hafa slegið einkarétt sinn á siðferðið og reis upp gegn því. Stundum var gagnrýnin réttmæt, en í sífellt auknum mæli litaðist hún af afturhaldssamri gremju eða hreinni reiði. Og þróaðist á skástu dögunum út í mannvonsku og almenn andstyggilegheit, sérstaklega gagnvart alls kyns minnihlutahópum, en á þeim verstu í eitthvað sem erfitt er að skilgreina öðruvísi en alvarlegt daður við fasisma. Þetta er hið svokallaða menningarstríð og hagsmunahægrið tók sér svo vitanlega far með þessu öllu saman. Um það er hægt að lesa hér.

Hagsmunahægrinu er alveg sama þótt það taki sér far með menningarstríðinu

Sumir stunda stjórnmál þar sem útlit, frásögn og sjálfsmynd skipta meira máli en pólitísk afstaða og efnisleg áhrif. Aðrir leggja mesta áherslu á að skipta fólki upp í „gott“ og „vont“, selja þá hugmynd að lífsgæði séu takmörkuð stærð og boða á baki þess útilokandi þjóðerniskennd, draumsýnir um bjarta fortíð og almennt hatur á frjálslyndi, jöfnuði og alþjóðasamvinnu. Að endingu eru þetta þó oftar en ekki farartæki fyrir þá sem stunda klassíska stéttarbaráttu til að taka sér far með í það sinn. Undirliggjandi er alltaf slagurinn um hverjir eigi að njóta samfélagsins mest, hinir mörgu eða hinir fáu.

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Hér erum við að tala um einn af helstu undirliggjandi straumunum í uppgangi og sigrum Donalds Trump, Brexit-vegferðinni, uppgangi hægri popúlisma í heiminum og sífellt sterkari stöðu þjóðernissinnaðra flokka víða á Vesturlöndum.

Birtingarmyndin hér á Íslandi hefur falist í þróun Miðflokksins og áhrifum hans á Sjálfstæðisflokkinn, sem hefur á undanförnum árum elt þann flokk út í alls kyns popúlíska skurði í örvæntingafullri leit að fleiri atkvæðum til að sefa valdmissisgremjuna sem hefur heltekið þann flokk.

Úr snjókorni í slyddu

Með tímanum náði þessi vegferð fótfestu og naut stuðnings langt út fyrir jaðarinn vegna þess að hún beindist að því að opinber umræða væri að verða of viðkvæm, refsigjörn og ófrjáls.

Líkt og gerðist með vinstra frjálslyndið þá át andstöðubyltingin hins vegar líka börnin sín. Nú er þetta fyrirbæri orðið að eigin útgáfu af nákvæmlega sama kerfi og það sagðist fyrirlíta. Endalaus sárindavél sem telur sig misskilda, fórnarlamb og verður í sífellu sárt fyrir hönd annarra.

Snjókornið bráðnaði ekki og hvarf, það skipti bara um ham og varð að skítugri slyddu. Vinstra frjálslyndið öskraði að allt og ekkert fyllti það óöryggi og slyddan öskrar að allt sé árás á lífshætti hennar og skoðanir. Hún varð hin nýja pólitíska rétttrúnaðarlögregla. Fór að krefjast þess að bækur, kennsluefni, umræðuefni og skoðanir yrðu fjarlægðar úr almannarýminu og jafnvel bannaðar. Fór að telja það að einhver skilgreindi sig út frá einhverju öðru en heimsmynd sinni og hugmyndum um hversu mörg kynin væru sem persónulega árás á sitt frelsi til að anda og lifa. Svona er hægt að halda lengi áfram.

Að vilja að Bubbi haldi kjafti og syngi

Nýlegt dæmi eru viðbrögð við því að Bubbi Morthens viðraði skoðanir á andstyggilegheitum við minnihlutahópa, Evrópusambandinu og húsnæðislánum á afmælistónleikum sínum. Gremjumenn sem elska Bubbann sinn en áttuðu sig á því að hann hefur aðrar nálganir en þeir froðufelldu og vildu að hann myndi halda kjafti og syngja Aldrei fór ég suður á endurtekningu. Þessi afstaða sýnir svo mikinn grundvallarmiskilning á því af hverju Bubbi er það þjóðskáld og menningargersemi sem hann er. Bubbi hefur verið svo margir persónuleikar á sínum 70 árum. Hann var stéttabaráttu-Bubbi, pönk-Bubbi, eiturlyfja-Bubbi, Bubbi sem elskaði Brynju á sólarströnd, stórgrossera-Bubbi sem hékk með útrásarvíkingum, mótmæla-Bubbi sem reis upp gegn hrunverjum, veiði-Bubbi, massaði-Bubbi, Bubbi sem gefur vinnu sína þeim sem þurfa á því að halda. Og svo framvegis.

Þjóðskáldið Bubbi Morthens á sjötugsafmælistónleikum sínum þar sem hann, auðvitað og eðlilega, lýsti skoðunum sínum á hinu og þessu. Mynd: RÚV

Söngleikurinn um líf hans hét Níu líf en gæti alveg eins hafa heitið 40 persónuleikar. Bubbi er breyskur og stundum brotinn snillingur sem skilur þjóðina vegna þess að hann hefur verið þorri hennar. Maður sem hefur gert fullt af mistökum og allskonar þvælu en ennþá meira gott sem vegur miklu meira. Og hikar ekki við að lýsa skoðunum sínum á meðan. Þess vegna er hann einn merkilegasti listamaður sem við höfum átt og þess vegna hefur hann selt okkur meira af plötum, textabrotamyndum og tónleikamiðum en nokkur annar. Að elska Bubba en skilja þetta ekki er sérkennilegur staður að vera á.

En mjög on brand, ef ég leyfi mér að sletta. Andstaðan við að allir yrðu steyptir í sama mót er orðin að kröfu um að allir séu steyptir í sama mót, bara öðruvísi og íhaldssamara mót en áður.

Þessi endalausa framleiðsla á hneykslun úr gramasta fjarhægrinu er líka orðin nokkurs konar iðnaður. Harðgerðir karlar með fortíð setja upp íslenskar útgáfur af InfoWars og skiptast á að koma í hlaðvarpsheimsókn hver hjá öðrum til að væla yfir því að flestir séu vondir við þá, kerfið bregðist þeim og konur séu með of mikið frelsi sem hindri þær í að búa til fleiri börn. Þeir sjá óvini í hverju horni og eru sérstaklega hræddir við útlendinga eða alls kyns fána sem eru ekki sá íslenski.

Öll málefnaleg gagnrýni er árás. Öll málefnaleg umræða er áróður. Það sem þér finnst er jafngilt því sem er staðreynd.

Síðasta frekjukastið

Þetta er ekki jaðarhópur, heldur nýtur hann fylgis margs af valdamesta og efnaðasta fólki landsins, þeirra sem eiga mörg af stærstu fyrirtækjunum og þeirra sem eiga eða stýra flestum einkareknu fjölmiðlunum sem básúna einhliða pólitískan þvætting á forsíðum oft í viku.

Auk þess er nær allur hlaðvarpsmarkaðurinn einokaður af fjarhægrinu. Eitt sem sameinar þessi öfl um þessar mundir er síaukin tortryggni þessara gagnvart frelsi og alþjóðlegu samstarfi. Sérstaklega Evrópusambandinu.

Viðskiptalífið í krónuhagkerfinu

Stjórnmál verða óheiðarlegust þegar þau hætta að snúast um staðreyndir og fara að snúast um að halda við einhverjum völdum. Það sést skýrt í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. Þar er almenningi sagt að samningsmarkmið liggi ekki fyrir, að ekkert sé til að semja um, að kostnaður krónunnar sé óljós og að leyndarhyggja ráði för. Allt er þetta rangt, eða í besta falli vísvitandi villandi. Kjarni málsins er einfaldur: þjóðin á að fá að vita hvaða valkostur stendur til boða. Hún á að fá sam

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Í ljósi þessa var kostulegt að fylgjast með síðasta frekjukastinu hjá þessum hóp, sem snerist um að sérfræðingum var boðið í umræðuþátt á RÚV til að ræða téð Evrópusamband. Þarna var um að ræða fólk sem hafði tekið beinan þátt í viðræðum um aðild þegar þær fóru fram á árunum 2009–2013 eða hafði sértæka þekkingu á Evrópumálum eða -rétti. Fólk með reynslu eða þekkingu sem er raunverulega einstök hérlendis. Fólk sem er ekki beinir þátttakendur í flokkapólitík og hefur sumt hvert lýst því skýrt yfir opinberlega að það sé alls ekkert víst að það muni greiða atkvæði með inngöngu.

Ég var ekki viss um hvernig umræðu ég myndi fá að upplifa þegar ég settist niður til að horfa. Hvort hin séríslenska ósýnilega spennitreyja óttans um að trufla eitthvað valdamikið fólk yrði til þess að allir myndu passa sig á að segja ekkert. Það varð ekki.

Enginn öskraði í sjónvarpinu

Þess í stað birtist yfirveguð, vitræn og öfgalaus umræða um kosti og galla þess fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið. Öll forðuðust viðmælendur afdráttarlausar yfirlýsingar, öll undirstrikuðu þau óvissu og aðgreindu staðreyndir frá pólitísku mati. Um leið afþýddu þau auðvitað, og eðlilega, alls kyns bábiljur og upphrópanir sem settar hafa verið fram af þeim sem geta ekki hugsað sér að þjóð fái að vita hverjir möguleikar hennar í Evrópusamstarfi eru.

Gremjuhópurinn bræddi úr sér. Engin kvótasetning var viðhöfð sem veitti öllum skoðunum, jafnt þeim sem byggja á tilfinningum, ranghugmyndum eða jafnvel hreinum ósannindum sem og þeim sem byggja á staðreyndum, jafnt vægi. Enginn froðufelldi eða öskraði í sjónvarpinu.

Hér var komið risastórt samsæri ríkismiðilsins, sem hann vill endilega losna við svo allar upplýsingar landsmanna komi frá sérhagsmunaniðurgreiddu Morgunblaðinu, og þjóðníðinga sem vilja fórna fullveldi Íslands fyrir ódýra spænska skinku og útlenskt súkkulaði sem er ekki búið til úr smjörlíki.

Sérfræðingarnir sem hræddu líftóruna úr þeim sem vilja ekki leyfa þjóðinni að sjá samning um að aðild að Evrópusambandinu. Mynd: RÚV/Skjáskot

Samfélagsmiðlar voru teppalagðir af bræði. Hlaðvörpin flutt á innsoginu. Hneykslunarræður voru haldnar í þinginu. Heimsýn sendi opið bréf til að kvarta yfir þættinum og því að utanríkisráðherra Austurríkis hafi verið tekin í viðtal án þess að einhver skilgreindur Evrópusambandsandstæðingur væri til andsvara. Forstöðumaður þess félagsskapar bætti svo við í viðtali að honum sýndist trú fréttamanna á því að „embættismenn og fræðimenn séu í eðli sínu hlutlausir sé mjög mikil og oft á skjön við raunveruleikann. Eins hafa margir þá trú að það sé hægt að fá fræðimenn til að koma með „hið rétta svar“ við öllu mögulegu, stundum langt út fyrir það sem hægt er. Það myndi kannski auðvelda lífið.“

Klassískari kjörnun á því grunneðli popúlismans að tortryggja alla sérfræðinga sem styðjast við gögn og staðreyndir frekar en tilfinningar í greiningum sínum er erfitt að finna.

Hin mikilvæga atkvæðagreiðsla

Okkur farnast best þegar við stjórnumst ekki af öfgum, þegar við tölum hvert við annað frekar en á hvort annað. Þegar við sýnum virðingu og hluttekningu í samskiptum í stað þess að frussa af bræði.

Fram undan er gríðarlega mikilvæg þjóðaratkvæðagreiðsla. Hún er gríðarlega mikilvæg vegna þess að í henni fær þjóðin beint forræði á eigin örlögum. Og hún er gríðarlega mikilvæg vegna þess að ef hún er látin snúast um eitthvað annað en spurninguna sem spurt er um þá mun það vinna gegn því að við getum farið í fleiri svona atkvæðagreiðslur um lykilmál.

Á báðum hliðum spurningarinnar um hvort Ísland eigi að hefja viðræður við Evrópusambandið á ný er fólk sem er löngu búið að ákveða sig um hvort Ísland eigi að ganga til liðs við það. Ekkert mun breyta þeirra afstöðu og það á að virða það. Flestir landsmenn eru hins vegar ekki svona vissir. Vilja vita meira. Og geta alveg verið ósammála öðrum án þess að finnast andstæð afstaða vera stækt mannréttindabrot gagnvart sér, fórnarlambinu í þessu öllu saman.

Það eru kostir og gallar við að ganga í Evrópusambandið. Þá kosti og galla þarf að draga fram með samningi svo þjóðin geti mátað sig við þá. Kostir eins geta verið gallar annars, og öfugt.

Ég vona að við fáum aukinn frið frá barlómi öfga næstu vikur. Frá fólkinu sem talar á okkur og vill fá að ákveða hvað okkur á að finnast og vill koma í veg fyrir að við fáum að leggjast yfir það sjálf út frá staðreyndum. Ég vona að umræðan verði heilt yfir meira eins og í Silfrinu á mánudag.

Ég er samt ekkert sérstaklega vongóður um að verða bænheyrður.

Viðskiptalífið í krónuhagkerfinu: Lokað íslenskt valdakerfi sem þarf að opna
Stjórnmál geta oft verið ansi óheiðarleg. Þeir sem skeyta minnst um að segja satt eða styðjast við raunveruleika í sinni pólitísku framsetningu eru, eðli málsins samkvæmt, líklegastir til að sýna af sér mestan óheiðarleika hverju sinni. Ef þér er alveg sama um hvað þú segir, þá segirðu bara eitthvað svo lengi sem þú telur að það auki líkur þínar á endurkjöri næst þegar kosið verður.

Þetta er sérstaklega sýnilegt í yfirstandandi umræðum um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja viðræður við Evrópusambandið á ný, sem fara mun fram í lok ágúst. Því er til að mynda statt og stöðugt haldið fram af hálfu stjórnarandstöðuflokka að samningsmarkmið liggi ekki fyrir. Samt liggja þau fyrir og eru meðal annars aðgengileg í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar sem hægt er að lesa hér að neðan.

1183/157 nál. með brtt.: þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu

Alþingi

Því er statt og stöðugt haldið fram að það sé ekki þannig að kostnaður við krónuna liggi fyrir. Samt liggur hann alveg fyrir ásamt ábatanum við upptöku evru, sem er meiri en ábatinn af krónu. Hægt er að lesa um það í neðangreindri skýrslu.

Kostnaður af krónu líklega meiri en ábatinn

Sérfræðingahópur sem fjármála- og efnahagsráðuneytið fól að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum hefur skilað niðurstöðum sínum. Skýrslunni er ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi. Ráðuneytið efnir til ráðstefnu um efni skýrslunnar í Hörpu þann 2. júní næstkomandi.

www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/05/29/Kostnadur-af-kronu-liklega-meiri-en-abatinn

Því er statt og stöðugt haldið fram að það sé ekkert til að semja um þrátt fyrir að það liggi fyrir í fjölda dæma að undanþágur og aðlaganir eru varanlegur hluti af Evrópusambandinu og að háttsett fólk innan þess hafi ítrekað opinberlega talað fyrir því að Ísland sé „sérstakt tilvik“.

Því er statt og stöðugt haldið fram að verið sé að leyna fólki lykilupplýsingum í sérstökum „leyniklefa“, helst til að skapa sömu hughrif og sama stjórnarandstaða notaði í Icesave-málinu á kjörtímabilinu 2009–2013, jafnvel þótt um sé að ræða frekar óspennandi gögn um milliríkjasamskipti sem vani er að trúnaður ríki um. Þegar fundin var leið til að gera þessi gögn aðgengileg fyrir alla þingmenn nennti þorri stjórnarandstöðunnar ekki einu sinni að fara og skoða þau. Einungis þingmenn Miðflokksins, sem bera höfuðábyrgð á leikritinu í kringum „leyniklefann“, og einn Sjálfstæðismaður létu sig hafa það.

Allskonar gervigreindarmyndir eru á flakki þar sem góðlátlegt grín er gert af hræðsluáróðri og upplýsingaóreiðu andstöðuflokkanna. Hér er ein sem ég fékk sent nýverið. Mynd: ChatGTP

Í enda dags kjarnaði Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, hvað allur þessi málflutningur snýst um þegar hún missti út úr sér fágætt sannleikskorn í Kastljósviðtali. Þjóðin er ekkert að fara „að ráða þessu“.

Það eiga einhverjir aðrir að gera það. Einhverjir sem eru betur til þess fallnir að hafa vit fyrir þessum vitleysingum sem búa hér á þessu skeri. Einhverjir eins og Sigríður og meðreiðarfólk hennar í A- og B-liði íslenska íhaldsins.

Allt þetta pólitíska leikrit snýst nefnilega um að reyna að láta almenning ekki ræða mögulega aðild að Evrópusambandinu efnislega. Þegar rembingnum og upplýsingaóreiðunni sleppir er þetta hins vegar ekkert sérstaklega flókið: atkvæðagreiðslan í ágúst snýst um að treysta þjóðinni til að skoða valkost fyrir sig. Ef henni líst á þann valkost þegar búið er að semja um hvernig hann lítur út þá gefst þjóðinni kostur á að samþykkja hann eða hafna.

Þannig getur hver kjósandi mátað samninginn og þá framtíð sem hann færir okkur við sína eigin stöðu, jafnt kosti hans og galla, og greitt svo atkvæði.

Fyrir mér er stærsti kosturinn sem getur fengist með Evrópusambandsaðild sá að brjóta upp óformlega valdakerfið sem byggst hefur upp hérlendis í krafti fákeppni og í vari örgjaldmiðils. Kerfi þeirra sem hagnast á grundvelli betra aðgengis að tækifærum, upplýsingum og peningum annarra sem þeir nálgast á gráa svæðinu milli viðskipta og stjórnmála. Kerfi þeirra sem berjast nú af mestum ofsa gegn viðræðum vegna þess að það hefur af þeim völd.

Við skulum taka þrjú dæmi úr umræðunni síðustu vikur.

Dæmi eitt: Náttúrutalentarnir í fákeppnisumhverfinu

Það dytti engum heilvita manni í hug að greiða strætóbílstjóra bónusa fyrir að halda áætlun. Slíkur hvati gæti valdið samfélagslegri stórhættu. Gæti hann fengið fimm þúsund kalli meira borgað ef hann stoppaði ekki fyrir krakkanum á hjólinu á næstu gangbraut? Gæti hann náð áætlun með því að fara yfir á appelsínugulu ljósi? Væri það þess virði að svína inn í umferðina frá næstu stoppustöð ef hann skilaði sér á tíma? Eða bara sleppa stoppustöðvunum alveg, það gæti líka verið leið að árangri.

Fjárhagslegur hvati þykir samt ekki bara æskilegur, heldur bráðnauðsynlegur, víða í efstu deild íslensks viðskiptalífs. Í hverju fákeppnis- eða einokunarfyrirtækinu á fætur öðru er sett upp einhvers konar kaupaukakerfi sem hvetur til aukinnar áhættusækni. Þannig fengu forstjórar skráðra félaga á Íslandi frá 2,2 og upp í 47 milljónir króna greiddar í bónusgreiðslur ofan á laun og umfangsmiklar lífeyrisgreiðslur í fyrra.

Svo eru sum launakjör sem allt venjulegt fólk klórar sér eðlilega í hausnum yfir, til dæmis laun forstjóra Icelandair. Fyrst smá söguleg upprifjun.

Í Covid-faraldrinum fékk Icelandair meiri fyrirgreiðslu úr opinberum sjóðum en nokkurt annað til að koma sér í gegnum faraldurinn. Icelandair sótti sér líka tvívegis nýtt hlutafé á þessum tíma upp á meira en 30 milljarða króna á þávirði sem gerði það að verkum að almennir hluthafar þynntust niður um 80 prósent. Stærstir í þeim hópi voru íslenskir lífeyrissjóðir. Almenningur tók mikinn þátt í þessari aukningu og hluthöfum í Icelandair Group fjölgaði um sjö þúsund. Útboðsgengið í stærri hlutafjáraukningunni var ein króna á hlut. Gengið í dag er 0,7 krónur á hlut, sem þýðir að einstaklingur sem keypti fyrir eina milljón króna árið 2020 til að styðja við Icelandair gæti selt bréfin sín á 700 þúsund krónur, eða með 300 þúsund króna tapi.

Gengi hlutabréfa í Icelandair síðustu fimm árin. Mynd: Skjáskot/Keldan

Hluthafarnir hafa ekki fengið neinn arð vegna fjárfestingar sinnar. Icelandair hefur raunar ekki greitt slíkan frá árinu 2018, einfaldlega vegna þess að Icelandair tapar peningum. Á síðustu átta árum hefur rekstarniðurstaða fyrirtækisins einungis einu sinni verið jákvæð, um 1,5 milljarð króna árið 2023. Uppsafnað tap á síðustu átta árum er hins vegar nálægt 80 milljörðum króna. Marínó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka, sem kom mikið að endurskipulagningu Icelandair í faraldrinum, skrifaði ágæta grein nýverið í Morgunblaðið þar sem hann benti á að hluthafar væru að niðurgreiða laun starfsfólks og að staða Icelandair, sem væri þjóðhagslega mikilvægt fyrirtæki, væri alvarleg.

Marinó var þar að vísa í launakröfur starfsmanna, ekki stjórnenda, en um fjögur þúsund manns vinna hjá Icelandair. Lesa mátti á milli línanna að þar væri hann sérstaklega að tala til flugmanna, sem eru í harðri kjarabaráttu sem stendur.

Það er þó rétt að benda á að stjórnendur Icelandair hafa ekki stillt sín kjör af í takti við afkomu. Á árinu 2021 hækkuðu laun forstjóra fyrirtækisins til að mynda um næstum helming þrátt fyrir næstum 14 milljarða króna tap. Vorið 2022 var svo samþykkt bónuskerfi fyrir stjórnendur svo þeir færu ekki að vinna annars staðar vegna þess að stjórnendurnir sjálfir töldu þörf á „sterkari varðveisluáætlun ásamt endurskoðuðu starfskjarafyrirkomulagi æðstu stjórnenda“. Miðað við markaðsvirði Icelandair þegar bónuskerfið var samþykkt var virði þess um tveir milljarðar króna.

Hlutabréf í Icelandair lækkuðu um 39 prósent í fyrra þegar fyrirtækið skilaði sér enn og aftur í taprekstri. Á fyrsta ársfjórðungi 2026 bættust fimm milljarðar króna til viðbótar í þá taphít. Laun forstjórans hækkuðu hins vegar um 18 prósent þegar þau eru umreiknuð í íslenskar krónur (Icelandair gerir upp í Bandaríkjadölum) og af heildarlaununum voru níu milljónir króna árangurstengd greiðsla, fyrir að tapa peningum hluthafa.

Tugmilljóna launahækkanir forstjóranna í kauphöllinni

Laun forstjóra skráðra félaga hækka víða töluvert á milli ára, á sama tíma og tengsl þeirra við afkomu og verðmætasköpun fyrirtækjanna eru óljós. Fimm forstjórar fengu meira en hundrað milljónir greiddar. Í heild kostuðu 26 forstjórar 3,1 milljarð króna.

Heimildin • Aðalsteinn Kjartansson

Icelandair er alls ekkert einsdæmi í þessum málum. Alvotech tapar til að mynda gríðarlegum peningum á hverju einasta ári og ljóst má vera á þróun hlutabréfaverðs í fyrirtækinu í fyrra, sem lækkaði um 64 prósent, að hlutirnir voru ekki að afar eins og lagt var upp með. Samt hækkuðu laun forstjóra Alvotech á milli ára. Sá sem átti hlut í Eimskip í byrjun árs fyrir 10 milljónir króna gat selt sama hlut á tæplega 8,3 milljónir króna um síðustu áramót. Bréfin höfðu rýrnað um 29 prósent í virði og viðkomandi „tapað“ 1,7 milljón króna af fjárfestingu sinni. Samt hækkuðu laun forstjóra Eimskips einna mest allra í Kauphöllinni á árinu 2025.

Staðreynd málsins er þessi: Á sama tíma og markaðsvirði skráðra hlutabréfa í íslensku kauphöllinni dróst saman um 22 prósent á síðasta ári þá hækkuðu laun forstjóranna. Einungis einn slíkur var með laun undir 50 milljónum króna á ári og að meðaltali voru þeir sem stýra félögum á aðalmarkaði að taka heim um 9,7 milljónir króna á mánuði. Það þýðir að meðalforstjórinn þénaði nánast það sama á einum mánuði á árinu 2025 og miðgildi launa var á Íslandi í fyrra. Á mannamáli þýðir það að helmingur þjóðarinnar þénar ekki það sem forstjórarnir þéna á einum mánuði, á einu ári.

Dæmi tvö: Tugmilljarða viðskipti við eldhúsborðið

Annað dæmi sem kom upp í vikunni um það hvernig kaupin gerast á eyrinni snýst um kaup á fyrirtækinu Lýsi. Stærstu eigendur þess fyrirtækis hafa verið Katrín Pétursdóttir og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, sem var stjórnarformaður Ísfélagsins árum saman og náinn samstarfsmaður Guðbjargar Matthíasdóttur, aðaleiganda þess.

Í bankahruninu, nánar tiltekið daginn eftir að neyðarlög voru sett á Íslandi til að forða okkur frá þjóðarþroti, keypti félag Guðbjargar Lýsi af þeim Katrínu og Gunnlaugi á 235 milljónir króna. Nokkrum árum síðar var Lýsi hins vegar komið aftur í þeirra eigu og hefur tekið þátt í alls kyns fjárfestingum í óskyldum rekstri með fjárfestingafélagi Guðbjargar, meðal annars í Domino´s á Íslandi og útgáfufélagi Morgunblaðsins.

Ísfélagsfjölskyldan hennar Guðbjargar og fylgitungl eru raunar einna stórtækust allra blokka sem hagnast hafa gríðarlega á sjávarútvegi í að kaupa upp eignir í öðrum geirum. Um það fjallaði ég í síðustu viku, í samhengi við nýja skýrslu sem Dagur B. Eggertsson og fleiri báðu um sem sýnir hluta af fjárfestingum nokkurra útgerðarfjölskyldna og eins kaupfélags í öllu öðru sem hægt er að kaupa á Íslandi og hversu hratt það er að gerast.

Nánast fyndið hefur verið að fylgjast með Morgunblaðinu, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og hlaðvarpstrúðunum sem hafa það hlutverk að gaslýsa fólk í þágu útgerða landsins reyna að afflytja innihald skýrslunnar. Greinilegt er að það stingur að verið sé að opinbera fáveldisáhrifin sem kvótakerfið hefur leitt af sér.

Athygli mín var vakin á því að skýrslan hafi ratað inn í pistil forstjóra Ísfélagsins með nýlegu uppgjöri þess. Þar sagði: „Arður sem greiddur er til hluthafa er talinn eðlilegt endurgjald til þeirra sem lagt hafa félaginu til fjármagn í formi hlutafjár alveg eins og þeir sem lána félaginu fjármagn fá vaxtatekjur af því. Orðræða sumra þeirra sem standa á hinu pólitíska sviði, bæði aðal- og aukaleikara, um hagnað og arðgreiðslur sjávarútvegsfyrirtækja og fullyrðingar um leyndarhyggju í þessum efnum eru einfaldlega rangar. “

Hvar maðurinn finnur fullyrðingum sínum stað veit enginn.

Lýsi hefur svo vaxið og dafnað og skilað myndarlegum hagnaði á síðustu árum. Á árinu 2024 var hagnaður ársins, eftir skatta, 930 milljónir króna og litlu minni en árið áður. Samt voru eigendur Lýsis með böggum hildar í umsögn sinni um leiðréttingu á veiðigjöldum í fyrra. Þar sagði að aukin veiðigjöld yrðu „alvarleg ógn við tilvist Lýsis“ vegna þess að það myndi draga úr getu fyrirtækisins til að kaupa hráefni í vörur sínar.

Skömmu síðar var svo greint frá því að Brim ætlaði að kaupa Lýsi á 30 milljarða króna. Það hefði skilað Katrínu og Gunnlaugi Sævari um átta milljörðum króna í reiðufé og öðru eins í hlutabréfum í Brimi. Katrín, sem er forstjóri Lýsis, ræddi þessi viðskipti í viðtali við áramótablað Viðskiptablaðsins og sagði þar að það hefði tekið hana og Guðmund Kristjánsson, forstjóra og aðaleiganda Brims, um það bil „tvo tíma við eldhúsborðið heima“ að klára þessi viðskipti. „Við höfum verið vinir lengi og traustið því svo sannarlega til staðar. Traustið skiptir öllu máli og vegna þess þurftum við enga ráðgjafa til að fá okkar til að véfengja hvort annað.

Úr viðtali við forstjóra Lýsis í Áramótum, blaði sem Viðskiptablaðið gefur út. Mynd: Skjáskot/vb.is

Brim, sem er einn stærsti kvótahafi á Íslandi og þar með einn helsti greiðandi veiðigjalda, hefur ekki upplifað mikla ógn við tilvist sína síðan að veiðigjaldafrumvarpið var samþykkt eftir lengsta málþóf Íslandssögunnar úr hendi stjórnarandstöðuflokkanna á þingi. Markaðsvirði Brims hefur þvert á móti rokið upp og aukist um 60 prósent, eða rúmlega 63 milljarða króna, á þeim tíu mánuðum sem liðnir eru frá samþykkt laganna. Það er því nóg til, reksturinn í miklum blóma og fjárfestingagetan gríðarleg. Svo gríðarleg að það var hægt að handsala 30 milljarða króna díl til að kaupa Lýsi, stóran hlut í pizzukeðju og eignarhlut í Morgunblaðinu við eldhúsborðið hjá Katrínu.

Fyrir utan Guðmund eru stærstu eigendur Brims íslenskir lífeyrissjóðir. Þeir hafa sennilega ekki verið alls kostar sáttir við „gamla mátann“ ofan í það að hafa lítið sem ekkert með stjórn flestra skráðra fyrirtækja sem þeir eiga samanlagt yfir helmingshlut í að gera. Sú niðurstaða var að minnsta kosti birt í vikunni að stjórn Brims hefði ákveðið að lækka verðmiðann á Lýsi um 10 milljarða króna og borga bara 20 milljarða króna.

Dæmi þrjú: Íbúðir eftirsóknarverðasta fjárfestingarvaran

Þótt arðsemiskrafa flestra fákeppnisfélaganna í kauphöllinni, sem selja fyrst og síðast íslenskum heimilum og fyrirtækjum vörur eða þjónustu, hafi rokið upp á síðustu misserum þá hefur það ekki gert hlutabréf að jafn eftirsóknarverðum fjárfestingakosti. Þvert á móti dróst markaðsvirði skráðra hlutabréfa saman um heil 22 prósent á síðasta ári og er í dag töluvert undir því sem það var um síðustu áramót.

Það þarf því ekki að vera sjóaður í Borgartúnsfræðum til að sjá að fyrir utan stærstu hluthafana í hverju félagi fyrir sig, sem eiga nægjanlega stóran hlut til að taka góða ávöxtun í formi arðs eða endurkaupa, þá er íslenski hlutabréfamarkaðurinn ekkert sérstaklega spennandi fjárfestingarkostur fyrir þá sem eiga sparnað eða áhættufjárfestingarfé.

Þess í stað hafa fjárfestar, efnaðar fjölskyldur og aðrir með fé á milli handanna keyrt fast inn á fasteignamarkað í leit að arðsemi. Þar hefur það lagaumhverfi sem hægristjórnir áranna 2013–2024 komu á, og núverandi stjórn er að vinna í að laga í stórum skrefum, skipt miklu. Það má segja að á því tímabili hafi verið búið til ógrynni hvata til að gera íbúðir að fjárfestingarvörum í stað þess að vera fyrst og síðast heimili fólks. Verðið hefur fyrir vikið rokið upp meira en í nokkru samanburðarlandi.

Samandregið hefur það fengið að viðgangast allt of lengi á Íslandi að fjárfestar geti safnað upp íbúðum sem fjárfestingarvörum og verslað svo með þær meira og minna skattfrjálst. Braskarar hafa getað haldið lóðum sem gætu hýst blómlega byggð óbyggðum árum saman til að reyna að knýja fram meira byggingamagn eða vegna þess að þeir eru að bíða eftir að fá hærra verð fyrir að gera ekkert. Og húsnæðisstuðningi síðustu ríkisstjórna hefur fyrst og síðast verið beint gegn efnamestu landsmönnunum.

Afleiðingarnar blasa við öllum. Sífellt fleiri íbúðir safnast á færri hendur og sífellt fleiri íbúar eru fyrir vikið útilokaðir frá því að eignast húsnæði.

Í nýlegri skoðanagrein fasteignasala sem birt var á Vísi var bent á að í dag séu 61 prósent íbúða í eigu einstaklinga sem eiga einungis eina íbúð. Það hlutfall hefur farið hratt lækkandi. Haldi þessi þróun sem átt hefur sér stað á síðustu árum áfram verður það hlutfall komið niður í 34 prósent árið 2066. Þriðjungur íbúða yrði heimili og tveir þriðju yrðu fjárfestingarvara.

Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til nú þegar á þessu kjörtímabili í húsnæðispökkum ríkisstjórnarinnar hafa margar það markmið að mynda nýjan og andstæðan hvata: að reyna að koma sem flestum íbúðum úr fjárfestingarhlutverkinu og yfir í heimilishlutverkið.

Hin hliðin á þeim pening, sem ætti líka að vera eftirsóknarverð fyrir hlutabréfamarkað sem kvartar sífellt yfir litlum áhuga almennings á sér, er að það ýtir fjárfestum, sem eðlilega eru alltaf að reyna að ávaxta sitt pund, í fjárfestingar í atvinnulífinu. Sem yrði frábært.

Nokkur af mjög mörgum vandamálum

Ný skýrsla sem birt var í síðustu viku sýnir, líkt og fleiri skýrslur þar á undan, að íbúar landsins borga fullt fyrir það að viðhalda þessu krónuhagkerfi. Sá kostnaður er blanda af beinum kostnaði sem af krónunni hlýst, áhættuálagi, óhagkvæmni, varúðarkostnaði og töpuðum tækifærum.

Hann er líka óbeinn og þar skipta svimandi háir vextir mestu. Varlega er hægt að áætla að ríki, sveitarfélög, fyrirtæki og heimili geti borgað nokkur hundruð milljarða króna minna í vexti af innlendum árum ef þeir fara að taka mið af stýrivöxtum Seðlabanka Evrópu í stað Seðlabanka Íslands.

En mesti ávinningurinn sem við munum fá er uppbrot á þessu heimóttarlega strokusamfélagi sem lýst er hér að ofan. Þar er þó einungis bent á þrjú nýleg vandamál, fákeppnisumhverfisins, samkeppnisleysisins og þess valdakerfis sem við höfum því miður komið okkur upp í krónuhagkerfinu á Íslandi.

Mikið verður gott þegar það verður að veruleika. Fyrsta skrefið í þá átt verður stigið 29. ágúst næstkomandi með því að segja já við fleiri möguleikum og um leið nei við lokuðu kerfi sumra sem allir hinir borga fyrir.

Kvótakerfið sem varð að valdakerfi
Enginn vafi er á að staða íslensks sjávarútvegs er feikilega sterk. Hagur geirans í heild hefur vænkast um á áttunda hundrað milljarða króna hið minnsta á síðustu 17 árum á sama tíma og mikil samþjöppun hefur átt sér stað innan hans. Færri eiga meira og fyrir liggur að auður fjögurra fjölskyldna og eins kaupfélags með rætur í sjávarútvegi var metinn á um 500 milljarða króna fyrir tveimur árum. Margt benti til að þar væri um verulegt vanmat að ræða og miðað við ganginn í geiranum síðan þá hefur bæst vel við þann auð.

Þessi auður er sannarlega ekki að fara að dragast mikið saman í fyrirsjáanlegri framtíð. Við skulum til að mynda skoða Síldarvinnsluna, verðmætasta skráða útgerðarfyrirtæki landsins. Hún keypti fyrir ekki svo löngu Vísi í Grindavík fyrir á fjórða tug milljarða króna sem voru greiddar aðallega fyrir kvóta. Rekstur Síldarvinnslunnar gekk svo vel í fyrra að fyrirtækið þurfti að gefa frá sér jákvæða afkomuviðvörun og í ár er enn meiri sláttur á því.

Hagnaður á fyrsta ársfjórðungi var fimm sinnum meiri en á sama tíma í fyrra, eða 5,1 milljarður króna. Frá því að lög um breytt veiðigjöld, sem áttu samkvæmt áróðri Sjálfstæðisflokks, SFS og Morgunblaðs að setja sjávarútveg á heljarþröm, voru samþykkt á Alþingi um miðjan júlí í fyrra hefur markaðsvirði Síldarvinnslunnar aukist um 82,5 milljarða króna, eða 64,5 prósent. Það þýðir að hlutur tveggja stærstu eigendanna, Samherja og Kjálkaness (í eigu sömu fjölskyldu og á útgerðina Gjögur), sem saman eiga rúmlega 46 prósenta hlut, hefur hækkað í verði um 38 milljarða króna í virði á rúmlega tíu mánuðum.

Reynt að fela

En aftur að heildarmyndinni. Þennan auð hafa stærstu aðilarnir í sjávarútvegi notað til að kaupa upp margt annað í íslensku samfélagi. Um það er auðvitað enginn vafi.

Þar er bæði um að ræða fyrirtæki í óskyldum rekstri en líka minni útgerðir sem héldu á kvóta. Því hafa yfirráð yfir fákeppnismörkuðum á Íslandi sem heimili landsins hafa ekkert val um að versla við og nýting á þjóðareigninni í hafinu færst á sífellt færri hendur.

Mikil andstaða hefur hins vegar verið við það hjá geiranum og stjórnmálamönnum sem taka sér frekar stöðu með honum en almenningi við að teikna upp fulla mynd af þessu fáveldi.

Fyrri skýrslubeiðni þingmanns, sem lögð var fram 2020, var til að mynda svarað með þeim hætti að það væri lagalegur ómöguleiki að leyfa eigendum auðlinda að vita hversu mikið þeir sem fá að nýta þær hafa eignast.

Það reyndist síðan þvættingur. Lagalegi ömöguleikinn var einungis til í framsetningu þáverandi sjávarútvegsráðherra sem nú gegnir stjórnarformennsku í félagi á vegum stórútgerðar.

Hvað var verið að fela?

Á Íslandi eiga nokkrar fjölskyldur mörg hundruð milljarða króna auð sem þær hafa eignast með nýtingu á þjóðareign. Þann auð hafa þær nýtt til að kaupa sig inn í óskyldan rekstur í viðskiptalífinu. Fyrir liggja upplýsingar um sterka stöðu þeirra í smásölu, fjölmiðlum, fasteignaviðskiptum, heildsölu, fjármálakerfinu og jafnvel í sósugerð. Heildarmyndin um ítök stærstu eigenda sjávarútvegsfyrirtækjanna í íslensku samfélagi liggur þó ekki fyrir og fyrri tilraunir til að varpa ljósi á hana hafa mætt mótstöðu fyrri stjórnvalda. Nú á loksins að birta þessa mynd enda engin þörf á leynd ef enginn hefur neitt að fela.

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Eignarhaldið og samþjöppunin kortlögð

Þess vegna báðu Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og tólf aðrir stjórnarþingmenn um það í fyrrahaust að eignarhald 20 stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins í óskyldum rekstri yrði kortlagt.

Nú liggur skýrslan, sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann, fyrir. Samkvæmt henni eiga þessar 20 útgerðir og eigendur þeirra samtals eignir í öðrum fyrirtækjum sem metnar eru á 406 milljarða króna. Ef leiðrétt er fyrir snúningi vegna tilfærslu á eignarhaldi á risavöxnu sjávarútvegsfyrirtæki (Samherja-samstæðunni) frá foreldrum til barna í gegnum fyrirframgreiddan arf og seljendalán þá fer sú tala upp í 441 milljarð króna.

Dagur B. Eggertsson fór fyrir hópi stjórnarþingmanna sem óskaði eftir skýrslunni. Mynd: Samfylkingin

Í skýrslunni kemur líka fram að þessar 20 útgerðir hafi eignast 60 prósent af þessum eignum á áratug. Eignir hafa þjappast saman inni í þessum samstæðum eða eigendum þeirra og sérstaklega þeim sem eiga mest. Þannig áttu þrír stærstu eigendahóparnir meira en helming af öðrum eignum útgerða.

Þar fyrir utan eru útgerðirnar í samantektinni alls ekki 20 í raun. Sumar þeirra eru að fullu í eigu annarra. Þá teiknast upp sú mynd að fjórar til fimm blokkir tengdra aðila halda á miklum meirihluta af kvóta á Íslandi og eru flestar orðnar afar fyrirferðarmiklar í öðrum geirum en sjávarútvegi.

Þessi staða endurspeglast líka í opinberum tölum um auð landsmanna. Í byrjun árs 2025 átti til að mynda ríkasta 0,1 prósent landsmanna um 391 milljarð króna í hreinni eign og hafði þá tvöfaldað þann auð í tíð stjórnartíð síðustu ríkisstjórnar. Stór hluti eigna þessa hóps er verulega vanmetinn og því er heildarumfang auðæva hans án vafa miklu meira. Þar skipta verðbréf og kvóti mestu.

Þið sjáið alveg hvert þessar tölur leiða okkur. Færri eiga sífellt meira og meira og meira af öllu hér á Íslandi.

Það vantar stór púsl í stóru myndina

Skýrsla Hagfræðistofnunar málar þó einungis upp afmarkaðan hluta af myndinni. Fyrir liggur að hún tekur ekki tillit til nema hluta af þeim eignum í óskyldum rekstri sem stóreignafjölskyldur í útgerð hafa eignast á undanförnum árum.

Stikkprufur sýna það.

Þannig vantar til að mynda inn í hana eignarhald Samherjafjölskyldunnar í Eimskip, sem hefur verið bókfært á tugi milljarða króna á síðustu árum, og eignarhald Ísfélagsfjölskyldunnar á eigin fjárfestingafélagi sem var sagt eiga 55 milljarða króna eignir fyrir einu og hálfu ári. Á meðal eigna þess fjárfestingarfélags, Kristins ehf., eru sum stærri fyrirtæki landsins í matvælaframleiðslu og heildsölu, auk fasteignafélaga og fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Eðlilegt er að áætla að það vanti því eignir upp á hið minnsta tugi, en líklega hundruð, milljarða króna til að úttektin gæti talist tæmandi.

Hluti af ástæðunni fyrir því að þetta vantar inn virðist vera yfirsjón. En hluti er líka vegna þess, líkt og RÚV benti á í sinni umfjöllun um skýrsluna, að Hagfræðistofnun styðst við umdeilda túlkun laga um stjórn fiskveiða sem miðar við að ein útgerð eða sami aðili verði að eiga helming í annarri til þess að hægt sé að tala um þær sem tengda aðila. „Þetta er óháð því hvort yfirráð yfir stjórnum beggja séu ein og hin sama – skilgreining sem gerir jafnvel ráð fyrir að einstaklingar í sömu fjölskyldu, systkini jafnvel, séu ótengdir.“

Þjóðin á skilið að vita hver á hana

Af þessu er ljóst að skýrslan er einungis fyrsta skrefið í átt að því að mála upp skýra mynd af því hvað auðsöfnun nokkurra fjölskyldna í útgerð, sem orðið hafa ríkari á hátt sem við höfum ekki áður kynnst í Íslandssögunni, hefur leitt af sér. Það þarf að greina allar eignir þessa hóps með tæmandi hætti og eftir geirum til að sjá hversu stóran hluta af Íslandi útgerðarfjölskyldurnar hafa eignast á síðustu árum.

Það er líka nauðsynlegt að halda áfram að skoða hversu mikið af þessum auð féll til eftir að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, tóku við valdataumunum 2013 og létu það verða sitt fyrsta verk að hríðlækka veiðigjöld til að auka verulega á ofsagróðann.

Svo þarf að greina raunáhrif þessara blokka á atvinnulíf þar sem íslenskir lífeyrissjóðir eru skikkaðir með höftum til að fjárfesta mikið án þess að hafa nein raunveruleg áhrif á það hvernig fyrirtækin sem þeir eiga, og selja skjólstæðingum sjóðanna vörur og þjónustu á hverjum degi, haga sér.

Ráða engu með einkafjárfesta í bakpokanum

Áður en ég útskýri þessa stöðu er rétt að fara yfir það landslag sem íslenskir lífeyrissjóðir starfa í.

Algjörlega án þess að það bæri ábyrgð á því sjálft var lífeyrissjóðakerfinu beitt á síðustu tæpu tuttugu árum til að tryggja ítök einkaaðila í þjóðhagslega mikilvægum fyrirtækjum sem þeir eiga ekki nema að hluta. Sjóðirnir voru látnir endurfjármagna íslenskt viðskiptalíf eftir bankahrunið og borga fyrir endurreisn hlutabréfamarkaðar. Ströng fjármagnshöft gerðu það að verkum að þeir gátu ekki annað. Það var fátt annað sem þeir gátu keypt fyrir sívaxandi sjóði sína, peninga launafólks.

Þeir eiga í dag um 1.125 milljarða króna í hlutabréfum og hlutdeildarskirteinum í fyrirtækjum til viðbótar við að eiga mörg þúsund milljarða króna í skuldabréfum sem að hluta til eru útgefin af sömu fyrirtækjum. Miðað við þetta eiga lífeyrissjóðirnir um helming allra skráðra hlutabréfa á Íslandi og slatta af skuldum sömu fyrirtækja.

Þegar þeim var loks hleypt úr höftum voru lífeyrissjóðirnir fljótir að reka sig langleiðina upp í lögbundið þak á slíkum fjárfestingum. Það er nefnilega þak á því hversu mikið lífeyrissjóðirnir okkar mega skipta af krónum yfir í aðra gjaldmiðla til að kaupa verðbréf úti í heimi. Lengi vel var það þak helmingur eigna sjóðanna.

Stjórnendur lífeyrissjóða hafa árum saman kallað eftir því að þak verði afnumið en það stendur ekki til. Að hluta til vegna þess að hröð útför þeirra úr krónuhagkerfinu myndi óhjákvæmilega veikja örgjaldmiðilinn, krónuna, gríðarlega. Og að hluta til vegna þess að innlendir fjármagnsmarkaðir, sem haldið er uppi af íslenskum lífeyrissjóðum, myndu veikjast alveg svakalega. Íslensku lífeyrissjóðirnir eru einfaldlega lykilfjármögnunarkerfi íslenska hagkerfisins.

Fyrir nokkrum árum var kynnt til leiks breyting á lögum sem fól í sér að þakið fyrir erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna hækkar í 65 prósent á 15 árum, frá 2024. Það gulltryggir að óbreyttu áframhaldandi ítök einkafjárfestanna, til dæmis þeirra fjölskyldna sem eiga stærstan hlut í stærstu útgerðarfyrirtækjunum, í bakpoka lífeyrissjóðanna yfir íslensku atvinnulífi út þann tíma. Sjóðirnir þurfa áfram að eiga stóran hlut í skráðum félögum hérlendis, en ráða litlu eða engu um hvernig þau eru rekin, hvernig laun stjórnendur þeirra greiða sér, hvernig bónuskerfi eru sett upp eða hver arðsemiskrafan er.

Á þetta hefur reynt aftur og aftur á síðustu árum, með litlum sem engum árangri hjá þeim lífeyrissjóðum sem leggja áherslu á samfélagslega ábyrgð við fjárfestingar sínar.

Evran skýr lausn á vandamálinu

Upptaka evru með inngöngu í Evrópusambandið myndi leysa þennan vanda lífeyrissjóðanna samstundis. Hann yrði einfaldlega ekki lengur til staðar. Þeir gætu fjárfest þar sem þeir vildu án þess að skapa kerfislega gengisáhættu.

Þetta vita einkafjárfestar á íslenskum markaði og það litar mótstöðu þeirra gegn því að fara í aðildarviðræður. Þá gætu þessar kjöraðstæður, að eiga lítinn hlut í stóru fyrirtæki en stýra því meira og minna eins og þeim hentar vegna þess að lífeyrissjóðirnir sem eiga uppistöðuna í því eru „laissez faire“ gagnvart stýringu á skráðum eignum sínum, horfið eins og dögg fyrir sólu.

Útgerðarfyrirtækin vita líka hversu mikilvægt það er viðskiptalega að hafa aðgang að lánsfé í evrum, þeim vöxtum sem þar bjóðast og að geta gert upp í þeirri mynt enda gera þau það flest. Nýjustu tölur sem Heimildin tók saman sýna að alls 257 íslensk fyrirtæki geri upp í erlendum gjaldmiðlum og að þeim hafi fjölgað um 75 prósent á tíu árum. Flest þeirra gera upp í evru.

Á Íslandi í dag búa sum fyrirtæki í evru-veruleika á meðan að heimili landsins og önnur fyrirtæki búa í krónuveruleika. Mynd: Pexels

Ef horft er á 20 stærstu útgerðirnar og dótturfélög á þeim lista talin með samstæðu móðurfélaga kemur í ljós að ellefu gera upp í evrum.

Fyrir hvern er þetta kerfi eiginlega?

Staðan er því þannig að á sama tíma og íslensk heimili standa frammi fyrir því að verðlag hér er næstum tvöfalt hærra en að meðaltali í Evrópu, og raunar það hæsta í heimi, þá hafa nokkrar fjölskyldur keypt sig inn í flesta geira samfélagsins hér á landi. Uppistaðan af þeim kaupum hafa átt sér stað á síðastliðnum rúma áratug, í boði þeirra ríkisstjórna sem sátu að völdum á Íslandi frá 2013 til loka árs 2024.

Þessar fjölskyldur, blokkir eða hvað sem við viljum kalla þær, stýra verðlagi, arðsemiskröfum og fjölmiðlun. Þær hafa líka pólitísk áhrif á flokkana sem sitja í minnihluta á þingi, sérstaklega Sjálfstæðisflokkinn sem er nokkurs konar pólitískur armur stórútgerðarinnar.

Flestar þessara fjölskyldna hafa fyrir löngu sagt sín stærstu fyrirtæki úr íslensku krónunni en hagnast mikið á því að halda íslenskum heimilum og fyrirtækjum henni. Á sama tíma hamast stjórnmálaflokkarnir og fjölmiðlarnir sem ganga erinda þeirra á því að Ísland eigi alls ekki að fara í viðræður um hvað Evrópusambandsaðild felur í sér vegna þess að þeir vita að slík aðild myndi setja varanlegar sprungur í fáveldið sem er í öruggum skrefum að eignast Ísland.

Þetta er staðan. Skýrslan sem birt var fyrir helgi staðfestir þetta.

Hver og einn þarf að spyrja sig hvort það sé eitthvað sem viðkomandi sættir sig við til allrar framtíðar.

Pólitísk innrömmun og raunveruleikinn
Maður lærir það fljótt við störf í stjórnmálum að þar skiptir innrömmun miklu máli. Pólitískir andstæðingar takast á um að setja fram sínar útgáfur af því sem sé rétt um menn og málefni, með breytilega miklum frjálsleika og stundum andstyggilegheitum.

Ég hef því tamið mér að reyna að undirbyggja það sem ég set fram með vísun í gögn og með því standa á einhverju öðru en magatilfinningu. Eða bara að ljúga, eins og sumir á þessu sviði og í ákveðnum fjölmiðlum gera þegar þeir vilja setja varalit á svínið eða koma höggi á fólk. Í hægrimiðlunum gildir sú regla að því oftar sem viðkomandi einstaklingur eða afl er nefnt á nafn, því hræddari er hægrið við þá. Ég þekki það vel.

Nú eru yfirstaðnar sveitarstjórnarkosningar og hefur ótrúlega margt verið sagt um þær mjög víða í skýrum innrömmunartilraunum. Hér að neðan ætla ég að reyna að fara yfir niðurstöður þeirra, setja þær í samhengi við söguna og slá á hlægilegustu möntrurnar sem verið er að reyna að selja okkur um þær.

Það sem sést strax á yfirborðinu

Byrjum á því sem er nokkuð augljóst og þarf ekkert að breiða yfir. Hægri flokkum gekk betur en síðast á sumum stöðum í kosningunum og Sjálfstæðisflokkurinn vann nokkra sigra, sérstaklega í Reykjavík og Kópavogi. Árangurinn í Reykjavík í fylgistölum hjá þeim aldna valdaflokki er svipaður og 2010 og 2018 en töluvert undir því sem flokkurinn fékk 2006, síðast þegar hann komst í meirihluta (fékk þá 42,9 prósent).

Sjálfstæðisflokkurinn rak árangursríka kosningabaráttu, sérstaklega á þessum tveimur stöðum, og er tilefni til að óska honum til hamingju með að hafa komist í stöðu til að mynda næsta meirihluta í höfuðborginni í fyrsta sinn eftir kosningar í tvo áratugi. Síðustu ár hefur hann nefnilega ekki þótt stjórntækur.

Nú á flokkurinn tvo meginmöguleika í Reykjavík. Annars vegar að mynda meirihluta með Framsóknarflokki og Viðreisn, sem ætti að geta orðið nokkuð öfgalaus meirihluti sem gæti staðið vörð um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins að meginstefnu. En hann gæti líka orðið eitthvað allt annað og myndi alltaf standa frammi fyrir því að Einar Þorsteinsson væri með Rómarkeisaravald um líf og dauða allra mála í eins manns meirihluta.

Hinn möguleikinn – sá líklegri – er að meirihluti verði myndaður með Miðflokknum, sem yrði alls ekki öfgalaus. Stefna þess flokks, hvort sem það er í samgöngumálum, mannréttindum, rekstri eða ummönnunarmálum, er þess eðlis að ég ætla að leyfa mér að fullyrða að hún sé á skjön við skoðun og vilja flestra borgarbúa sem kjósa ekki Miðflokkinn.

Þess utan er Miðflokkurinn nú fullur af sömu innanmeinunum úr Sjálfstæðisflokknum sem olli því að hann hefur ekki talist stjórntækur í síðustu kosningum í borginni þrátt fyrir að hafa verið stærsti flokkurinn í borginni 2018 og 2022. Það væri ákveðin tegund af karma að losa sig við óstjórntæknina úr borgarstjórnarflokknum einungis til þess að þurfa að mynda meirihluta með henni eftir kosningarnar.

Þessi staða er því ekki einföld fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Við skulum samt sem áður ekki efast um það í eina sekúndu að hann tekur alltaf valdið fram yfir allt annað og í krafti þess mun flokkurinn finna lausn.

Aðeins meira um höfuðborgina

Svo við klárum Reykjavík þá liggur fyrir, þrátt fyrir ævintýralegar bábiljur sem bornar voru á borð í kosningabaráttunni, að sá meirihluti sem tekur við mun líka taka við nokkuð góðu búi. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur gerir enda ráð fyrir því að A-hlutinn, sá sem er rekinn að mestu fyrir skattfé, verði rekinn með 4,8 milljarða króna hagnaði í ár, 6,9 milljarða króna hagnaði á næsta ári og 7,8 milljarða króna hagnaði árið 2028. Svo verður það ekki sagt nógu oft að Reykjavík er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem getur greitt þær skuldir og afborganir sem gjaldfalla á yfirstandandi ári án þess að taka lán eða selja eignir. Sú sjálfbærni í rekstri er nokkurs konar ofurkraftur.

Þá er fjöldinn allur af leikskólaplássum sem hafa ekki verið í notkun vegna viðgerða á leiðinni aftur inn samhliða því að árgangar verða minni og Reykjavíkurleiðin hefur þegar gert það að verkum að leikskólar borgarinnar eru orðnir að meira aðlaðandi vinnustöðum, minnkað bilið milli vinnutíma starfsfólks og vistunartíma barna, bætt mönnunarstöðu og mætt foreldrum á jafnræðisgrunni út frá efnahagslegri stöðu þeirra.

Áhyggjuefnin sem þarf að hafa í huga eru þau að Reykjavíkurborg á verðmætar eignir sem sumar hverjar eru gríðarlega mikilvægir innviðir fyrir borgarbúa og þjóðina. Það er stefna Sjálfstæðisflokksins að selja hluta þeirra eigna og Miðflokkurinn mun sennilega seint standa í vegi fyrir því.

Jafnaðarfólk mun berjast hart gegn slíkum ráðstöfunum, bæði úr minnihluta í Reykjavík og á öðrum vettvöngum.

Hvernig fór stóri leikurinn?

Á landsvísu liggur fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið langstærsti flokkur landsins á sveitarstjórnarstiginu. Hann býr að því að vera stofnun í íslenskum stjórnmálum með öflugt grasrótarstarf út um allt land sem á sér langa sögu og er með þræði inn í félagastarf á flestum sviðum samfélagsins. Flokkurinn hefur einfaldlega, svona meira og minna, alltaf ráðið Íslandi frá lýðveldisstofnun og kerfin eru hönnuð til að hygla honum.

Þetta skilar sér iðulega í sveitarstjórnarkosningum þar sem hann hefur líka boðið fram mun fleiri „hrein“ framboð en aðrir flokkar og er oftar en ekki í meirihluta víðs vegar um landið.

Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig 14 fulltrúum á landsvísu og fékk allt í allt 127. Samkvæmt Hagstofutölum um kjörna fulltrúa flokka var hann með 113 fyrir og bætir því við sig 14. Vert er að taka fram að árangurinn 2022 var sá versti hjá Sjálfstæðisflokknum í fjölda fulltrúa á sveitarstjórnarstiginu að minnsta kosti síðan 1974, en tölur Hagstofunnar ná ekki lengra aftur. Á því tímabili hefur fjöldinn verið frá því að vera 113 í að vera 149. Staðan í dag er því rétt fyrir neðan miðgildi þess bils.

Vert er að horfa til þess að í kosningunum fyrir fjórum árum varð sannkölluð Framsóknarsveifla þegar sá flokkur bætti við sig heilum 23 fulltrúum á landinu öllu. Nú gengur sú bylgja að langmestu leyti til baka og Framsókn tapar 15 fulltrúum. Það þýðir að saman tapa þessir tveir helstu valdaflokkar íslenskrar stjórnmálasögu einum fulltrúa á landsvísu.

Gengi Samfylkingarinnar

Gengi Samfylkingarinnar í Reykjavík var ekki alls staðar í fullum takti við það sem vonast var eftir, vegna þess að framboðið ætlaði sér meira. En það verður líka að horfa til þess að Samfylkingin hefur stýrt Reykjavík í einhverri mynd meira og minna frá árinu 1994, verið samfleytt að leiða meirihluta í 16 ár í eigin nafni og það virtist vera komin þreyta hjá borgarbúum gagnvart borgarstjórn í heild, sem birtist skýrast í trausttölum þar sem hún mælist óvinsælasta stofnun Íslands. Í könnun sem Gallup birti í febrúar mældist það einungis 13 prósent. Það gerðist á sama tíma og traust til Alþingis jókst og mælist nú næstum þrisvar sinnum meira en gagnvart stjórn borgarinnar.

Úr könnun Gallup á trausti til helstu stofnana íslensks samfélags sem birt var í febrúar 2026. Mynd: Skjáskot

Hluti af því að traustið er svona lítið er sú innrömmun á verkum borgarstjórnar sem hefur, því miður, að mestu verið eftirlátin pólitískum andstæðingum og fjölmiðlum á þeirra vegum, aðallega Morgunblaðinu og Viðskiptablaðinu. Þið þekkið öll þessa möntru um að allt sé ömurlegt í Reykjavík, á sama tíma og raunveruleikinn er sá að borgin hefur aldrei verið betri. Hægt er að lesa aðeins um þetta hér að neðan.

Borg fyrir fólk eða meira malbik með valdboði og útdeilingu gæða fyrir suma

Þegar jafnaðarfólk tók við stjórn Reykjavíkur árið 1994 var leikskólabyltingunni hrint í gagnið með tilheyrandi áhrifum á þátttöku kvenna á vinnumarkaði og stjórnsýslu borgarinnar var breytt úr valdboði við útdeilingu gæða til sumra í þjónandi stjórnsýslu. Á síðustu áratugum hefur Reykjavík vaxið meira en nær allar höfuðborgir Evrópu og lífsgæði þeirra sem í henni búa eða sækja hana heim hafa margfaldast. Allar stærstu ákvarðanir sem teknar hafa verið í skipulagsmálum, samgöngum, rekstri, leiksk

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Þrátt fyrir allt ofangreint þá tapaði Samfylkingin „bara“ tveimur prósentustigum og hélt sínum borgarfulltrúafjölda. Hún var með fimm og er með fimm. Það er varnarsigur og nokkuð augljóst í stóra samhenginu að flokkurinn má alveg við una. Sérstaklega þegar horft er til þess að formaður Framsóknarflokksins kallaði árangur hans í höfuðborginni varnarsigur, en hann tapaði þremur fulltrúum þar, tæplega tólf prósentustigum af fylgi, og borgarstjórnarflokkur Framsóknar telur nú einungis Einar Þorsteinsson. Enginn flokkur í höfuðborginni tapaði meira fylgi en Framsókn. Og enginn flokkur tapaði fleiri fulltrúum á landsvísu.

Stjórnarflokkarnir bættu við sig í Reykjavík

Morgunblaðið, sem er fjármagnað og stýrt af mörgu af ríkasta fólki landsins, og hlaðvarpssólkerfið í kringum það hafa reynt að mála upp þá mynd að sveitarstjórnarkosningarnar séu einhvers konar stóráfall fyrir ríkisstjórnina sem nú situr að völdum.

Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja í Reykjavík jókst í kosningunum sem fram fóru um síðustu helgi. Mynd: Skjáskot/Mbl.is

Það er áhugaverð tilraun sem á litla innistæðu, hvort sem horft er til Reykjavíkur eða landsins alls. Í höfuðborginni fengu þeir flokkar sem mynda ríkisstjórnina meira fylgi í kosningunum um síðustu helgi en þeir fengu árið 2022, eða á fimmta þúsund fleiri atkvæði samanlagt. Á landsvísu bættu ríkisstjórnarflokkarnir við sig 15 fulltrúum samanlagt á meðan stjórnarandstöðuflokkarnir bættu við sig samanlagt 16.

Þetta er allur munurinn.

Að byggja sig upp til að sækja af krafti

Dveljum aðeins lengur við stöðuna á landinu öllu. Samfylkingin bauð fram nýja oddvita í 18 af þeim 19 sveitarfélögum sem hún bauð fram í og fjölgaði S-framboðum milli kosninga um sjö. Það var liður í því að byggja upp flokk sem á eyðimerkurárunum 2013–2024 varð að mörgu leyti smáflokkur utan Reykjavíkur en varð stærsti flokkur Íslands í síðustu þingkosningum.

Markmið Samfylkingarinnar er að byggja sig upp sem afl á landsvísu. Stjórnmálaflokk sem er með virka grasrót út um allt land. Þessar kosningar, þau kynslóðaskipti sem urðu og sú fjölgun á S-framboðum sem ráðist var í, var liður í þeirri vegferð. Það skilaði því líka að Samfylkingin bætti við sig 12 sveitarstjórnarfulltrúum og fékk næst flest atkvæði allra flokka í kosningunum um síðustu helgi, þótt Framsóknarflokkurinn hafi fengið fleiri fulltrúa fyrir minna fylgi.

Þar sem Samfylkingin hefur stýrt lengi hélt hún meira og minna velli. Þar sem hún hefur oft varla náð í gegn, til dæmis í Kraganum, bætir hún víða mjög mikið við sig og er nú næststærsti flokkurinn í Kópavogi og Garðabæ. Stórir sigrar voru unnir í Norðurþingi, Skagafirði, Fjarðabyggð og Suðurnesjabæ, svo eitthvað sé tiltekið.

Píratar gengnir á plankann?

Ein stærsta fréttin úr kosningunum um liðna helgi er sú að Píratar, sem duttu út af þingi í síðustu kosningum, þurrkuðust líka út á sveitarstjórnarstiginu og eiga nú engan kjörinn fulltrúa. Það er risamál, enda voru Píratar með þrjá borgarfulltrúa og hafa setið í meirihlutum í Reykjavík á undanförnum árum. Nú eru, eðlilega, verulegar efasemdir um hvort Píratar lifi þetta einfaldlega af.

Margir sem vinna í stjórnmálum hafa haft þessa tilfinningu um nokkurt skeið, að það væri að fjara undan tilvistargrunni Pírata. Lykilfólk sem var í forgrunni þegar flokkurinn flaug sem hæst (hann mældist með 43 prósent fylgi í einni könnun fyrir áratug, rétt eftir opinberun Panamaskjalanna) hefur valið að starfa frekar með öðrum flokkum eða yfirgefið sviðið.

Könnun Fréttablaðsins sem birt var 6. apríl 2016, fyrir rétt um áratug síðan. Í dag eru Píratar án kjörins fulltrúa. Mynd: Skjáskot/Vísir

Þau sem hafa tekið við hafa ekki náð að lyfta Pírötum nægilega mikið eða skapa stemmningu í kringum flokkinn, líkt og sást í prófkjöri þeirra fyrr á þessu ári sem um 250 manns tóku þátt í. Það eru litlu fleiri en íbúarnir í húsfélaginu mínu, sem Óli nágranni stýrir með styrkri hendi.

Þessi staða þýðir að flokkurinn fær ekki lengur neinar greiðslur úr opinberum sjóðum og sú umræða sem þegar er sprottin upp um hvort þetta þýði endalok Píratahreyfingarinnar á Íslandi sem stjórnmálaflokks er bæði viðbúin og eðlileg.

Að keppa í annarra kerfi

Allt að öllu þá eru sveitarstjórnarkosningar þannig að það er ekki hægt að alhæfa um að þær þýði eitt umfram allt annað. Það er hins vegar hægt að sjá alls kyns vísbendingar úr niðurstöðunni sem eiga sér stoð í gögnum og sögulegu samhengi.

Við virðumst til að mynda vera að færast aftur í átt að flokkakerfinu sem hefur meira og minna verið ráðandi á lýðveldistímanum og fljótandi framboð eru að hverfa af sjónarsviðinu. Fleiri flokkar eru að sá fræjum hringinn í kringum landið og fjölga fulltrúum sínum á kostnað slíkra og Framsóknarflokkurinn, sem er eini flokkurinn á þingi sem tók fullan þátt í þessum sveitarstjórnarkosningum út um allt land sem kom út úr þeim veikari en hann fór inn í þær.

Fyrst og síðast sýna þessar kosningar að við erum að starfa í kerfi sem er hannað af, og fyrir, Sjálfstæðisflokknum. Það er erfitt að brjóta það upp og það á að vera þannig. En jafnaðarfólk, og aðrir frjálslyndir flokkar, hafa sýnt að þeir eru að sækja á.

Og það er miklu meiri orka sem fylgir því að vera í sóknarliði sem er að reyna að skora mörk með öllum tiltækum ráðum en að vera í liði sem leggur sífellt rútunni til að halda stöðunni óbreyttri.

Borg fyrir fólk eða meira malbik með valdboði og útdeilingu gæða fyrir suma
Á morgun verður kosið til borgarstjórnar Reykjavíkur. Kosningabaráttan hefur verið skrautleg og einkennst annars vegar af fullorðnu fólki sem gerir sig að fíflum með eða án hjálpar gervigreindar og nagladekkja og hins vegar af gegndarlausri upplýsingaóreiðu hægri flokka sem vilja láta líta svo út að Reykjavík sé á vonarvöl.

Þótt það sé alltaf þannig í borg sem er í örari vexti en nær allar borgir Evrópu að einstaka hlutir gangi ekki eins og lagt var upp með er heildarstaðan sú að Reykjavík er ótrúleg borg sem hefur batnað gríðarlega á skömmum tíma með þeim afleiðingum að lífsgæði íbúa hafa heilt yfir aukist mikið.

Ég ætla hér að neðan, á síðasta degi fyrir kosningar, að fara aðeins yfir það sem ég tel vera mikilvægustu breytingarnar, hverju þær hafa skilað og af hverju það er mikilvægt að halda þeim plönum sem eru til staðar til streitu. Um leið ætla ég að sýna fram á með tölulegum staðreyndum hvernig Reykjavík ber af og opinbera þann tvískinnung og pólitíska tækifærismennsku í stærsta flokknum á hægri vængnum sem hefur kúvenst út í skurð í lykilmálum í eltingaleik við menningarstríðsatkvæði.

Sveit fyrir bíla í borg fyrir fólk

Lengi vel var Reykjavík skipulögð eins og bandarísk bílaborg. Gert var ráð fyrir því, meira og minna, að allar ferðir yrðu farnar á einkabíl. Birtingarmynd þessa voru breiðar stofnbrautir, mjög dreifð byggð, stór bílastæði og aðskilin hverfi. Þeim almenningssamgöngum sem voru til staðar var gert að rúma sig innan þessa skipulags. Varla var gert ráð fyrir því að fólk gengi nema stuttar vegalengdir og hvað þá að nokkur myndi hjóla. Fyrir örfáum árum voru raunar engir hjólastígar í Reykjavík.

Eina sem mun gerast Strax er að Sjálf­stæðis­flokkur ætlar að selja eignirnar ykkar - Vísir

Ég hef búið í Reykjavík mestan part minnar ævi. Ég hef séð borgina þróast úr því að vera eins konar sveit þar sem gæðum var skammtað og hagsmunir bíla voru alltaf settir ofar mannvænu samfélagi við skipulag í að vera alvöru höfuðborg á heimsmælikvarða, troðfulla af gæðum og þjónandi stjórnsýslu. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér.

visir.is • Þórður Snær Júlíusson

Það þurfti algjör kynslóðaskipti, þvert á flokka, til að breyta nálgun borgarinnar á þetta skipulagsslys sem fékk áður bara að fljóta áfram athugasemdarlaust. Fólkið sem sat í skrautlegustu borgarstjórn allra tíma, á árunum 2006 til 2010 þegar meirihlutarnir voru fjórir og skandalarnir enn fleiri, hóf vinnu við nýtt aðalskipulag sem var svo samþykkt kjörtímabilið á eftir þegar Jón Gnarr var orðinn borgarstjóri. Atkvæði féllu þannig í borgarstjórn að tólf greiddu atkvæði með en þrír á móti.

Þeir sem greiddu atkvæði með voru borgarfulltrúar Besta flokksins, Samfylkingar og Vinstri grænna auk tveggja borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Áslaugar Friðriksdóttur og Hildar Sverrisdóttur. Þrír Sjálfstæðismenn greiddu atkvæði gegn skipulaginu, Júlíus Vífill Ingvarsson og þau Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir sem nú eru gengin í Miðflokkinn.

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn elskaði þéttingu

Þær Áslaug og Hildur, sem í dag er þingmaður Sjálfstæðisflokks, bókuðu meðal annars eftirfarandi samhliða samþykkt sinni: „Þróun byggðar í Reykjavík er eitt mesta hagsmunamál allra Reykvíkinga. Hagkvæm skipulagsstefna nýtir sem best fjárfestingar sveitarfélags í grunnþjónustukerfum, svo sem götum, veitukerfum og skólastofnunum. Þétting byggðar er þjóðhagslega hagkvæm og hefur jákvæð áhrif á rekstur sveitarfélagsins sem og, og ekki síst, heimilanna í borginni. Fjárhæðir í þeim sparnaði geta numið hundruðum milljarða. […] Á næstu 16 árum er nauðsynlegt að taka afgerandi afstöðu með þéttingu byggðar og því að gefa fjölbreyttari samgöngukostum aukið vægi enda mun slík forgangsröðun koma jafnvægi á borgarumhverfið og veita borgarbúum fleiri valkosti. […] Í aðalskipulaginu er einnig gert ráð fyrir húsnæði sem ekki fylgja bílastæði. Með tilkomu slíkra hverfa verður að gera ráð fyrir því að íbúar sem hafa greitt fyrir rétt til bílastæða fái að njóta þeirrafram yfir aðra.“

Leiðandi sögn í þessu aðalskipulagi, einni mikilvægustu ákvörðun sem tekin hefur verið í sögu Reykjavíkurborgar, var „Borg fyrir fólk“. Í því fólst einfaldlega að setja manneskjuna í öndvegi og forgangsraða í hennar þágu í skipulagi borgarinnar, ekki í þágu bíla eða verktaka.

Skipulagið átti að gilda til 2030 og í því var gert ráð fyrir að 90 prósent allra nýrra íbúða á tímabilinu risu innan þáverandi borgarmarka. Þetta er hin svokallaða þétting. Markmiðið var að skapa heildstæðari og þéttari borgarbyggð og nýta þar með betur land og fjárfestingar í gatna- og veitukerfum og þjónustustofnunum. Með þéttari byggð yrði dregið úr vegalengdum, samgöngukostnaði og umhverfisáhrifum samgangna.

Þetta skipulag var svo endurbætt og uppfært árið 2022 og núverandi aðalskipulag gildir til 2040.

Úr sveit í borg og aftur í malbiksfrumskóg

Á grunni nýs aðalskipulag og nýrrar framtíðarsýnar þar sem Reykjavík var skipulögð fyrir fólk en ekki malbik, var ákveðið að umferðarkerfið yrði meira borgarmiðað. Meiri áhersla yrði lögð á að bæta hlut gangandi og hjólandi auk þess sem almenningssamgöngur áttu að fá mun meira vægi.

Til að fólk átti sig á því hver staðan var á þessum tíma þá byrjaði Reykjavík ekki að leggja sérstaka hjólastíga innan borgarmarkanna fyrr en upp úr 2010. Þeir eru í dag um 50 kílómetrar og eru gríðarlega mikið notaðir allt árið um kring. Sú notkun nýtist ekki einungis þeim sem hjóla, heldur fækkar þeim sem keyra um sama hlutfall.

Þarna varð vísirinn að borgarlínu til, þótt hún hafi ekki enn verið skírð því nafni. Eftir langar og strangar samningaviðræður náðist svo tímamótasamkomulag með undirritun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins árið 2019. Undir hann skrifuðu forsvarsmenn allra sveitarfélaga á svæðinu og þau sem leiddu ríkisstjórn á þessum tíma. Að uppistöðu var umsjálfstæðisfólk að ræða.

Hér sjást sex Sjálfstæðismenn, einn Framsóknarmaður, einn þáverandi forsætisráðherra og einn þáverandi borgarstjóri undirrita samöngusáttmálann árið 2019. Mynd: Stjórnarráðið

Nokkrum árum síðar skrifaði Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, grein þar sem hún jarðaði málflutning talsmanna gamalla úrræða í samgöngumálum þar sem bíllinn yrði settur í algjöran forgang. Hún sagði þá endurspegla ríkjandi viðhorf sjöunda áratugarins, ekki ríkjandi viðhorf samtímans, og hafnaði áherslum „á meira malbik og samgöngur fyrir suma“. Í grein sinni skrifaði Hildur: „Við heillum ekki ungt hæfileikafólk með sextíu ára gömlum lausnum. Við þurfum að bjóða lifandi borgarumhverfi, úrval tækifæra og fjölbreytta valkosti – í frjálsu samfélagi. Við þurfum að fullþroskast úr sveit í borg.“

Mjög góð grein Hildar Björnsdóttur frá árinu 2021. Mynd: Skjáskot/mbl

Ég er jafn sammála Hildi árið 2021 og ég er ósammála þeirri nú sem leiðir Sjálfstæðisflokkinn árið 2026.

22 fótboltavellir af bílastæðum á ári

Það er öllum ljóst sem skoða með opin augu, í ljósi þess að Reykjavík er á meðal þeirra borga í Evrópu sem eru í örasta vextinum, að það er ekki hægt að fjölga bara bílum í umferðaræðum höfuðborgarsvæðisins endalaust. Þeim hefur fjölgað um 70 á viku að meðaltali síðasta áratuginn, eða um langleiðina í 40 þúsund. Í góðri grein sem var skrifuð fyrir nokkrum árum var bent á að bílastæðin sem þyrfti undir þann fjölda bíla sem bætist við á hverju ári samsvari 22 fótboltavöllum í fullri stærð.

Það er bráðnauðsynlegt að koma á fót almenningssamgöngukerfi sem keyrir um í sérrými og getur verið valkostur við þetta umferðaröngþveiti. Bæði fyrir þá sem kjósa að nýta sér það til að komast mun greiðar frá A til B þegar kerfið er komið í gagnið og fyrir þá sem nota bílinn til þess, enda fækkar akandi um þá sem taka borgarlínu, hjóla eða ganga.

Höfuðborgarsáttmálinn var tekinn upp fyrir nokkrum árum og eftir strembnar viðræður tókst að uppfæra hann með undirskrift árið 2024. Langflestir sem skrifuðu undir hann voru Sjálfstæðis- eða Framsóknarmenn.

Hér sjást fimm Sjálfstæðismenn, tveir Framsóknarmenn, einn ráðinn bæjarstjóri og ein Svandís undirrita uppfærðan samgöngusáttmála árið 2024. Mynd: Stjórnarráðið

Um er að ræða langstærstu fjárfestingu í samgöngum höfuðborgarsvæðisins, hvar um 40 þúsund manns keyra úr nágrannasveitarfélögum inn í Reykjavík til vinnu alla virka daga, í sögunni. Kostnaður við framkvæmdina, sem nær yfir stofnbrautir ekki síður enBorgarlínu, er áætlaður 311 milljarðar króna og ríkið ætlar að borga 87,5 prósent af því.

ÞóttBorgarlínan sé ekki farin að keyra er vinna við framkvæmdina löngu hafin, mörg þúsund íbúðir hafa risið við helstu ása hennar á þeim forsendum að hún komi og gert er ráð fyrir að fyrsta lotan, sú mikilvægasta og dýrasta, verði komin í gagnið á næsta kjörtímabili.

Hún liggur frá Ártúnshöfða, um miðborg Reykjavíkur og að Hamraborg í Kópavogi, yfir Fossvogsbrúna sem nú er unnið að því að reisa. Um byltingu verður að ræða.

Svona lítur fyrsti leggur Borgarlínu, sem á að vera kominn í notkun á næsta kjörtímabili, út. Þá verður hægt að taka línuna í sérrými alla óbrotnu leiðina með nokkurra mínútna millibili. Mynd: Borgarlína.is

Þetta plan, sem er við það að verða að veruleika eftir stanslausa vinnu frá árinu 2014, vilja Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og nokkrir smáflokkar sem ná ósennilega inn í borgarstjór skemma og byrja bara upp á nýtt.

Þegar búið að skera „fitulagið“ í burtu

Annað sem er síþreytt mantra er að Reykjavík sé svo illa rekin og sé í raun gjaldþrota. Þessa möntru hef ég rakið ítrekað og ítarlega með skýrum rökum um að Reykjavík sé best rekna sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu og það eina sem getur borgað gjaldfallnar skuldir sínar á yfirstandandi ári án þess að taka yfirdrátt eða selja eignir.

Hægt er að lesa allt um það hér:

Reykjavík er einfaldlega best rekna sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu (Staðfest)

Staðreyndin er einfaldlega sú að Reykjavík er best rekna sveitarfélag höfuðborgarsvæðisins og það eina sem getur borgað gjaldfallnar skuldir sínar á yfirstandandi ári án þess að taka yfirdrátt eða selja eignir. Staðreyndin er sú að borgin dregur vagninn í félagslegri þjónustu, uppbyggingu á almennu og félagslegu húsnæði, í menningu og fjárfestingu innviða. Staðreyndin er sú að þetta gerir Reykjavík án þess að leggja gjaldakláfa á íbúa sína, án þess að selja verðmætar eignir á tombóluprís til að

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Önnur bábilja sem er básunuð af hægri flokkunum er að hér sé millistjórnendakraðak sem sé stjórnlaust í fitulagsstjórnsýslu og sé orðin svo fyrirferðarmikil að ekki sé til peningur til að sinna grunnþjónustu. Allt of mikið af peningum fari í skrifstofufólk sem geri lítið annað en að fara í jóga eftir hádegi á föstudögum vegna styttingar vinnuvikunnar. Þess vegna sé ekki hægt að moka snjó.

Á hinni frábæru síðu Metli.is, sem Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson doktorsnemi í tölfræði heldur úti, eru teknar saman upplýsingar úr opnu bókhaldi Reykjavíkur um það hversu stórt hlutfall af launakostnaði borgarinnar fer í stjórnsýslu og skrifstofur. Þar kemur í ljós að á síðasta rúma áratug hefur það hlutfall farið úr 14,3 prósentum í 9,9 prósent og hefur aldrei verið lægra á tímabilinu. Með öðrum orðum fer lægra hlutfall launakostnaðar í „fitulagið“ í dag en hefur gert á nokkrum tíma síðan 2014 hið minnsta. Langmestur hluti launa í borginni fer í framlínustarfsmenn á borð við þá sem vinna í leikskólum, skólum og velferðarþjónustu.

Hér sést hvernig kostnaður við stjórnsýslu og skrifstofur borgarinnar hefur þróast sem hlutfall af launakostnaði hennar á síðasta rúma áratug. Mynd: Metil.is

Þar kemur líka fram að fasteignagjöld sem hlutfall af fasteignamati séu langlægst á landinu í Reykjavík, að nettóskuldA-hluta borgarinnar sem hlutfall af tekjum séunæstlægstu á höfuðborgarsvæðinu og að handbært fé á íbúa sé það langhæsta á svæðinu.

Allt að öllu þá er kómískt að halda öðru fram, í ljósi tölulegra staðreynda úr efnahagsreikningum og bókhaldi sveitarfélaga, en að Reykjavík sé ekki bara stöðugasta og best rekna sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu, heldur þalangstöðugasta og best rekna.

Leikskólabyltingin og þjónandi stjórnsýslu

Þegar R-listinn, undir forystu jafnaðarfólks, tók við völdum í borginni árið 1994 gerðist tvennt sem hefur markað hana alla tíð síðan. Annars vegar var leikskólabyltingunni hrint úr vör, sem gjörbreytti stöðu íslenskra kvenna á vinnumarkaði og jók þjónustustig Reykjavíkur gríðarlega án þess að um lögbundna þjónustu væri að ræða.

Höfuðborgin varð leiðandi í þessari þróun eins og svo mörgu öðru og önnur sveitarfélög gátu lítið annað en fylgt henni eftir.

Hitt sem gerðist er að stjórnsýsla borgarinnar breyttist úr gerræðislegri þjónkun þar sem borgarstjór og lítill hópur í kringum hann útdeildi gæðum eða gekk erinda yfir í þjónandi stjórnsýslu.

Besta leikskólakerfið

Byrjum á leikskólunum. Í tölum Metils má líka sjá að hærra hlutfall eins árs barna var með leikskólapláss í Reykjavík árið 2024 en á Seltjarnarnesi, í Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Kópavogi. Eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem var með hærra hlutfall af eins árs börnum á leikskóla var Garðabær. Þar voru eins árs börnin alls 309 talsins en 1.497 í Reykjavík.

Sama staða var uppi árið 2024 þegar öll börn á aldrinum–5 ára voru skoðuð. Staðan í Reykjavík var miklu betri en í nær öllnágrannasveitarfélögum.

Hér sést hversu mörg 1 árs börn fengu pláss á leikskóla í mismundandi sveitarfélögum á árinu 2024. Mynd: Metil.is

Búast má við því að hún verði enn betri í Reykjavík í nánustu framtíð þegar öll þau leikskólapláss sem hafa verið úr notkun vegna umfangsmikilla viðgerða á leikskólahúsnæði víða um borgina síðustu misseri skila sér til baka. Í ofanálag var Reykjavíkurleiðin svokallaða kynnt fyrr á þessu ári sem og hefur það markmið að gera leikskóla borgarinnar að aðlaðandi vinnusta og að minnka bil milli vinnutíma starfsfólks og vistunartíma barna, bæta mönnunarstöðu og um leið mæta foreldrum á jafnræðisgrundvelli út frá efnahagslegri stöðu þeirra.

Vel hefur verið tekið í leiðina og skráning nýs vistunartíma verið umfram áætlanir. Jafnaðarfólksfótsporið er svo sérstaklega sýnilegt þegar leiðin er borin saman við það sem boðið er upp á ínæststærsta sveitarfélagi landsins Kópavogi. Þar fá foreldrar gjaldfrjálsan leikskóla í 30 stundir á viku en í Reykjavík eru þær stundir 36. Fyrir hjón með tvö börn á leikskóla þá kostar það um 450 þúsund krónum meira á mánuði að búa í Kópavogi en að búa í Reykjavík. Þetta er það sem er kallaður barnaskatturinn í Kópavogi.

Gerræðislegar ákvarðanir

Til að útskýra hættuna á valdboðspólitík Sjálfstæðisflokksins og þeirri strokuspillingu sem einkennir hana ætla ég að nefna tvö dæmi.

Eina kjörtímabilið sem Sjálfstæðismenn komust aftur til valda í Reykjavík síðan þá sýndi strax einkenni þess að snúa aftur til þess tíma, bæði í stóru og smáu. Eftir kosningarnar 2006 varð Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og hans er einkum minnst fyrir tvennt: áfengiskælamálið og REI-málið.

Hið fyrra snerist um að borgarstjórinn lét fjarlægja bjórkæli úr Ríkinu í Austurstræti. Í viðtali við Blaðið í september 2007 sagði Vilhjálmur að málið „snerist um það að útigangsmenn í miðbænum hafa komið sér fyrir eins og setulið niðri í Austurstræti þar sem þeir áreita fólk, stökkva jafnvel að því og þrífa í það og krefja um pening fyrir bjór. Síðan fara þeir inn í áfengisverslunina og kaupa sér bjór í stykkjatali. Ég var að tala um þennan vanda. Það var ákvörðun áfengisverslunarinnar að fjarlægja kælinn. Eftir á að hyggja hefði ég hugsanlega mátt nálgast þetta mál með öðrum hætti en ég er ekki fullkominn frekar en aðrir. Þetta mál reyndist mér hins vegar alls ekkert erfitt. Eftir stendur að útigangsmenn í Austurstræti angra fólk og slíkt framferði þarf að stöðva.“

Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og nú þingmaður, rifjaði málið upp í bók sinni „Nýja Reykjavík“ sem hann gaf út árið 2021. Þar sagði Dagur, sem var borgarfulltrúi á þessum tíma, að í ljós hafi komið að „Björgólfur Guðmundsson, sem þá var stjórnarformaður Landsbankans, hafi rekist á Villa úti á götu og beðið hann um þetta.“

Að skammta opinberum gæðum til útvalinna

REI-málið var stærra og alvarlegra. Það leiddi til þess að fyrsti meirihluti þessa kjörtímabils hvellsprakk þegar sex borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks neituðu að kvitta upp á að sameina Reykjavík Energy Invest, dótturfyrirtæki og útrásararm Orkuveitu Reykjavíkur, við Geysi Green Energy, orkuútrásarfélag helstu áhættusæknustu fjárfesta á Íslandi sem fjármagnað var að fullu með lánum frá Glitni.

Ástæðan fyrir því að REI-samruninn gekk til baka með látum er að það kom í ljós að valdir starfsmenn REI og Orkuveitunnar, sumir með rík tengsl við kjörna borgarfulltrúa, áttu að fá kaupréttarsamninga sem áttu að gera þeim kleift að eignast hluti í sameinuðu félagi á kostakjörum.

Björn Ingi Hrafnsson, nú hægri hönd formanns Miðflokksins en þá borgarfulltrúi Framsóknar, hafði setið í stjórn REI. Eftir að málið kom upp myndaði hann nýjan meirihluta með fyrri minnihluta. Sá var skammvinnur, Björn Ingi þurfti að hætta í borgarstjórn í kjölfarið og alls urðu meirihlutarnir á þessu síðasta kjörtímabili sem hagsmunahægrið komst að kjötkötlunum í höfuðborginni fjórir.

Kjósendur sýndu það í verki að þeir vildu ekki einkavæðingu og fúsk í kosningunum 2010 og kusu allt annað fólk til valda.

Á morgun hafa kjósendur aftur val um að hafna einkavæðingu, fúski og vindhanapólitík tækifærissinna sem vilja tefja um ókomna tíð nauðsynlegar framfarir í borginni sem eru í seilingarfjarlægð. Vonandi ber ykkur öllum gæfa til að nýta það val af skynsemi.

Gleðilegan kjördag!

Sveitarfélög og borgir eru ekki fyrirtæki heldur samfélög
Ég fékk mikil viðbrögð við grein síðustu viku. Mörg voru málefnaleg og ég átti í alls kyns fínum skoðanaskiptum um hvernig eigi að mæla fjárhagslegt heilbrigði sveitarfélaga í kjölfarið. Önnur voru, líkt og viðbúið er, fyrst og síðast pólitísk eða einhver ónot út í mig án nokkurra tengsla við efnið. Ekkert nýtt þar.

En umræðan um fjármál sveitarfélaga nú í aðdraganda kosninga fékk mig til að hugsa þetta allt saman aðeins lengra. Hafa sumar kreddurnar sem settar eru fram, oftast nær í flokkspólitískum tilgangi á viðkvæmum tímum rétt fyrir kosningar, gert það að verkum að það sé orðin einhvers konar grundvallarskekkja í hugum sumra um hvert hlutverk sveitarfélaga sé?

Reykjavík er einfaldlega best rekna sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu (Staðfest)

Staðreyndin er einfaldlega sú að Reykjavík er best rekna sveitarfélag höfuðborgarsvæðisins og það eina sem getur borgað gjaldfallnar skuldir sínar á yfirstandandi ári án þess að taka yfirdrátt eða selja eignir. Staðreyndin er sú að borgin dregur vagninn í félagslegri þjónustu, uppbyggingu á almennu og félagslegu húsnæði, í menningu og fjárfestingu innviða. Staðreyndin er sú að þetta gerir Reykjavík án þess að leggja gjaldakláfa á íbúa sína, án þess að selja verðmætar eignir á tombóluprís til að

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Að síendurtekinn barlómur hægrisins um að það þurfi rekstrarfólk sem kunni að reka fyrirtæki inn í rekstur sveitarfélaga, og áherslan þar á hagnað, hafi skilað því að það sé í alvöru til fólk sem telji að það eigi að reka sveitarfélög, og borg eins og Reykjavík, eins og fyrirtæki?

Krafan um „alvöru“ rekstrarmenn

Framsetningin á þessari möntru er ýmis konar. Miðflokkurinn fékk til að mynda Ara Edwald, sem samkvæmt fréttum hafði búið í Portúgal síðustu misseri vegna skattahagræðis, til að leiða sitt framboð í Reykjavík og lagði þar áherslu á að hann hefði mikla og góða reynslu af rekstri fyrirtækja.

Þetta fór öfugt ofan í menningarstríðshlutann í þeim flokki, sem fannst sitt fólk jaðarsett við uppstillingu svo hægt væri að koma inn flóttafólki úr Sjálfstæðisflokknum og bisnesslífinu í forystu. Innan þess hólfs stóð vilji til að reka frekar pólitík eins og þá sem boðið er upp á í Kópavogi, þar sem oddvitinn vill hefur helst vakið athygli fyrir gremjupólitísk ónot út í regnbogafána.

En Ari hefur staðið keikur og sagði í nýlegri færslu á samfélagsmiðlum að hann vilji „nýta mína reynslu af umbreytingu stórra fyrirtækja við nauðsynlegar umbætur í rekstri Reykjavíkurborgar.“

Látum nú liggja á milli hluta að helsta afrek Ara sem forstjóra 365 miðla, þá stærsta einkarekna fjölmiðlaveldis landsins, var að taka þátt í því með stærsta eigandanum að skjóta fjölmiðlum samstæðunnar út úr henni og inn í nýtt félag rétt eftir bankahrunið, með þeim afleiðingum að kröfuhafar, meðal annars lífeyrissjóðir í eigu almennings og banki í eigu ríkisins, sátu eftir með 3,7 milljarða króna tap á þávirði. Stjórnarmenn í 365 enduðu með því að greiða skaðabætur til að sleppa undan málsókn vegna viðskiptanna, þar sem fyrir lá mat dómkvaddra matsmanna um að 365 hefði verið ógjaldfært þegar fjölmiðlarnir voru seldir og því hefði átt að gefa félagið upp til gjaldþrotaskipta samkvæmt lögum.

Er eftirsóknarvert að láta neytendur borga?

Ari færði sig svo til og gerðist forstjóri Mjólkursamsölunnar. Nokkrum mánuðum áður en það gerðist hafði Samkeppniseftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að Mjólkursamsalan, sem er í raun í einokunarstöðu á sínum markaði, hefði brotið mjög alvarlega gegn samkeppnislögum, misnotað markaðsráðandi stöðu sína og mismunað viðskiptaaðilum sínum með því að að selja hrámjólk til vinnslu mjólkurafurða á hærra verði til keppinauta en til eigin framleiðsludeildar og tengdra aðila.

Þótt oddviti Miðflokks hafi ekki verið forstjóri þegar brotin áttu sér stað þá var athæfið varið af hörku í hans tíð sem forstjóri og ákveðið var að fara með næstum hálfs milljarðs króna sekt, á þávirði, fyrir dómstóla.

Í viðtali við RÚV árið 2016 sagði Ari að MS myndi velta kostnaðinum við sektina yfir á neytendur. Þar sagði Ari enn fremur að hann væri „mjög ósammála“ niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, að hún byggði á „rangri túlkun á samspili samkeppnislaga og búvörulaga. Og líka á röngum ályktunum um þau viðskipti sem þarna er verið að fjalla um.“ Athæfi MS var svo staðfest á þremur dómstigum og MS þurfti að greiða sektina.

Reykvíkingar þurfa að spyrja sig hvort þetta sé reynsla sem þeir vilji við stjórn borgarinnar. Samkvæmt könnunum virðast þeir reyndar hafna því með skýrum hætti, enda Miðflokksblaðran hvellsprungin.

Þegar Reykjanesbær fór næstum því á hausinn

Kannski er það bara ég en mér finnst svona æfingar ekki eftirsóknarverðar við rekstur sveitarfélaga. Mér finnst þeir sem festast í þessum skrýtnu röksemdarfærslum um þörfina fyrir töfra úr stóratvinnulífinu inn í stjórnmálin líta ansi langt fram hjá því hversu mikill eðlismunur er á bisness og ábyrgum stjórnmálum.

Við höfum auðvitað séð frjálshyggjutilraunir framkvæmdar á sveitarstjórnarstiginu. Um sumar þeirra hef ég fjallað áður, til dæmis í greininni hér að neðan.

Orkufyrirtækin komin aftur á pólitíska matseðilinn

Íslensku orkufyrirtækin, hvort sem þau framleiða eða dreifa orku, eru sennilega okkar mikilvægustu innviðir. Samfélagið stóð að stofnun þeirra og tók áhættuna af uppbyggingu þeirra. Á bankabóluárunum var mikill þrýstingur á að koma þessum fyrirtækjum í einkaeigu og sum sveitarfélög seldu stóra hluti í þeim til að þjónusta þær pólitísku kreddur. Upp á síðkastið hafa sambærilegar vondar hugmyndir verið að vakna úr dvala. Hægrið er mætt af fullum krafti til að reyna að selja eignirnar ykkar.

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Það var gert í Reykjanesbæ þegar Sjálfstæðisflokkurinn stýrði þar málum fram til ársins 2014. Á þeim tíma var eignarhlutur bæjarins í orkufyrirtækinu HS Orku seldur fyrir slikk og 49 prósenta hlutur í HS Veitum sömuleiðis til að greiða upp reiknað tap áranna tólf ára valdatíðar flokksins. B-hluti bæjarins var samhliða rekinn með tapi og fasteignir Reykjanesbæjar voru seldar inn í eignarhaldsfélag sem fjármagnaði sig í erlendum gjaldmiðlum og leigði þær svo til baka.

Við bankahrunið hríðféll krónan og leiguskuldbindingar í erlendum gjaldmiðlum ruku upp. Þetta var stór breyta í því að Reykjanesbær þurfti að fara í fjárhagslega endurskipulagningu eftir að meirihluti undir forystu jafnaðarfólks tók við árið 2014. Hluti hennar fólst í því að þurfa að kaupa lykilfasteignir úr félaginu til baka fyrir alls fimm milljarða. Síðan skipt var um fólk í brúnni og ábyrgt fólk tók við af fyrirtækjahugarfarinu hefur reksturinn verið sjálfbær. Skuldahlutfall og -viðmið hafa hríðlækkað þrátt fyrir mikla fjárfestingu og fjölgun íbúa og bæjarsjóður hefur verið rekinn réttu megin við.

Guðný Birna Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, fór vel yfir þessa stöðu í ræðu sem hún hélt í Hljómahöllinni (einni þeirra eigna sem þurfti að kaupa til baka) í liðinni viku.

Í sögunni að sunnan felst munurinn í því að láta jafnaðarfólk reka samfélag og því að láta hægrifólk reyna að reka slíkt sem fyrirtæki.

Sveitarfélag má ekki haga sér eins og fyrirtæki

Þetta er gömul saga og ný. Ábyrgt fólk tekur til eftir vond partí, líkt og sitjandi ríkisstjórn gerði á síðustu árum, og kemur hlutunum í lag. Svo líður tíminn og í viðjum vanans kvikna hugmyndir um að grasið sé mögulega, bara kannski, aðeins grænna hægra megin, hjá þeim sem vilja selja lykileignir og gera frjálshyggjutilraunir í nærsamfélögum.

Það er ákveðið áhyggjuefni að slík stjórnmálaöfl skilji ekki grundvallarmuninn á því að reka fyrirtæki og sveitarfélag. Markmið fyrirtækjareksturs er hagnaður. Það getur, upp að vissu marki, valið hvaða viðskiptavini það vill sækja sér, hækkað verð eftir hentugleika og þanþoli þeirra sem versla við það og hætt starfsemi ef það tapar.

Sveitarfélag hefur hins vegar fyrst og síðast það markmið að sinna þjónustu og stuðla að velferð. Það verður að þjónusta alla, líka þá sem kosta meira en þeir skila. Það þarf líka að reka grunninnviði eins og skóla og leikskóla og sinna alls kyns lögbundinni þjónustu við þá hópa sem mynda samfélag sveitarfélagsins.

Sveitarfélag má því ekki haga sér eins og fyrirtæki. Það er gegn eðli þess og tilgangi að velja sér arðbær verkefni en sleppa bara hinum.

Ávinningur lögbundinna verkefna ekki krónur og aurar

Það getur verið villandi að horfa einungis til þess hvort sveitarfélag tapi peningum eitt árið þegar verið er að mæla fjárhagslegt heilbrigði þess. Hluti verkefna þeirra er alltaf rekinn í tapi vegna þess að ávinningurinn af þeim er talinn í krónum og aurum. Þar má til að mynda nefna málefni fatlaðra, barnavernd og framboð á félagslegu húsnæði svo viðkvæmum hópum og lágtekjufólki sé tryggt öruggt þak yfir höfuðið. Þótt fjárhagslegt „tap“ sé á svona verkefnum eru þau kjarni samfélagsins.

Tekjur sveitarfélaga eru ekki markaðsdrifnar heldur fastar. Í þeim hluta rekstursins sem rekinn er fyrir skattfé samanstanda þær að uppistöðu af útsvari og fasteignasköttum. Nær ómögulegt er að verðleggja þá þjónustu sem sveitarfélög veita þannig að hún skili hagnaði.

Samandregið þá er ábyrgðin sem hvílir á kjörnum fulltrúum í sveitarfélagi pólitísk, ekki einungis fjárhagsleg. Það þarf að tryggja jafnræði og byggja upp samfélag til langs tíma. Þótt það eigi og megi alltaf sýna skilvirkni, kostnaðareftirlit, árangursmælingar og betri stjórnun þá má aldrei reka sveitarfélag þannig að markmiðið sé að hámarka hagnað og skera til þess niður í þjónustu sem þykir óarðbær.

Þetta skilur jafnaðarfólk, en hægrið ekki.

Reykjavík er einfaldlega best rekna sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu (Staðfest)
Umræður um fjármál Reykjavíkur halda áfram að vera í besta falli skapandi í meðförum þeirra sem setið hafa í minnihluta í borginni að mestu undanfarna áratugi, eða hafa hag af því að mála hvítt sem svart. Annaðhvort er þetta fólk að setja fram rangfærslur gegn betri vitund eða það getur ekki lesið sér til gagns þegar kemur að fjármálalegum uppgjörum. Hvorugt eru lestir sem við ættum að vera að leita að í fólki sem sækist eftir því að stýra höfuðborg þjóðarinnar.

Þetta er ekki ályktun heldur töluleg staðreynd studd af gögnum og rýnd af hefðbundnum mælikvörðum á fjárhagslegt heilbrigði.

Hefst þá greiningin. Nýr ársreikningur borgarinnar vegna síðasta árs sýndi að samstæða hennar var rekin með átta milljarða króna hagnaði. Sá hagnaður féll til vegna þeirra verðmætu eigna sem borgin á sem skila henni miklum tekjum. Þar skipta einingar innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur lykilmáli. Einingar sem hægriflokkarnir í borginni vilja selja til einkaaðila.

Um það hef ég fjallað áður, til dæmis hér:

Gremjupólitík að detta úr tísku á meðan maður á negldri Teslu spyr hvað sé í gangi

Pólitík sveiflast oft eins og pendúll. Ýmsar stefnur njóta tímabundinnar hylli en ganga svo rækilega fram af fólki þannig að það verður fljótt afhuga. Það virðist vera að gerast með Miðflokkinn um þessar mundir. Eftir því sem hann bætir við gremju gagnvart fleiri minnihlutahópum eða sýnir skýrar á spilin um raunverulegt innihaldsleysi sitt þá fækkar þeim sem segjast styðja flokkinn. Það er sérstaklega athyglisvert að mýtan um að allir ungir karlar landsins séu að flykkjast í Miðflokk er ekkert a

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Sá hluti sem rekinn er fyrir skattfé, svokallaður A-hluti, var hins vegar rekinn með 5,3 milljarða króna tapi. Það tap er einungis vegna þess að auknar lífeyrisskuldbindingar upp á tíu milljarða króna féllu til, aðallega vegna þess að samið var um miklar launahækkanir til risastórrar stéttar opinberra starfsmanna, kennara. Þær þarf að bókfæra í gegnum rekstrarreikning en eru sannarlega ekki útgjöld sem þurfti að greiða út í fyrra og eru því svokölluð reiknuð stærð.

Þegar Einar Þorsteinsson, þáverandi borgarstjóri Framsóknar, samþykkti fjárhagsáætlun ársins 2025 seint árið á undan átti A-hlutinn að vera rekinn með 1,3 milljarða króna hagnaði, en áætlað var að lífeyrisskuldbindingarnar yrðu 2,9 milljarðar króna.

Ef áætlun Einars hefði staðist að öðru leyti en að lífeyrisskuldbindingarnar hefðu orðið þeir tíu milljarðar króna sem þær urðu á endanum þá hefði áætlun Einars verið í 8,7 milljarða króna tapi, eða umtalsvert meiru en því sem Reykjavík var í raun í fyrra eftir að Framsókn plottaði yfir sig og losaði sig um leið frá stjórn borgarinnar.

Rekstur Reykjavíkurborgar er heilbrigður

Sjálfstæðisflokkurinn er á enn furðulegri vegferð, sem er svo sem í takt við málflutning hans á síðustu árum og áratugum sem litast hefur af froðufellandi valdmissisgremju yfir því að ráða ekki í höfuðborginni. Sá málflutningur er nú afar sýnilegur í sölum Alþingis sömuleiðis.

Í eina skiptið sem Sjálfstæðisflokkurinn komst að í borginni frá 1994 ríkti stjórnskipuleg ringulreið með endalausum meirihlutamyndunum og tilraunum til að taka vélaraflið í fjöreggi borgarbúa, Orkuveitu Reykjavíkur, í útrás með áhættusæknum víkingum sem vissu lítið sem ekkert um orkumál. Og veita velvöldum meðreiðarsveinum kauprétti í þokkabót, svo rétta fólkið myndi græða mest á veðmálinu ef það hefði gengið upp en ekki almenningur.

En Sjálfstæðisflokkurinn sem rak ríkissjóð Íslands á 830 milljarða króna yfirdrætti frá árinu 2019 og byggði um leið upp mörg hundruð milljarða króna innviðaskuld vegna þess að erindi flokksins virðist fyrst og síðast vera að búa til ófjármagnaðar skattaglufur fyrir ríkt fólk með rétt flokksskirteini þykist vera ægilega aðhaldssamur þegar kemur að fjármálum borgarinnar. Nú segir Hildur Björnsdóttir, oddviti þeirra, að það þurfi að taka í handbremsu vegna þess að rekstarniðurstaða borgarsjóðs fyrir fjármagnsliði og afskriftir var jákvæð um 7,3 milljarða króna, vegna þess að veltufé frá rekstri var 14,3 milljarðar króna og jókst um 0,6 prósent milli ára og vegna þess að skuldaviðmið A-hluta í árslok var langt frá allri áhættu og mjög skaplegt í öllum samanburði.

Já, að mati yfirdráttarflokksins, og hinna hægri flokkanna sem eru að reyna að vera hann í Reykjavík, þarf að ráðast í neyðaraðgerðir vegna reiknaðra stærða þrátt fyrir að allar kennitölur sýni jákvæða þróun utan við þessar lífeyrisskuldbindingar. Fyrir liggur að þær verða ekki svona ráðandi breyta á næstu árum, enda ekki samið við kennara um risastóra leiðréttingu á launum þeirrar einnar mikilvægustu stéttar sem við eigum – fólksins sem við treystum fyrir börnum okkar á hverjum degi og fyrir að móta framtíð Íslands – á hverju ári. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur gerir enda ráð fyrir því að A-hlutinn verði rekinn með 4,8 milljarða króna hagnaði í ár, 6,9 milljarða króna hagnaði á næsta ári og 7,8 milljarða króna hagnaði árið 2028.

Þótt það megi, og eigi, alltaf að gera betur í meðferð á almannafé og fullkomlega eðlilegt sé að rýna í reksturinn eftir gríðarlegan vöxt á síðustu árum þá er ekkert í þessum áætlunum sem bendir til þess að Reykjavík sé í nokkrum vandræðum með fjármálin sín.

Ósanngjarnt á Nesinu, óráðsía í borginni

Áður en við komum nánar að því er vert að fara yfir að það er auðvitað þannig að það eru kennarar, og lífeyrisskuldbindingar, í öllum sveitarfélögum. Það er mismunandi mikil ánægja með þá stöðu.

Á Seltjarnarnesi, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf stýrt og þar sem stjórnarhættirnir komast næst þeirri frjálshyggjutilraun sem flokkurinn vill reyna í öðrum sveitarfélögum og á landsvísu, hefur sveitarfélag sem veltir um sex milljörðum króna á ári til að mynda tapað um milljarði króna á síðustu tveimur árum. Alls hefur rekstrarniðurstaðan þar verið neikvæð í níu af síðustu tíu árum og uppsafnað tap á þeim tíma um 3,8 milljarðar króna í sveitarfélagi sem er undir einum fjórða af íbúum Laugardalsins í Reykjavík.

Á Seltjarnarnesi kalla Sjálfstæðismenn þetta „traustan rekstur til framtíðar“ þrátt fyrir að allt bendi til þess að veltufé frá rekstri, sem segir til um hvað sé aflögu til að borga af skuldum og ráðast í fjárfestingar, sé svipað og sparifé efri millistéttarfjölskyldu en ekki það sem ætti að vera hjá rúmlega 4.600 manna sveitarfélagi. Það sem var til á reikningi bæjarins um síðustu áramót myndi einungis duga fyrir um þriggja daga rekstri.

Á meðan rekstrartap Reykjavíkurborgar var um 2,6 prósent af tekjum þá var það sennilega nær tíu prósentum hjá Seltjarnarnesi, miðað við þær upplýsingar sem gefnar hafa verið um ársreikning þess sveitarfélags fyrir síðasta ár.

Á Seltjarnarnesi, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn stýrir málum og vill gera það áfram, má svo tala um lífeyrisskuldbindingar sem einskiptisvesen þótt það megi ekki gera það í Reykjavík samkvæmt flokknum. Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna á Nesinu, sagði í nýlegu viðtali við Morgunblaðið um lífeyrisskuldbindingarnar: „Okkur er uppálagt að færa þetta inn sem rekstrartap sem það sannarlega er ekki.“

Viðtalið við bæjarstjórann á Seltjarnarnesi í Morgunblaðinu birtist 21. apríl. Mynd: Skjáskot

Þór sagði í sama viðtali að Seltirningar gætu ekki mætt þessum útgjöldum með lóðasölu eins og nágrannasveitarfélög, enda Seltjarnarnes eiginlega uppiskroppa með lóðir til að selja upp í reksturinn hjá sér, og því taki lífeyrisskuldbindingarnar vel í.

Og þetta er rétt hjá bæjarstjóranum. Kollegi hans og flokkssystir í Kópavogi, Ásdís Kristjánsdóttir, seldi til að mynda lóðir fyrir 4,7 milljarða króna í fyrra en áætlun fyrir árið gerði ráð fyrir engum tekjum þessa. Það dugði vel fyrir tæplega 2,1 milljarðs króna lífeyrisskuldbindingum sem hún þurfti að bókfæra sem kostnað árið 2025. Hún átti meira að segja rúmlega tvo og hálfan milljarð króna í afgang til að setja í annað. Á sama tíma seldi Reykjavík til að mynda lóðir fyrir um 60 prósent af bókfærðum lífeyrisskuldbindingum sínum, enda ekki lenska þar að selja eignir hratt upp í rekstur heldur að rækta samfélag til lengri tíma.

Það skiptir mestu að geta borgað skuldirnar

Allt að öllu þá eru þeir mælikvarðar sem vanalega eru skoðaðir til að meta fjárhagslegt heilbrigði sveitarfélaga: skuldahlutfall, skuldir á íbúa, veltufé frá rekstri og veltufjárhlutfall, allir í góðum málum í Reykjavík og betri en í nær öllum nágrannasveitarfélögum. Skuldahlutfallið er það næstlægsta á höfuðborgarsvæðinu, veltufé frá rekstri jókst sem hlutfall af tekjum og er það besta á svæðinu utan Kópavogs, skuldir á íbúa eru þær næstlægstu og veltufjárhlutfallið það langbesta.

Síðastnefndi mælikvarðinn er einn sá mikilvægasti sem hægt er að skoða til að sjá hvort sveitarfélag ráði við skuldastöðu sína og hefur því meira vægi en aðrir. Hann segir til um peningalega stöðu um áramót og þumalputtareglan er að mikilvægt sé að hann sé yfir 1,0. Ef hann er yfir þeirri tölu þá hefur sveitarfélagið laust fé um áramót til að greiða útistandandi skuldir sem gjaldfalla á árinu, allar lausaskuldir og afborganir af lánum á yfirstandandi ári. Með öðrum orðum hvort innkoman geti staðið undir þeim skuldum sem stofnað hefur verið til. Ef við setjum þetta í einfalda líkingu þá er hægt að ímynda sér heimili sem skuldar milljón krónur í yfirdrátt sem er á gjalddaga um næstu mánaðamót. Heimilið á 500 þúsund krónur á bankareikningi og gæti borgað helminginn af skuldinni þegar hún gjaldfellur. Veltufjárhlutfall þessa heimilis er því 0,5.

Barnaskattur á fjölskyldur

Frá lokum árs 2018 og fram til loka árs 2022 var Reykjavíkurborg eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem var með veltufjárhlutfall yfir 1,0, sem þýðir að hún átti nægt fé til að borga allar skuldir og skuldbindingar sem myndu falla til á því ári. Borgin er enn yfir því hlutfalli, eitt sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hjá Kópavogi dróst veltufjárhlutfallið saman milli 2024 og 2025. Geta þess sveitarfélags til að borga skammtímaskuldir sínar með handbæru eða fljótlegu lausafé fór niður í að vera 0,4.

En dveljum aðeins lengur við Kópavog, þar sem valdamesti stjórnmálamaður Sjálfstæðisflokksins í nútímanum er bæjarstjóri. Það næststærsta sveitarfélag landsins, undir stjórn Sjálfstæðisflokksins, hefur einbeitt sér að því að auka álögur á barnafjölskyldur undanfarið. Samkeyrsla á útsvari, fasteignaskatti og helstu gjöldum sem fjögurra manna meðalfjölskylda með tvö leikskólabörn þarf að borga til sveitarfélags á höfuðborgarsvæðinu sýnir að það er dýrast fyrir hana að búa í Kópavogi. Þar munar vitanlega langmest um 450 þúsund króna barnaskatt sem leggst á fjölskyldur með leikskólabörn sem þurfa 40 tíma vistun á leikskóla umfram það sem þau hefðu þurft að borga í Reykjavík.

Á þessari mynd sést skýrt hver munurinn er fyrir barnafjölskyldur í sveitarfélögum sem jafnaðarfólk stýrir og þeim sem Sjálfstæðisflokkurinn stýrir.

Sama niðurstaða kemur raunar upp þegar eldra barnið í ímynduðu meðalfjölskyldunni fer upp í grunnskóla. Áfram verður Kópavogur dýrasta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu á meðan Reykjavík verður það ódýrasta. Þarna kristallast munurinn á þeim sem reka sveitarfélög eins og fyrirtæki og þeim í pólitík sem líta á hlutverk sitt að næra samfélög þar sem við berum öll ábyrgð hvert á öðru.

Best rekna sveitarfélagið

Nær öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur er stýrt af Sjálfstæðisflokknum Hann situr í meirihluta í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ og á Seltjarnarnesi og hann skilaði Mosfellsbæ af sér til félagshyggjufólks eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar með skuldahlutfall sem var það næsthæsta á höfuðborgarsvæðinu. Það góða fólk sneri við þeirri afleitu stöðu.

Samt er eins frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins, og miðlarnir þeirra tveir, búi í einhverskonar tvöföldum veruleika þegar kemur að rýningu í fjármál umræddra sveitarfélaga. Sögnin er alltaf að Reykjavík sé að brenna en hin í blóma. Raunveruleikinn er þveröfugur. Líkt og sést á ofangreindri samantekt þá er staðan þannig á hvaða mælikvarða sem litið er til við að meta fjárhagslegt heilbrigði sveitarfélaga að Reykjavík stendur, ásamt Kópavogi, langbest á höfuðborgarsvæðinu. Þannig hefur það verið síðustu ár og þannig er það ennþá.

Í ofanálag er Reykjavík eina sveitarfélagið á svæðinu sem getur borgað gjaldfallnar skuldir sínar á yfirstandandi ári úr þeim hluta sínum sem er rrekinnfyrir skattfé án þess að taka yfirdrátt eða selja eignir, og þar með það best rekna.

Það liggur því fyrir að yfirprjónið og vaðallinn í Hildi, Einari, Ara, Mogga og Vibba um að Reykjavík sé á barmi gjaldþrots er bara snákaolía. Innihaldslaust þvaður. Ef þau hefðu rétt fyrir sér væru öll hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu utan Kópavogs þegar komin í gröfina.

Frábær höfuðborg sem stendur undir nafni

Þetta er staðan þrátt fyrir að Reykjavík bjóði fjölskyldufólki upp á miklu lægri gjöld en Kópavogur – barnaskattslausa tilveru – byggi upp nær allt almennt húsnæði fyrir lágtekjufólk sem byggt er á höfuðborgarsvæðinu á meðan Kópavogur leggur ekkert til í baráttuna um að tryggja öllum sómasamlegt þak yfir höfuðið á viðráðanlegu verði.

Ekki ein Bjargíbúð hefur risið í Kópavogi, næststærsta sveitarfélagi landsins, en 661 í höfuðborginni. Mynd: ASÍ/BSRB

Þetta er staðan jafnvel þótt Reykjavík niðurgreiði frístundir barna sinna meira en aðrir, rukki eina lægstu fasteignaskatta á landinu og sé eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem hefur sinnt þjónustu við heimilislaust fólk. Þetta er staðan jafnvel þótt Reykjavík sinni allri félagslegri þjónustu langt umfram nágranna sína, og reyndar öll sveitarfélög á landinu. Þetta er staðan jafnvel þótt Reykjavík sé að fjárfesta gríðarlega og beri uppi menningarstarfsemi á svæðinu.

Vart þarf að efast um það hvaða sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu er að gera mest fyrir tekjulág heimili. Reykjavík er í sérflokki. Mynd: ASÍ/BSRB

Þetta gerir Reykjavík og Reykvíkingar með glöðu geði. Borgin okkar er höfuðborg allra landsmanna og heimili stjórnsýslu landsins, sem tryggir henni tekjur sem önnur sveitarfélög fá ekki. En lykilatriðið er hugarfarið.

Frá 1994, með skammvinnu fráviki, hefur Reykjavík verið rekin sem lífsgæðaborg þar sem íbúarnir bera ábyrgð hver á öðrum. Fyrir vikið er borgin frábær og hefur batnað stórkostlega á síðustu áratugum.

Það má alltaf gera betur og það á alltaf að horfa krítískt inn á við þegar verk síðustu ára eru skoðuð. Slíkt fylgir því að fara með almannafé og áhrifastöður sem geta breytt samfélagi.

En enginn vafi er í mínum huga á því að stefnan, breiðu línurnar, um þróun Reykjavíkur sé sú rétta og að það sé almannahagur að borgin haldi áfram á þeirri braut eftir næstu kosningar. Það gerist einungis með því að hafna hægrinu og veita jafnaðarmennskunni áfram umboð til að leiða Reykjavík.

Gremjupólitík að detta úr tísku á meðan maður á negldri Teslu spyr hvað sé í gangi
Maskína birti könnun um fylgi stjórnmálaflokka á landsvísu á mánudag. Þar kom fram að Samfylkingin væri áfram sem áður langstærsti flokkur landsins með tæplega 28 prósent fylgi og bætir við sig 2,2 prósentustigum milli kannana. Um er að ræða nokkuð stóra könnun með tæplega 1.800 svörum. Þetta er svipuð niðurstaða og kom fram í síðustu könnun Gallup sem var framkvæmd í marsmánuði. Þar mældist fylgi Samfylkingarinnar 30 prósent, eða næstum tíu prósentustigum meira en flokkurinn fékk í síðustu kosningum.

Ríkisstjórnin heldur skýrt velli með umtalsverðum meirihluta þingsæta samkvæmt báðum könnunum sem sýnir skýrt að þrátt fyrir ýmsar áskoranir, heima og erlendis, sem hafa áhrif á daglegt líf fólks þá líkar fólki við stjórnmál langtímaplana og leggur áherslu á að við sem samfélag berum ábyrgð hvert á öðru. Að það skipti meira máli að horfa á það sem sameinar okkur en að festast í því sem sundrar.

Í könnun Maskínu eru líka þau tíðindi að Miðflokkurinn heldur áfram að dala líkt og hann hefur gert í öllum könnunum fyrirtækisins síðan um áramót. Fylgi hans mælist nú 16,4 prósent, hefur dalað um næstum sex prósentustig frá því í janúar og Miðflokkurinn mælist ekki lengur annar stærsti flokkur landsins.

Það virðast því teikn á lofti um að skautunarpólitík gremju og andstyggilegheita sé að detta jafnhratt úr tísku og hún náði flugi.

Sjálfstæðisflokkur Liz Truss

Sjálfstæðisflokkurinn virðist, að minnsta kosti að einhverju leyti, hafa áttað sig á því að það er stysta leiðin í pólitíska gröf að elta innflutt menningarstríðshandrit Miðflokksins í sinni pólitísku stefnumörkun líkt og hann hefur verið að gera síðustu misseri. Þess í stað hefur hann snúið sér af fullum krafti að því sem hann gerir best: að verja sérhagsmuni hinna fáu og leggja fram svo glórulausar efnahagstillögur að Liz Truss, versti forsætisráðherra í sögu Bretlands sem færði það land hættulega nálægt kerfisáfalli sem krafðist neyðaríhlutunar, hefði verið stolt.

Liz Truss var forsætisráðherra Bretlands í 45 daga. Hún lagði fram svokallaða mini-budget sem var troðfullt af ófjármögnunum skattalækkunum sem leiddi til þess að markaðstraust hrundi. Til að ná einhverjum stöðugleika þurfti að draga allar tillögurnar til baka. Mynd: Wikipedia

Pakkinn sem Sjálfstæðisflokkurinn kynnti nýverið undir yfirskriftinni „léttum róðurinn“ myndi sennilega sökkva íslensku ríkisskútunni á örfáum árum. Hráefnið í honum voru ófjármagnaðar skattalækkanir upp á 140 milljarða króna á hverju ári sem átti að mæta að hluta með því að selja nær öll verðmæti sem íslenska ríkið á í hendur einkafjárfestum á ríflegum afslætti. Samhliða vill flokkurinn að einkarekstur verði ráðandi breyta í heilbrigðisþjónustu, menntun og samgöngum, hola félagslega húsnæðiskerfið að innan og draga úr öllum gjaldalækkunum sem innleiddar hafa verið af öðrum en þeim. Þar skiptir veiðigjaldshækkunin á stórútgerðir auðvitað mestu.

Að mörgu leyti er gott að hafa Sjálfstæðisflokkinn í þessum gír í stað þess að elta Miðflokkinn út í einhvern fleygpólitískan skurð. Að vasast í brauðmolahagfræðinni sinni sem hefur aldrei virkað neins staðar, að verja hagsmuni milljarðamæringa á kostnað allra hinna og að halda innblásnar ræður um þjóðhagslega nauðsyn þess að áfengi sé selt sem víðast.

Stétta- og menningarstríð hægrisins á Íslandi tekur á sig skýra mynd

Það geisa tvenns konar stríð á pólitískum vígvelli Íslands, þar sem ofsi og ábyrgð takast á. Annað snýst um að etja stéttum saman í baráttu um sneiðar af efnahagslegu kökunni og hitt að etja hópum saman í innfluttum átökum um gildi, siðferði og menningu. Alls konar vopnum er beitt, til dæmis efnahagslegri þjóðernishyggju, fullyrðingum um öryggisógn sem eiga sér oftast nær engar stoðir í raunveruleikanum og mikilli dreifingu á röngum eða villandi upplýsingum. Síðasta vika hefur sýnt það svart á hvítu hvar íslensku hægriflokkarnir og fjölmiðlarnir þeirra hafa grafið sínar skotgrafir í þessu stríði og hvernig þeir ætla að heyja það.

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Pikkföst í barnalegri pólitík þeirra sem ekki er hægt að taka alvarlega og eru aðallega að þóknast eigin viðhlæjendum í stað þess að gæta hagsmuna kjósenda í landinu.

Að „þora að spyrja spurninga“ á TikTok

Til er kenning í stjórnmálum sem heitir pendúl-kenningin. Kjarninn í henni felst í því að ef stefna eða hugmyndafræði sem nýtur tímabundinnar hylli fer of langt út á jaðarinn og gengur fram af fólki þá verða kjósendur hratt afhuga. Líkt og pendúll sem er kominn út á ysta kant og sveiflast svo til baka.

Miðflokkurinn hélt sig hafa dottið í lukkupottinn þegar bandarískir öfgamenn buðu honum á námskeið í hvernig eigi að veikja lýðræði, alþjóðasamvinnu og mannréttindi með því að pakka sundrungu sinni í falskar umbúðir skynsemi og fullveldisástar og beina henni beint gegn mörgum viðkvæmustu hópum samfélagsins.

Helsti lottóvinningurinn átti að hafa verið að hafa fengið ungan varaformann til liðs við sig sem átti að virka sem segull á ungviðið í landinu vegna þess að hann birti kámug TikTok-vídjó af sér með andlitið of nálægt myndavélinni að „spyrja spurninga“ og „ræða það sem aðrir þora ekki að ræða“. Lykilatriði voru að vera andstyggilegur við minnihlutahópa og viðurkenna aldrei mistök heldur bregðast við gagnrýni með því að gera sig, gerandann, að fórnarlambi allra aðstæðna.

Skoðanakannanir gáfu þeim byr undir báða vængi um tíma. Pendúllinn virtist vera að sveiflast hratt til fjarhægri, aðallega vegna þess að kjósendur annarra hægriflokka voru að refsa heimareitnum fyrir að vera of áttavilltur.

Ungt fólk hefur ekki áhuga á Miðflokknum

Ásókn ungmenna í gremju virðist hins vegar einungis hafa verið raunveruleiki sem var til í hugarfylgsnum starfsmanna Miðflokksins og galleríinu sem talar fyrir því að flokkurinn sé nokkurs konar deyfilyf gegn óskilgreindu „vóki“ á samfélagsmiðlarotþrónni X, áður Twitter.

Lítill áhugi ungra kjósenda á Miðflokknum er ekki ályktun, heldur staðreynd sem mæld er með festu í könnunum. Í síðustu Gallupkönnun mældist fylgi Samfylkingarinnar í aldurshópnum 18–29 ára 36 prósent á meðan fylgi Miðflokksins var 18,7 prósent, sem var undir heildarfylgi flokksins í þeirri könnun. Samkvæmt því er jafnaðarmennskan tæplega tvisvar sinnum vinsælli hjá yngstu kjósendunum en fleygar Miðflokksins.

Úr lýðfræðigreiningu á marskönnun Gallup. Mynd: Skjáskot

Í könnun Maskínu sem birt var í byrjun viku er þessi munur enn skarpari. Þar segjast 29,4 prósent svarenda í þessum aldurshópi styðja Samfylkinguna og er fylgið því umfram heildarfylgi líkt og hjá Gallup. Miðflokkurinn mælist hins vegar með 11,2 prósent, eða rétt tæplega einn þriðja af því fylgi sem Samfylkingin hefur hjá kjósendum á aldrinum 18-29 ára.

Sú mantra að Miðflokkurinn sé að ryksuga yngsta aldurshópinn vegna þess að ungur varaformaður flokksins sé svo vinsæll hjá ungum karlmönnum fær því ekki stoð í þessum tveimur könnunum.

Þvert á móti.

Varaformaður sem segir bara eitthvað

Eitt meginþemað í MAGA-handbókinni sem Miðflokkurinn lærði allt um á námskeiðunum sínum í Bandaríkjunum er að reyna að kasta gremjuboltanum aðeins fastar í magann á þeim hópi sem hentar næst að níðast á. Ef viðkomandi kvartar þá á bara að segja að þetta hafi verið misskilningur. Ætlunin hafi verið að kasta annað. Í raun væri það þolandanum að kenna að hafa orðið fyrir boltanum. Hann hafi haft öll tækifæri til að færa sig.

Eftir nýja varaformennskukrýningu í haust og fylgisaukninguna sem þau töldu komna til að vera var enda gefið í og ýmislegt nýtt prófað. Í september taldi Snorri Másson sig til að mynda hafa skorað alls kyns stig þegar hann talaði annan viðmælanda í kaf í Kastljósviðtali þar sem málflutningur Snorra snerist um að mannréttindabarátta hinsegin fólks væri bara „hugmyndafræði“ og að raunverulegu fórnarlömbin í umræðum um málefni hinsegin fólks væru hann og skoðanasystkini hans sem finnist mjög mikilvægt að allir telji kynin vera bara tvö.

Í desember opinberaði sami Snorri Másson svo að hann væri á móti EES-samningnum og að hann vildi takmarka fjölda þeirra sem fá að búa á Íslandi, án þess að svara spurningum um hvernig íslenskt samfélag ætti að líta út eftir að mikilvægasti viðskiptasamningur Íslendinga yrði ekki lengur virkur né hvernig flokkurinn skilgreinir „alvöru Íslendinga“ sem eigi að fá að búa hér þegar öðrum og ómerkilegri yrði meinað það.

Þegar varaformaður hætti óvart að flauta og fór að syngja hástöfum

Miðflokkurinn hefur nú opinberað, að einhverju leyti óvart, að hann er á móti EES-samningnum og vill takmarka fjölda þeirra sem búa á Íslandi. Hann stendur nú frammi fyrir því að svara spurningum um hvernig samfélagið á að líta út ef mikilvægasti viðskiptasamningur Ísland – íslenskt hagkerfi hefur fimmfaldast að umfangi frá því að hann tók gildi – verður ekki lengur virkur. Enn fremur þarf hann að segja nákvæmlega hversu marga íbúa landið má hafa samkvæmt hugmyndum Miðflokksins, hvernig samsetning þess íbúafjölda má vera og hvernig flokkurinn aðgreinir „alvöru Íslendinga“ frá hinum.

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Inn á milli er ítrekað skeytt alls kyns hundaflautum um að hvítir Íslendingar þurfi að eignast fleiri börn til að bjarga sál þjóðarinnar frá útlendingum og leysa úr einhverjum óskilgreindum „djúpum andlegum vanda“ landsmanna, að breyta þurfi fæðingarorlofi og taka upp heimagreiðslur svo konur geti farið aftur til fortíðar.

Aðrir forvígismenn Miðflokksins tóku þátt í þessum samkvæmisleik og sögðu Snorra ítrekað misskilinn eða vera bara að spyrja spurninga. Þegar vitleysan varð yfirgengileg var klykkt út með því að það ætti ekkert að taka allt alvarlega sem Snorri segir.

Hann segi enda oft bara eitthvað.

Þegar gramir verður gramari yfir skorti á gremju

En fylgi Miðflokksins jókst sem sagt á meðan á þessum síðustu mánuðum ársins 2025 stóð. Hann varð næststærsti flokkur landsins samkvæmt könnunum. Og hönnuðirnir á bakvið óyndisskepnuna valdefldust. Þeir töldu sig hafa skapað nýtt leikskipulag sem væri búið að breyta leiknum sjálfum. Svo fór að fjara undan.

Það er eðlilegt að velta fyrir sér hvað valdi? Að hluta til er það auðvitað alþjóðlegt trend að gremjupólítík sé að detta úr tísku. Andstaða við Donald Trump Bandaríkjaforseta er til að mynda gríðarlega mikil innan Bandaríkjanna um þessar mundir og fólki eins og Viktor Orbán hefur verið ýtt til hliðar nýverið.

Hérna heima hefur gremjulistamönnunum sem mynda framvarðasveit Miðflokksins svo tekist að ofbjóða bæði almenningi og, í einhverjum tilvikum, eigin flokksmönnum með ýmis konar þvælu og almennri mannfyrirlitningu.

Þá hefur fjöldaflótti fólks sem fékk ekki þann framgang innan Sjálfstæðisflokksins sem það taldi sig eiga skilið inn á framboðslista Miðflokks í komandi sveitarstjórnarkosningum truflað hörðustu gremjuna í flokknum, sem finnst allt þetta borgaralega fólk sem hatar ekki nægilega hart opinberlega vera allt of vók.

Mynd af kosningaáherslum Miðflokksins í borgarstjórnarkosninginunum í Reykjavík.

Svo eru svörtustu sálirnar á X, áður Twitter, brjálaðar yfir því að einhverju vók-liði úr Sjálfstæðisflokknum hafi verið raðað efst á lista Miðflokksins í höfuðborginni og neita að kjósa hann þar. Efst á listann var raðað fyrrum Sjálfstæðismanni úr Garðabæ sem hefur helst unnið sér það til frægðar að verða athlægi á internetinu þegar tók lét taka sig upp við að keyra ólöglega á Teslu á nagladekkjum og ekki í bílbelti niður göngugötu í tveggja til þriggja mínútna fjarlægð frá mörg hundruð bílastæðum neðanjarðar á meðan hann kvartaði yfir því að það væri ekki hægt að leggja bíl í téðri göngugötu. Enda göngugata. Á meðan spurði borgarstjórnarefni Miðflokksins „hvað er í gangi?“

@ariedwald
Hvað er í gangi? #björgumborginni

Gas um fána

Í síðustu viku virtist varaformaðurinn hafa loks farið yfir einhvers konar strik hjá eigin fólki utan X samhliða því að hann gekk fram af flestum landsmönnum með nýjasta útspili sínu í að búllía minnihlutahópa. Í þetta sinn var hinsegin samfélagið, og tákn þess regnbogafáninn, skotmarkið.

Þar var hann að taka undir málflutning oddvita Miðflokksins í Kópavogi um að það ætti að hætta að flagga þessum meintu öfuguggafánum og flagga íslenskum frekar.

Í Facebook-færslu og fór Snorri með hefðbundnu línurnar um að kynseginheit væru hugmyndafræði og bætti við að vissulega gætu „fánarnir þjónað því hlutverki að styrkja tilfinningu skólastjórnenda eða annarra starfsmanna fyrir eigin botnlausu manngæsku, enda yfirlýstur tilgangur þeirra auðvitað að þeir séu sérstök tákn umburðarlyndis, en fyrir mörgum foreldrum fela þeir mun frekar í sér óþægilegt brot á pólitísku hlutleysi skólanna. Fæstir þora þó að gera athugasemdir við málið og það er hin þekkta þversögn umburðarlyndisins. Það er allt annað en umburðarlyndi sem mætir þeim sem voga sér að lýsa efasemdum um fánana, að ekki sé talað um margvíslegan annan fræðsluáróður í skólunum eða umfangsmikla fræðslusamninga við Samtökin 78, á meðan kristinni kirkju og íþróttafélögum er úthýst úr skólunum.“

Ég er ekki vandamál, þú ert vandamál

Fyrrverandi útskýrari formanns flokksins brást ókvæða við og spurði hvort það væri stefna Miðflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar að fleyta bara kerlingar á popúlismaöldunni. „Fokk qe queers og fullt af atkvæðum?“

Framboð Miðflokksins víða um land opinberlega brugðust líka ókvæða við og höfnuðu gasinu. Innan þings fór ekkert á milli mála að óánægja er á meðal samþingmanna Snorra með hatursorðræðuflautið.

Eftir nokkurra daga kælingu brást Snorri svo við á miðvikudag í viðtali og sagði fánamálið ekkert annað en „lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“. Til að réttlæta sig notaði hann yfirlýsta andstöðu tveggja samkynhneigðra manna sem eru þekktir andstæðingar trans fólks við regnbogafánann sem skálkaskjól. Það að þeir tveir væru líka á því að fánar sem tákna umburðar- og frjálslyndi væru stórhættulega pólitískt hlaðnir og gengisfelldu alla gagnrýnina. Hann væri ekki vandamálið, allir hinir væru vandamálið.

Ég segi eins og góður ráðherra sem er aðili máls: „Ekki er það félegt, erindi Miðflokksins í íslenska pólitík.“

Andstyggilegheitin hætt að laða að

Það má fagna því að andstyggilegheit séu að detta úr tísku. Að það sé að fjara undan þeim sem gera aldrei neitt annað en að hlæja að, ekki með, öðrum og valdeflast pólitískt á því að sparka í þá sem eru öðruvísi. Það er líka athyglisvert að bakslagið við gremjunni sé meðal annars að koma innan frá, þótt vissulega sé á sama tíma hópur stuðningsmanna flokksins brjálaður yfir því að hann sé að verða allt of vók.

Frjálslyndi, mannréttindi, samtakamáttur, umburðarlyndi og jöfnuður eru nefnilega ekki einhverjir glataðir frasar samdir af háskólafólki til að hemja fólk sem telur sig hálfguði en upplifir að aðrir séu að svipta það tækifærinu til að skína. Þetta er eitthvað það mikilvægasta sem við eigum.

Saman erum við svo miklu meiri regnhlíf yfir einstaklinga með eigin hagsmuni sem keppast við að skófla sem mestu til sín á kostnað annarra, hvort sem það eru peningar eða réttindi.

Saman erum við samfélag. Og það er sannarlega þess virði að standa upp til að verja tilvist þess.

Íslensk króna á hækjum eða evra með aðild að Evrópusambandinu?
Seint í sumar munu Íslendingar fá tækifæri til að greiða atkvæði um hvort þeir vilji halda áfram þeim viðræðum við Evrópusambandið sem settar voru á salt árið 2015. Eitt af því sem ansi margir landsmenn horfa til sem helsta kost slíkra viðræðna um aðild, og inngöngu í sambandið í kjölfar þeirra, er möguleikinn á upptöku evru.

Ástæðan er einföld: kostnaður við það að halda uppi íslensku krónunni er umtalsverður og hann bítur. Vonir standa til þess að upptaka evru geti fært íslenskum heimilum og fyrirtækjum miklu betri vaxtakjör, meiri stöðugleika, aukna samkeppni auk þess sem verðtryggingin myndi vitanlega heyra sögunni til.

Þótt þjóðin sé í fyrsta sinn að fá tækifæri til að segja skoðun sína á þessum málum með beinum hætti eftir nokkra mánuði þá fer því fjarri að þetta sé í fyrsta sinn sem gjaldmiðlamál og peningastefna eru sett á hið pólitíska leikborð.

Þvert á móti.

Fastgengisstefnan lykill að þjóðarsátt

Íslendingar hafa reynt ýmislegt í sínum peningamálum. Nú glymur mjög í eyrum fólks að það sé þörf á nýrri þjóðarsátt. Þar er verið að vísa í víðtækt efnahagssamkomulag sem gert var árið 1990 sem fól ekki einungis í sér eina aðgerð heldur heildarpakka af samstilltum aðgerðum til að stöðva verðbólgu og koma stöðugleika á íslenskt hagkerfi.

Þannig samþykkti verkalýðshreyfingin mjög hóflegar launahækkanir, ríkið minnkaði halla á rekstri ríkissjóðs og sýndi aukið aðhald í útgjöldum og fyrirtækin í landinu samþykktu að velta ekki kostnaðarhækkunum sjálfkrafa út í verð. Þetta braut upp vítahring sem fól í sér að laun hækkuðu, sem hækkaði verðlag sem krafðist þess að laun hækkuðu enn meira. Og svo koll af kolli.

Þjóðarsáttin sem gerð var árið 1990 útheimti að allir þurftu að taka á sig byrðar til að kveða niður verðbólgu. Mynd: SA

Lykillinn að þjóðarsáttinni var hins vegar fastgengisstefna þar sem íslenska krónan var fest við erlendar myntir. Seðlabankinn hélt svo genginu stöðugu innan þröngra marka. Þannig var hægt að vinna niður bæði verðbólgu og verðbólguvæntingar sem gat svo leitt til þess að vextir gátu lækkað að nýju. Það létti byrðar bæði heimila og fyrirtækja.

Bankaveikin sem olli stórkostlegum skaða

Á bjartsýnistímanum eftir aldamót, þegar bankaveikin tröllreið þjóðinni, þótti þetta ekki nógu fínt fyrirkomulag lengur og í mars 2001 var ákveðið að fleyta íslensku krónunni. Það þýðir að virði hennar réðst þá af því hversu mikið markaðsaðilar eru tilbúnir að borga fyrir hana í erlendri mynt.

Ráðist var í þessa peningastefnulegu tilraun á sama tíma og Ísland var að opnast verulega hratt, sérstaklega fyrir fjármagnsflutningum. Það gerðist meðal annars samhliða því að íslensku viðskiptabankarnir voru einkavæddir og hófu síðan útrás inn á aðra markaði með fulla vasa af ódýru lánsfjármagni sem há lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins gerði þeim kleift að nálgast.

Afleiðingin af þessari tilraun varð sú að viðskiptajöfnuður var verulega neikvæður árum saman (verðmæti útflutningsvara og þjónustu var miklu minna en verðmæti varnings sem var fluttur til landsins, aðallega vegna þess að það streymdi svo mikið erlent lánsfjármagn inn) og spákaupmenn gátu „spilað“ á krónuna í svokölluðum vaxtamunaviðskiptum.

Þessi vaxtamunaviðskipti áttu stóran þátt í að blása upp þá bólu sem sprakk á Íslandi haustið 2008. Það erlenda fé sem leitaði í íslenska skuldabréfaflokka var endurlánað til viðskiptavina íslensku bankanna og við það stækkaði umfang þeirra gríðarlega. Við hrun, þegar setja þurfti fjármagnshöft á til að hindra útflæði gjaldeyris, voru vaxtamunafjárfestingar vel á sjöunda hundrað milljarða króna.

Allt ofangreint olli Íslandi, og íslensku samfélagi, stórskaða. Til að takast á við þá stöðu þurfti að setja fordæmalaus neyðarlög, sem breyttu kröfuhafaröð eftir á og ekkert lá í raun fyrir í upphafi að myndu halda, og fylgja þeim svo eftir með uppsetningu fjármagnshafta, sem héngu uppi í næstum áratug en eru enn ekki að öllu leyti afnumin.

Þegar krónan sökk

Bankahrunið haustið 2008 eru mestu hamfarir af mannavöldum sem orðið hafa á Íslandi. Það hafði gríðarleg, og umfangsmikil, áhrif á mörg svið samfélagsins. Atburðirnir leiddu til þess að verðgildi íslensku krónunnar féll um tugi prósenta, verðbólga fór í 18,6 prósent um tíma, stýrivextir í 18 prósent, atvinnuleysi í tveggja stafa tölu, ríkissjóður fór úr því að vera nær skuldlaus í að verða nær gjaldþrota, skuldir heimila margfölduðust, skattar voru hækkaðir, sparnaður tapaðist, neyðarlög tóku gildi, fjármagnshöft voru sett, Ísland þurfti að leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir aðstoð og allt traust milli almennings og stofnana samfélagsins meira og minna hvarf.

Stærstu ástæðuna fyrir þessum afleiðingum, sem íslenskur almenningur þurfti að axla, var að finna í atferli íslenskra banka og þeirra sem stjórnuðu þeim. Það sem ýkti afleiðingarnar verulega var íslenska krónan.

Íslenska krónan hríðféll á árinu 2008. Á örfáum mánuðum fór staða íslenskra launþega frá því að vera með há laun í öllum alþjóðlegum samanburði í nákvæmlega hina áttina. Innfluttar vörur og þjónusta og utanlandsferðir urðu miklu dýrari en áður. Þau íslensku heimili sem höfðu tekið myntkörfulán til að kaupa sér bíla eða jafnvel húsnæði sáu lánin stökkbreytast. Sömu sögu er að segja um fyrirtæki sem höfðu tekjur í íslenskum krónum en höfðu ákveðið að skuldsetja sig í öðrum gjaldmiðlum. Og sveitarfélög.

Krónan læst inni eftir að flot-tilrauninni lauk

Seðlabanki Íslands hafði lánað nær allan aðgengilegan gjaldeyrisvaraforða sinn, alls 500 milljónir evra, til eins banka, Kaupþings, þann 6. október 2008, í þeirri von að hann myndi hjálpa bankanum að lifa af. Af því varð ekki og Kaupþing fór í þrot nokkrum dögum síðar.

Seðlabankinn var því ekki í stöðu til að standa við bakið á íslensku krónunni. Hann átti ekki pening til þess. Umleitanir um nægjanlega digrar lánalínur til að laga þá stöðu skiluðu ekki viðunandi árangri.

Eftir bankahrunið var gengi krónu fest tímabundið og í nóvember 2008 voru sett upp fjármagnshöft. Fyrir því voru nokkrar ástæður. Sú helsta var að koma í veg fyrir að umfangsmiklar krónueignir, meðal annars í eigu kröfuhafa fallinna banka, væru ekki skipti yfir í aðra gjaldmiðla með tilheyrandi búsifjum og gengisfalli fyrir Ísland.

Með uppsetningu haftanna var líka verið að kaupa tíma og ráðrúm til að endurskipuleggja íslenskt efnahagslíf á forsendum Íslendinga. Það var ekki víst að það myndi takast á þeim tíma, né að þær fordæmalausu aðgerðir sem Íslendingar höfðu gripið til í kringum bankahrunið myndu halda, en við blasti að það þyrfti að reyna.

Höftin þýddu þó að tilrauninni um að láta íslensku krónuna vera óhindraðan og fljótandi þátttakanda á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði var lokið.

Tveir valkostir í gjaldmiðlamálum

Á þessum árum var eðlilega mikið rætt um hvert Ísland ætti að stefna í peningamálum. Í september 2012 birti Seðlabanki Íslands til að mynda rit sem bar heitið „Valkostir Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum“. Ritið er 623 blaðsíður og er mjög ítarleg greining á þeim valkostum sem standa Íslandi til boða.

Niðurstaða þess hóps sérfræðinga sem vann rannsóknina og skrifaði ritið var að raunhæfir valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum væru tveir: íslensk króna með ákveðnum þjóðhagsvarúðartækjum og evra í kjölfar inngöngu í Evrópusambandið og Evrópska myntbandalagið.

Á þeim tíma sem ritið var unnið var Ísland enn í því ferli að ganga í Evrópusambandið. Það ferli rann sitt skeið eftir þingkosningarnar 2013, þegar ný ríkisstjórn Evrópusambandsandstæðinga tók við völdum á Íslandi.

Því hefur í raun einungis einn kostur verið í gjaldmiðlamálum hérlendis á undanförnum árum: íslensk króna sem fær ekki að lúta lögmálum frjálsra gjaldeyrisviðskipta, heldur er studd með þjóðarvarúðartækjum.

Krónan styrktist og styrktist og styrktist

Þegar ritið kom út voru, líkt og áður sagði, mjög ströng fjármagnshöft við lýði á Íslandi og því reyndi ekki á þá útgáfu af krónuhagkerfinu sem hún boðaði á þeim tíma. Höftin voru hins vegar, að mestu, losuð í mars 2017.

Þá var staða íslensks efnahagskerfis töluvert öðruvísi en hún hafði verið nokkru sinni áður. Ferðaþjónusta hafði vaxið á örfáum árum frá því að vera nánast efnahagslegt smælki og upp í það að vera burðugasta stoðin undir efnahagslífi íslenskrar þjóðar. Með fjölgun ferðamanna úr um hálfri milljón á árinu 2010 í 2,3 milljónir árið 2018 gjörbreyttist flæði erlends gjaldeyris sem rann úr vösum kaupenda að íslenskri þjónustu og í vasa íslenskra þjónustuveitenda.

Með öðrum orðum varð hér viðskiptaafgangur. Íslendingar fluttu út meira en þeir fluttu inn, þegar þjónustuviðskipti sem veitt eru útlendingum hérlendis eru talin með útflutningi.

Það varð til þess að krónan styrktist. Og styrktist og styrktist.

Hinn almenni launamaður fagnaði. Sumarfríið til Tenerife kostaði minna en áður og vörur hríðlækkuðu í verði.

Atvinnulífið, sérstaklega sá hluti þess sem hafði tekjur í erlendum gjaldmiðlum en töluverðan kostnað, aðallega launakostnað, í íslenskum krónum, var ekki jafn hamingjusamt. Hin svokallaða „samkeppnishæfni“ Íslands dróst saman.

Króna á hækjum

Krónan sem við erum með í dag flýtur ekki frjáls og fær ekki að lúta lögmálum frjálsra gjaldeyrisviðskipta. Hún er studd með þjóðarvarúðartækjum. Fram til 2017 voru það fjármagnshöft en á síðustu árum hefur Seðlabankinn beitt tæplega eitt þúsund milljarða króna gjaldeyrisvaraforða sínum til að draga úr sveiflum í gengi. Þegar krónan veikist kaupir Seðlabankinn krónur, þegar hún styrkist um of þá selur hann þær. Því má segja að fyrirkomulagið sem við höfum stuðst við sé nokkurs konar króna á hækjum.

Ein helstu rökin fyrir íslensku krónunni hafa verið þau að hún sé svo sveigjanleg. Á mannamáli þýðir það að hún gæti veikst hratt og mikið til að auka samkeppnishæfni okkar þegar efnahagsástandið tekur dýfu. Vanalega fylgdi þessu aukin verðbólga. Það gerðist til dæmis eftir hrunið. Í þeirri samkeppnishæfni felst að laun Íslendinga verða mun lægri í alþjóðlegum samanburði og þeir sem flytja út vörur eða þjónustu fá fleiri krónur fyrir þegar þeir skipta dollurum eða evrum hjá Seðlabanka Íslands. Helsti kosturinn við þetta er talinn vera sá að þá er hægt að taka út aðlögunina eftir gerð hagstjórnarmistök með því að velta kostnaðinum af henni á launafólk án þess að atvinnuleysi láti á sér kræla.

Nú er þetta hins vegar ekki staðan. Í niðursveiflunni sem átti sér stað á árinu 2019, þegar samdráttur varð í íslenska efnahagskerfinu meðal annars vegna gjaldþrots WOW air, loðnubrests og vandkvæða Icelandair vegna kyrrsetningar á Boeing 737 Max vélunum, þá var birtingarmynd afleiðinganna svipuð og annars staðar í Evrópu, þar sem evran er gjaldmiðillinn, aukið atvinnuleysi.

Vopnin bíta ekki lengur

Frá því að höftin voru losuð, að kórónuveirufaraldurstímanum undanskildum, hefur verðbólga auk þess meira og minna verið yfir markmiði og fór um tíma í tveggja stafa tölu í tíð síðustu ríkisstjórnar.

Vegna þessa hafa stýrivextir verið yfir sex prósent í þrjú ár til að slá á þessa stöðu. Búið er að nota ýmis önnur tæki og tól til að reyna að takmarka þenslu, til dæmis að gera fólki erfiðara fyrir að skuldsetja sig mikið.

Útgerðir sem mala gull og gengu í evruna vegna mikilvægis Evrópu

Stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins hafa skilað metafkomu eftir að lög um leiðrétt veiðigjöld voru samþykkt í fyrrasumar eftir Íslandsmet í málþófi. Sú svartnættismynd sem fulltrúar stórútgerða á Alþingi máluðu upp á sér enga stoð í veruleikanum og markaðsvirði umræddra tveggja fyrirtækja hefur vaxið samanlagt yfir 130 milljarða króna á átta mánuðum. Verð hafa verið í hæstu hæðum og eftirspurn eftir íslenskri vöru gríðarleg. Þá hjálpaði loðnukvóti verulega til. Þessi tvö fyrirtæki gera nú bæði upp í evrum vegna þess að stærstu markaðir þeirra eru í Evrópu og þar eru helstu vaxtatækifærin í fyrirsjáanlegri framtíð.

Kjarnyrt • Þórður Snær Júlíusson

Stýrivextir, sem fóru lægst í 0,75 prósent, eru samt sem áður enn 7,5 prósent en þrátt fyrir það er verðbólgan rúmlega fimm prósent og atvinnuleysi hefur verið að tikka upp. Stýrivaxtatækið beit einfaldlega ekki eins og það átti að bíta og kaupmáttur hefur þvert á móti aukist. Til að toga á móti tilraunum Seðlabankans til að slá á þessa þróun komu nefnilega til ýmsar breytur.

Til að forðast að láta svimandi háa stýrivexti hafa of mikil áhrif á ráðstöfunartekjur hefur þjóðin til að mynda flúið í unnvörpum í verðtryggð lán þannig að hlutfall þeirra hefur vaxið úr 44 í 65 prósent á þremur árum. Þannig er mánaðarlegri greiðslubyrði haldið í skefjum.

Ef bankafólkið segir að vextir muni lækka…

Þegar allt ofangreint er talið saman má ljóst vera að það er einungis vitrænt fyrir Ísland að taka upp einn annan gjaldmiðil en íslensku krónuna, og það er evran. Það er líka ljóst að það eru viðvarandi gallar fyrir íslenskt efnahagskerfi við það að halda úti örgjaldmiðli og þeir kostir sem einu sinni voru kannski til staðar eru það flestir ekki lengur.

Innganga í Evrópusambandið og upptaka evru munu auðvitað ekki leysa öll þessi íslensku hagstjórnarvandamál ein og sér. Það þyrfti alltaf, í aðdraganda þeirrar upptöku, að fara til dæmis í umbætur á íslenska vinnumarkaðsmódelinu til að koma í veg fyrir höfrungahlaupin og það að laun hækki umfram það svigrúm sem er til staðar hverju sinni. Það þyrfti líka að stíga skref til að afnema verðtrygginguna og draga verulega úr vægi hennar hérlendis. Við myndum þurfa að tileinka okkur aga sem hefur alls ekki verið ráðandi breyta hjá yfirdráttarsjúku stjórnunum sem stýrðu landinu á síðustu árum.

Frétt úr Morgunblaðinu um liðna helgi þar sem lykilfólk í íslenskum bönkum fer yfir að vextir myndu lækka ef Ísland gengi í Evrópusambandið. Mynd: Skjáskot

En nýr gjaldmiðill gæti hins vegar breytt lífi margra venjulegra Íslendinga til hins betra. Þannig sögðu til að mynda forsvarsmenn allra banka á Íslandi nýverið við Morgunblaðið að vextir á íbúðalánum myndu lækka. Það myndi draga úr sveiflum í verðbólgu og vaxtastigi. Stöðugleiki og fyrirsjáanleiki yrði allt annar. Fyrir liggur að erlend fjárfesting á Íslandi myndi aukast, að samkeppni myndi flæða inn á fákeppnismarkaði, svo fátt eitt sé nefnt.

Er það ekki þess virði að fá að kanna hvenær þetta allt gæti orðið í boði í staðinn fyrir það kerfi sem við búum við nú?